Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Besta kvenna
Lambhagavöllurinn
Fram
Fram
0 - 1
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 154' Harpa Helgadóttir (sjm)
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson
Leik lokið!
Viðtöl og skýrsla á leiðinni, takk fyrir mig.
94. mín
Alda skýtur rétt framhjá markinu fyrir utan teig.
93. mín
Stöng
Jasmín Erla með skot langt frá eftir að Orkus kemur með lélega sendingu, skýtur yfir Orkus en boltinn fór í stöngina.
92. mín
Young með glórulaust skot sem McClellan ver léttilega.
91. mín
Hamlett er að koma sér í gott færi en missir boltann rétt fyrir skotið.
90. mín
+5
89. mín
Framarar eru að komast í góðar stöður en það vantar upp á þessa síðustu sendingu.
86. mín
Klafs í vörn Víkings, Sara kemst í gott færi en vörn Víkings nær að blokka boltann.
Víkingur R.
85. mín
InnBirta Birgisdóttir
ÚtJóhanna Elín Halldórsdóttir
Fram
84. mín
Gult spjald

Harpa Helgadóttir

84. mín
Dauðafæri
Sara með flottan háan bolta á Hamlett sem rétt nær skallanum, en skallar framhjá.
82. mín
Dauðafæri
Entz fær boltann á vinstri kantinum, keyrir inn í teiginn. McClellan ver boltann. Þarna var færi til þess að jafna!
Víkingur R.
81. mín
InnElísa Birta Káradóttir
ÚtFreyja Stefánsdóttir
80. mín
Dauðafæri
Freyja er í skyndisókn, alveg galopin á vinstri kantinum, keyrir inn í teiginn en skotið er rétt framhjá.
79. mín
Framarar eru alveg að reyna að skapa sér færi, en það vantar eitthvað upp á eins og síðustu sendinguna.
76. mín
Júlía Margrét með afleita sendingu til baka á Orkus. Orkus sendir á Dagnýju sem kemur með sendingu fyrir framan markið á Jasmín en vörn Frams sparkar burt.
74. mín
Bergdís tekur skotið eftir skyndisókn sem Orkus ver.
74. mín
Boltinn dettur á Hamlett og McClellan fer alveg hart í Hamlett, tekur boltann samt.
72. mín
Katrín Villhjálms með háa sendingu sem Víkingur skallar burt.
Víkingur R.
69. mín
InnDagný Rún Pétursdóttir
ÚtHelena Ósk Hálfdánardóttir
Víkingur R.
69. mín
InnEmma Steinsen Jónsdóttir
ÚtArna Ísold Stefánsdóttir
68. mín
Dauðafæri
Hár bolti á Katrínu Vilhjálms sem fær boltann en Anika rétt nær að blokka skotið.
67. mín
Af línu
Hár bolti, McClellan er að fara grípa hann, en hún missir hann og boltinn er að fara renna í áttina að markinu þangað til að Anika sparkar honum burt.
66. mín
Dauðafæri
Aukaspyrna fyrir Víking, boltinn dettur á Áslaugu sem er fyrir framan markið en hún skýtur beint á Orkus.
64. mín
Bergdís missir boltann útaf þegar hún er í skyndisókn fyrir framan varamannabekkina, Einar er brjálaður og telur dómurinn sé ekki réttur.
64. mín
Hár bolti á Hamlett sem lætur boltann fara framhjá sér.
64. mín
Hamlett með skot á markið úr þröngu færi, McClellan ver.
62. mín
Hamlett er inn í teignum, sendir á Katrínu en sendingin hennar inn í teig er ekki góð.
61. mín
Júlía Margrét kemst í gott færi til þess að koma með fyrirgjöf en hún rennur þegar hún er að taka sendinguna.
60. mín
Bergdís með aukaspyrnu, sem fer framhjá öllum og rétt framhjá markinu.
59. mín
Bergþóra með skot yfir markið. Víkingar eru byrjaðir að taka yfir.
Víkingur R.
54. mín
MAAAARK!

Harpa Helgadóttir (sjm)

Hár bolti á Freyju sem er inn í teignum, rennur honum á Jasmín Erlu sem tekur skotið sem fer svo í Hörpu og lekur inn í markið. Frá mínu sjónarhorni var skotið hjá Jasmín að fara framhjá markinu og þess vegna segi ég sjálfsmark.
53. mín
Framarar byrja seinni hálfleikinn betur.
50. mín
Alda og Bergþóra skellast saman. Leit ekki vel út. Þær halda áfram samt.
49. mín
Entz með góða fyrirgjöf en Framarar ná ekki að pota botlanum inn í markið.
48. mín
Freyja með bak hrindingu á Gilmore.
46. mín
Alda Ólafs með háa sendingu en McClellan grípur hann.
46. mín
Seinni hálfleikur
Fram byrja.
Fram
46. mín
InnJúlía Margrét Ingadóttir
ÚtFreyja Dís Hreinsdóttir
Fram
46. mín
InnKatrín S. Vilhjálmsdóttir
ÚtSylvía Birgisdóttir
Fram
46. mín
InnAlda Ólafsdóttir
ÚtUna Rós Unnarsdóttir
45. mín
Lítið að frétta og fjórði ekki að bæta neinu við. Skiljanlegt að bæði liðin vilja ekki fara í flugeldasýningu og vilja fara rólega eftir síðustu leiki, en persónulega vil ég meiri skot. Sjáumst eftir korter.
44. mín
Hamlett fær boltann inn í teignum, en skotið er rétt yfir.
43. mín
Dauðafæri
Besta færi leiksins. Boltinn dettur á Helenu sem er alveg ein inn í teignum en hún þarf að snúa sér og skotið fer framhjá.
41. mín
Fyrsta skot á mark og það er frá henni Bergþóru Sól, en það var nú létt að verja skotið.
37. mín
Sara Svanhildur keyrir bara inn í teig Víkings en sendingin er stoppuð af varnarmanni.
36. mín
Hár bolti inn í teig Framara og Orkus reynir að stökkva í hann en hún missir af honum og hann var að fara detta á Helenu ef Hildur María væri ekki á undan henni.
33. mín
Jóhanna Elín sparkar boltanum í stúkuna óvart og hlær af sjálfum sér.
32. mín
Hornið fer ekki neitt.
32. mín
Góð pressa hjá Hamlett, þar sem McClellan neyðist til þess að sparka fyrir horn.
30. mín
Hamlett var að komast í góða skyndisókn en sendingin áfram var alveg hörmuleg og missa Framarar boltann.
29. mín
Ekki mikið að gerast.
27. mín
Nálægt
Bergdís með horn á nærstöngina þar sem Jasmín Erla fær tækifæri en skotið fer rétt framhjá.
23. mín
Dauðafæri
Arna Ísold kemst í gegnum vörnina og er alveg galopin en skotið fer yfir markið, þarna var tækifæri til þess að komast yfir.
20. mín
Þetta er mjög rólegur leikur, alveg hægt að skilja það þar sem bæði lið hafa verið að leka inn mörkum undanfarið.
18. mín
Helena Ósk með háa fyrirgjöf, en boltinn fer yfir markið.
17. mín
Bergdís með háa sendingu inn á teig en hann er skallaður burt af Fram.
15. mín
Hamlett með skot fyrir utan vítateig, en hann fer langt framhjá.
15. mín
Hár bolti inn á teig Framara en boltinn fer rétt framhjá Freyju Stefáns.
13. mín
Hamlett fær boltann á vinstri kant, kemst inn í boxið en sendingin inn í teig er spörkuð burt af varnarmanni.
13. mín
Samkvæmt KSÍ skýrslu er Víkingur ekki með markmann á bekknum, áhugavert.
10. mín
Hamlett er komin í skyndisókn en Víkingar ná að fjölmenna til baka og hún neyðist til þess að senda til baka. Stuttu seinna missa Framarar boltann fyrir innkast.
6. mín
Jasmín Erla með sendingu inn í boxið en Orkus tekur boltann upp.
4. mín
Enn eitt annað ,,Arsenal" hornið hjá Víkingum.
1. mín
Víkingar að taka svona ,,Arsenal" horn, setja allt liðið á fjærstöngina og hlaupa svo inn í miðjan teiginn.
1. mín
Bergþóra sleppur í gegnum vörn Frams, kemur með sendingu, en vörnin ver fyrir horn.
1. mín
Víkingar byrja
0. mín
Liðin eru að koma inn á völlinn, spennandi!
0. mín
Þriðja liðið
Stefán Ragnar Guðlaugsson er dómari kvöldsins, honum til aðstoðar eru þeir Kristinn Freyr Victorsson og Óliver Thanh Tung Vú. Fjórði dómari er Arnar Hólm Einarsson. Sigurður G Friðjónsson er eftirlitsmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Víkingur
Það gengur ekki vel hjá Víkingum upp á síðkastið. Eftir að hafa unnið Stjörnuna í fyrstu umferðinni þá töpuðu þær gegn ÍBV í eyjum 3-2 eftir að hafa náð 2-0 forystu í fyrri hálfleik. Í síðustu umferð þá tóku þær á móti Breiðabliki sem vann leikinn 2-4. Víkingur er í 7. sæti með 3 stig, þær hafa skorað 6 mörk en fengið á sig 8. Freyja Stefáns og Jasmín Erla eru báðar markahæstar með 2 mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Fram
Það gengur ekki vel hjá Fram hingað til, þær eru ekki búnar að næla sér inn stig og sitja á botninum. Þær eru búnar að skora 3 mörk en hafa fengið á sig 9 mörk. Í síðustu umferð tóku þær á móti Þrótti og töpuðu 0-3. Taylor Marie Hamlett er markahæst með tvö mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Velkomin á Lambhagavöllinn!
Það er komið að fjórðu umferðinni í Bestu Deild kvenna, þar sem Fram fær Víking í heimsókn. Bæði lið þurfa á stigum að halda, Fram hefur ekki unnið leik á mótinu. Víkingur hefur tapað síðustu tveimur leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Umferðin: Sun 10. maí 14:00 ÍBV - Þór/KA 14:00 Stjarnan - FH Mán 11. maí 18:00 Breiðablik - Valur 19:15 Þróttur R. - Grindavík/Njarðvík 19:15 Fram - Víkingur R
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.