Gordon samþykkir að ganga í raðir Bayern - Chelsea og Man Utd vilja liðsfélaga Orra - Greenwood áfram hjá Marseille
Mjólkurbikar karla
Fylkir
LL 5
0
FH
Mjólkurbikar karla
Vestri
LL 0
4
Grótta
Mjólkurbikar karla
KA
LL 1
2
Ægir
Vestri
0
4
Grótta
0-1 Grímur Ingi Jakobsson '17 , víti
0-2 Björgvin Brimi Andrésson '35
0-3 Tristan Freyr Ingólfsson '40
0-4 Tristan Freyr Ingólfsson '43
Daniel Osafo-Badu '46
14.05.2026  -  14:00
Kerecisvöllurinn
Mjólkurbikar karla
Aðstæður: 8 gráður skýjað og lítill vindur. Ekkert til að kvarta yfir
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Byrjunarlið:
33. Benedikt Jóhann Þ. Snædal (m)
2. Gabríel Heiðberg Kristjánsson ('46)
3. Edson Eduardo Dias Gomes
7. Jacob Stensson ('81)
9. Pétur Bjarnason (f) ('64)
10. Þórður Gunnar Hafþórsson ('81)
14. Birkir Eydal
17. Gunnar Jónas Hauksson ('64)
23. Breki Þór Hermannsson
29. Konstantin Cheshmedjiev
77. Sergine Fall
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Marvin Darri Steinarsson (m)
6. Ibrahima Balde ('46)
13. Albert Ingi Jóhannsson ('81)
16. Abdourahmane Diagne
18. Marinó Steinar Hagbarðsson ('81)
22. Elmar Atli Garðarsson ('64)
45. Guðmundur Páll Einarsson ('64)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Daniel Osafo-Badu (Þ)
Vladan Djogatovic
Ferran Montes I. Corominas
Jón Ólafur Ragnarsson
Jonathan Awrohum

Gul spjöld:
Breki Þór Hermannsson ('14)
Elmar Atli Garðarsson ('36)
Pétur Bjarnason ('39)
Gunnar Jónas Hauksson ('57)

Rauð spjöld:
Daniel Osafo-Badu ('46)
Leik lokið!
0:4 sigur Gróttu niðurstaðan. Grótta vinna stórsigur á Vestra.
Titilvörn Vestra er lokið.

Skýrsla og Viðtöl væntanleg seinna í dag.
91. mín
Aukaspyrna hjá Vestra sem Konstantin sendir fyrir, Albert Ingi kemst í boltann og skallar yfir.
90. mín
Vestri fá hornspyrnu sem Grótta ná að hreinsa eftir smá klafs.
88. mín
Færi! Birkir finnur Elmar í góðri stöðu á fjær, Elmar kemur með einhverskonar skot/sendingu sem enginn komst í.
87. mín
Inn:Kristján Tómas Björnsson (Grótta) Út:Kristófer Dan Þórðarson (Grótta)
87. mín
Inn:Einar Tómas Sveinbjarnarson (Grótta) Út:Mattías Kjeld (Grótta)
86. mín
Marínó Steinar með fyrirgjöf sem Tristan skallar í horn.

