Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
Stjarnan
0
0
KR
13.05.2026  -  20:00
Samsungvöllurinn
Mjólkurbikar karla
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Óskar Hrafn: Jökull mikilvægur fyrir þessa deild Býst Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, við öðruvísi leik en þegar liðin áttust við í deildinni?

„Ég hef ekki hugmynd. Það er það geggjaða við Jökul: Ég veit ekki hvað hann kemur með. Þess vegna er hann svona mikilvægur fyrir þessa deild. Hann gæti komið með það sama, gæti komið með eitthvað allt annað. Það er það sem er svo dásamlegt við hann. Að einhverju leyti var þessi fyrri hálfleikur skák,“ sagði Óskar.

   08.05.2026 21:51
Óskar Hrafn: Það er svo dásamlegt við Jökul
Fyrir leik
Pressa á Jökli Stjarnan hefur tapað fjórum leikjum í röð. Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar var spurður eftir síðasta leik: Finnst þér þú vera undir pressu?

„Nei, ég finn það ekki. Ég er auðvitað svekktur fyrir hönd liðsins að það sé ekki að fá meira út úr þessu. Við erum með miklar væntingar til okkar og liðsins og ég til mín. Við erum ekkert að pæla í öðru. Ég átta mig alveg á að það er pressa og þetta er gott lið. Það er ekkert sem ég finn fyrir öðruvísi en ég vil að við gerum betur og vil ná því út úr liðinu sem við trúum að sé þarna.“

   11.05.2026 15:16
„Á meðan hann vappar hér um göturnar er enginn óhultur“

   08.05.2026 22:01
Jökull segist ekki finna fyrir pressu - „Svekktur fyrir hönd liðsins“
Fyrir leik
Dómarar
Fyrir leik
Önnur veisla framundan! Liðin mættust hér á þessum sama velli síðasta föstudag í Bestu deildinni. KR vann þá 3-2 útisigur eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik.



Stjarnan 2 - 3 KR
1-0 Örvar Eggertsson ('44 )
2-0 Benedikt V. Warén ('45 )
2-1 Aron Sigurðarson ('60 )
2-2 Luke Morgan Conrad Rae ('68 )
2-3 Ástbjörn Þórðarson ('100% )
Lestu um leikinn
Fyrir leik
16-liða úrslit Mjólkurbikarsins Velkomin með okkur á Samsung! Hér er stórleikur framundan. Annað liðið fer í 8-liða úrslitin en hitt lýkur keppni í Mjólkurbikarnum þetta árið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

miðvikudagur 13. maí
17:30 Þróttur R.-Breiðablik (AVIS völlurinn)
19:15 HK-Víkingur R. (Kórinn)
19:15 Afturelding-Njarðvík (Malbikstöðin að Varmá)
19:15 ÍA-Grindavík (ELKEM völlurinn)
20:00 Stjarnan-KR (Samsungvöllurinn)

fimmtudagur 14. maí
14:00 KA-Ægir (Greifavöllurinn)
14:00 Vestri-Grótta (Kerecisvöllurinn)
15:00 Fylkir-FH (tekk VÖLLURINN)
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: