SKÝRSLAN: Þungt ský yfir Kórnum eftir alvarleg meiðsli
Hvað réði úrslitum?
HK menn voru ekki alveg mættir í fyrri hálfleik. Voru ekki mjög sannfærandi en gáfu vel í í seinni hálfleik og skoruðu 2 mörk á 8 mínútum. Það var mikil seigla í Njarðvíkurliðinu og manni fannst þrátt fyrir rauða spjaldið að þeir voru ekkert manni færri.
Bestu leikmenn
1. Svavar Örn Þórðarson
Svavar var alveg frábær í dag í. Sterkur og stæðilegur
2. Freysteinn Ingi Guðnason
Mjög fljótur og ábyggilega erfitt að mæta honum. Sýndi þvílík gæði í dag og lék á mann og annan.
Atvikið
Það er klárlega meiðslin hans Jóhanns Ægis. Fer í öxl-í-öxl baráttu og lendir síðan illa. Leikurinn var stopp í rúman hálftíma meðan beðið var eftir sjúkrabíl. Ég óska Jóhanni góðs bata og vona innilega að hann nái að snúa aftur á fótboltavöllinn sem fyrst.
Hvað þýða úrslitin?
HK situr í 2. sæti með 9 stig og Njarðvík í 9. sæti með 4 stig eftir fjórar umferðir. HK á leik næst við ÍR á útivelli og Njarðvík á leik við Ægi á heimavelli.
Vondur dagur
Arnleifur var klaufi að næla sér í þetta rauða spjald. Ætlar að reyna fara í boltann en fer í fótinn á leikmanni HK.
Vissulega vondur dagur fyrir Jóhann en þetta er auðvitað pjúra óheppni sem gerist við hann
Vissulega vondur dagur fyrir Jóhann en þetta er auðvitað pjúra óheppni sem gerist við hann
Dómarinn - 8
Helgi Mikael flottur á flautunni. Mér fannst það hárrétt dæmt rauða spjaldið en hins vegar voru önnur atriði þar sem manni fannst að það áttu að vera spjöld.