Ekkert kom úr henni
84. mín Gult spjald: Mattías Kjeld (Grótta)
Fær gult fyrir tuð í kjölfarið.
84. mín
Dauðafæri! Mattías dettur í gegn og er komin einn á móti Benedikt en hann rennur sýnist mér og missir boltann.
81. mín
Inn:Jónatan Ari Bragason (Grótta) Út:Halldór Hilmir Thorsteinson (Grótta)
81. mín
Inn:Albert Ingi Jóhannsson (Vestri) Út:Jacob Stensson (Vestri)
81. mín
Inn:Marinó Steinar Hagbarðsson (Vestri) Út:Þórður Gunnar Hafþórsson (Vestri)
80. mín
Grótta fara upp og Andri komst í góða stöðu sem hann nýtti illa.
79. mín
Breki gerir vel að vinna upp kantinn og kemur með sendingu fyrir en það er enginn Vestramaður þar.
Settu þig í hleðslu með Hleðslu
77. mín
Konstantin liggur eftir að hafa fengið skalla frá Elmari Frey í hausinn.
Hann er staðin upp og þarf að vera útaf í eina mínútu.
74. mín
Hættulegt! Góð sókn hjá Vestramönnum sem endar á fyrirgjöf á Birki Eydal sem tekur við boltanum á vítateigs horninu, kemur með flott skot sem Guðmundur ver vel.
72. mín
Inn:Elmar Freyr Hauksson (Grótta) Út:Björgvin Brimi Andrésson (Grótta)
Björgvin mjög flottur hér í dag.
68. mín
Vestramenn aðeins farnir að láta finna fyrir sér. Þeir eru að komast að teig Gróttu, en þegar þeir komast þangað vantar gæði til að klára sóknirnar.
66. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað fyrir Vestramenn. Breki tekur þetta og skýtur framhjá.
65. mín
Sláinn! Breki í góðu færi og kemur skoti á markið sem hafnar slánni.
64. mín
Inn:Elmar Atli Garðarsson (Vestri) Út:Pétur Bjarnason (Vestri)
Fyrirliðinn kemur inná á gulu.
64. mín
Inn:Guðmundur Páll Einarsson (Vestri) Út:Gunnar Jónas Hauksson (Vestri)
60. mín
Flott sókn hjá Gróttu sem endar á sendingu fyrir frá Tristan sem Benedikt gerir vel og handsamar.
57. mín Gult spjald: Gunnar Jónas Hauksson (Vestri)
Klaufalegt brot. Gunnar brýtur af sér út á vinstri kantinum og fær verðskuldað gult spjald.
55. mín
Vestri fá horn.

Grótta hreinsa og boltinn berst á Mattías sem brunar upp, hann sendir á Björgvin sem er hundeltur af Fall sem kemst fyrir skotið hans.
53. mín
Gróttumenn eru aðeins á undan Vestramönnum hér í byrjun seinni hálfleiksins. Koma mun betur út úr hálfleiknum.
46. mín Rautt spjald: Daniel Osafo-Badu (Vestri)
Badu, þjálfari Vestra, fékk rautt í hálfleik. Líklega fyrir mikil ólæti inni í húsi.
46. mín
Inn:Ibrahima Balde (Vestri) Út:Gabríel Heiðberg Kristjánsson (Vestri)
Skipting hjá Vestra í hálfleik.
46. mín
Seinnihálfleikur farin af stað.
45. mín
Hálfleikur
Órtúlegur fyrrihálfleikur Grótta leiða 0:4 eftir 45 mínútur, Frábærir hér í fyrrihálfleik.
Allt önnur saga hinum megin á vellinum þar sem Vestramenn eru í miklu basli.

Sjáum hvað gerist í seinni og tökum okkur 15 mínútur.
43. mín MARK!
Tristan Freyr Ingólfsson (Grótta)
Þvílíkt mark Tristan fær boltann fyrir utan teig Vestra, Hann hitti hann vel og neglir honum í fjærhornið.

Vestramenn steinliggja hér á heimavelli.
40. mín MARK!
Tristan Freyr Ingólfsson (Grótta)
Grótta að ganga frá þeim Aukaspyrnan er tekin hægramegin við teiginn, Tristan er klókur og setur hann undir Birki í veggnum, Benedikt var of lengi að átta sig og boltinn lekur í markið.
Vel gert hjá Tristani.
40. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað fyrir Gróttu Birkir brýtur af sér rétt fyrir utan teig. Jóhann dæmir við litla hrifningu Vestra.
39. mín Gult spjald: Pétur Bjarnason (Vestri)
Pirringsbrot í pressuni.
38. mín
Færi Þórður Gunnar með bolta fyrir sem Gunnar Jónas skallar á markið en skallinn er laflaus og Guðmundur í marki Gróttu handsamar boltann.
36. mín Gult spjald: Elmar Atli Garðarsson (Vestri)
Bekkurinn hjá Vestra brjálaður. Þeir vildu fá hendi á Grím þegar hann vann boltann en fengu ekkert.
Elmar fór aðeins of langt í tuðinu og fékk gult.
35. mín MARK!
Björgvin Brimi Andrésson (Grótta)
Stoðsending: Grímur Ingi Jakobsson
Bikarmeistaranir 0:2 undir eftir 35 mínútur. Grímur vinnur boltann á miðjum vallarhelming Vestra og spólar upp kantinn, kemur með góða sendingu fyrir á Björgvin sem er aleinn á fjær sem klárar vel.
33. mín
Dauðfæri hjá Gróttu. Grótta vinna boltann eftir hornið hjá Vestra, Björvin brunar upp og sendir á Mattías í gegn, hann með skot sem Benedikt ver og fær hann svo aftur og Benedikt ver aftur meistaralega.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Góð skyndisókn hjá Vestra sem endar í hornspyrnu.
28. mín
Liðin skiptast á að sækja þessa stundina. Mikið um frekar langar sóknir á báða bóga.
20. mín
Jóhann Ingi dæmir mark af Vestra Konstantin með frábæra sendingu í gegn á Þórð sem sleppur í gegn og klárar vel í hægra hornið.
Jóhann dæmir sýnist mér hendi vel eftir markið, lið Vestra var byrjað að fagna þessu og eru ekki sáttir.
17. mín Mark úr víti!
Grímur Ingi Jakobsson (Grótta)
Benedikt var í þessari spyrnu en hún var föst í vinstra hornið. 1:0 Grótta.
17. mín
Víti Grótta fá víti, brotið á Andra í teig Vestramanna.

Rétt fyrir brotið var Grótta í dauðafæri.
15. mín
Kristófer með skot fyrir utan teig sem er auðvelt fyrir Benedikt.
14. mín Gult spjald: Breki Þór Hermannsson (Vestri)
Seinn í tæklingu og tekur Caden niður.
12. mín
Hættulegt Konstantin með slaka sendingu í uppspili Vestra sem Kristórfer komst inn í. Hann tekur skotið en Birkir kemst fyrir það og boltinn í horn.

Ekkert kom úr hornspyrnunni.
10. mín
Fyrsta alvöru sókn Gróttu endar á fyrirgjöf frá Björgvin sem Benedikt handsamar.
7. mín Gult spjald: Guðmundur Rafn Ingason (Grótta)
Klaufalegt! Mjög lélegt úthlaup hjá Guðmundi. Tók Þórð niður á vinstri kantinum.
Vestri fær aukaspyrnu sem Dagur hreinsaði frá.
4. mín
Hættuleg fyrigjöf frá Þórði sem Grótta hreinsa í horn.

Eftir smá klafs fer boltinn í aðra hornspyrnu sem ekkert kom úr.
2. mín
Fall með fyrirgjöf fyrir sem fer í hendina á Gróttumanni.
Aukaspyrna á góðum stað fyrir Vestramenn.

Grótta hreinsa.
1. mín
Leikur hafinn
Breki Þór sparkar okkur í gang
Fyrir leik
Liðin ganga hér inn á Kerecis-völlinn.
Fyrir leik
Óbreytt hjá Gróttu Rúnar Páll stillir upp sama liði og vann Ægi 1:0 á síðustu helgi í Þorlákshöfn.
Það eru tvær breytingar á hóp Gróttu Kristján Tómas Björnsson og Patrik Orri Pétusson koma inn og Alexander Emil Stefánsson og Emil Skúli Einarson fara út.
Fyrir leik
Sex breytingar hjá Vestra Daniel Badu þjálfari Vestra gerir sex breytingar í sínu liði í dag eftir sigurinn á HK í síðasta leik.
Inn í liðið koma þeir Benedikt Jóhann Snædal, Gabeíel Heiðberg Kristjánsson, Pétur Bjarnason, Þórður Gunnar Hafþórsson, Birkir Eydal og Sergine Fall.
Albin Mörfelt, Thibang Sindile Theophilius (Cafú) og Jóhannes Selvén eru allir utan hóps.
Fyrir leik
Dómarinn Dómari leiksins í dag er Jóhann Ingi Jónsson.

Honum til aðstoðar eru þeir Guðni Freyr Ingvason og Þráinn Jón Elmarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Grótta Grótta byrjuðu þetta bikarmót með 2:0 sigri á Þrótti Vogum. Unnu síðan Úlfana 2:1 áður en þeir tóku á móti Álftanesingum í 32-liða úrslitum og unnu 1:0 með marki frá Tristani Frey Ingólfsyni.

Í dag mæta Gróttumenn vestur á Ísafjörð og mæta þar ríkjandi bikarmeisturum Vestra í Lengjudeildarslag.

Grótta er situr í 10.sæti Lengjudeildarinnar með þrjú stig eftir þrjá leiki, með einn sigur og tvö töp.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Ríkjandi Mjólkurbikarmeistarar Eins og frægt er þá eru Vestri ríkjandi Mjólkurbikarmeistarar eftir sigur á Val í bikarúrslitum í Ágúst í fyrra. Síðan þá hefur mikið gengið á fyrir vestan. Davíð Smári Lamude fór frá félaginu, liðið féll úr Bestu deildinni og miklar leikmannabreytingar voru á liðinu í vetur. Til þess má geta að aðeins einn leikmaður í byrjunarliði Vestra í dag byrjaði bikarúrslitaleikinn, það er hann Gunnar Jónas Hauksson.

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson


Vestramenn tóku á móti Leikni R í 32-liða úrslitum og báru þar sigur úr bítum 1:0 með marki Imran Mehanovic.

Vestri sitja í 7.sæti í Lengjudeildinni með 4 stig, einn sigur, eitt jafntefli og eitt tap.
Fyrir leik
Bikardagur á Uppstigningardegi 16-liða úrslitum lýkur með þremur leikjum:
14:00 KA-Ægir (Greifavöllurinn)
14:00 Vestri-Grótta (Kerecisvöllurinn)
15:00 Fylkir-FH (tekk VÖLLURINN)

Sjáðu mörkin og úrslitin úr leikjum gærdagsins:
   14.05.2026 00:10
Sjáðu öll bikarmörkin: Stjarnan stöðvaði sigurgöngu KR


Hvenær verður dregið?
Það verður dregið í 8-liða úrslit í beinni útsendingu í samantektarþættinum á RÚV2 en hann fer í loftið eftir leik Fylkis og FH. Áætlað er að hann hefjist 16:55.

   14.05.2026 08:00
Mætir fyrrum liðsfélögum í dag - „Var ekkert að leitast eftir því að fara frá Gróttu"
Byrjunarlið:
31. Guðmundur Rafn Ingason (m)
4. Dagur Bjarkason
7. Björgvin Brimi Andrésson ('72)
8. Caden Robert McLagan
9. Andri Freyr Jónasson
10. Grímur Ingi Jakobsson (f)
15. Halldór Hilmir Thorsteinson ('81)
18. Nökkvi Már Nökkvason
20. Kristófer Dan Þórðarson ('87)
27. Mattías Kjeld ('87)
28. Tristan Freyr Ingólfsson
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
1. Alexander Arnarsson (m)
3. Jónatan Ari Bragason ('81)
5. Patrik Orri Pétursson
11. Kristján Tómas Björnsson ('87)
13. Björgvin Stefánsson
14. Einar Tómas Sveinbjarnarson ('87)
25. Elmar Freyr Hauksson ('72)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Paul Benjamin Westren
Patrekur Ingi Þorsteinsson
Halldór Svavar Sigurðsson

Gul spjöld:
Guðmundur Rafn Ingason ('7)
Mattías Kjeld ('84)

Rauð spjöld: