Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
Lengjudeild karla
Þróttur R.
LL 2
3
Grótta
Lengjudeild karla
Fylkir
LL 3
0
Leiknir R.
Lengjudeild karla
Ægir
LL 4
1
ÍR
Lengjudeild karla
Grindavík
LL 1
3
Afturelding
Lengjudeild karla
HK
LL 1
0
Völsungur
Lengjudeild karla
Vestri
LL 0
3
Njarðvík
Þróttur R.
2
3
Grótta
Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson '7 1-0
1-1 Andri Freyr Jónasson '25
Örn Bragi Hinriksson '27 2-1
2-2 Andri Freyr Jónasson '48
2-3 Mattías Kjeld '76
27.05.2026  -  19:15
AVIS völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Pétur Guðmundsson
Byrjunarlið:
12. Aron Dagur Birnuson (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
5. Kolbeinn Nói Guðbergsson
7. Tryggvi Snær Geirsson ('56)
8. Baldur Hannes Stefánsson (f)
10. Sigurður Egill Lárusson
21. Brynjar Gautur Harðarson
22. Kári Kristjánsson
25. Hlynur Þórhallsson
27. Örn Bragi Hinriksson
45. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
3. Stefán Þórður Stefánsson
6. Jakob Ocares Kristjánsson
14. Daníel Karl Þrastarson
20. Viktor Steinarsson
26. Aron Jóhannsson ('56)
33. Unnar Steinn Ingvarsson
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Hans Sævar Sævarsson (AÞ)
Alexander Máni Curtis (liðsstjóri)
Orri Sigurjónsson (styrktarþj.)
Björn Sigurbjörnsson (AÞ)
Amir Mehica (MÞ)
Valgeir Einarsson Mantyla (sjúkraþj.)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Grótta sigur staðreynd. Þeir eiga þetta skilið.

Takk fyrir mig, viðtöl á leiðinni.
91. mín
Siggi Lár reynir að koma boltanum inn í teig en Guðmund Rafn grípur hann þægilega.
89. mín
Inn:Axel Sigurðarson (Grótta) Út:Nökkvi Már Nökkvason (Grótta)
89. mín
Inn:Patrik Orri Pétursson (Grótta) Út:Mattías Kjeld (Grótta)
88. mín
Siggir Lár með flotta sendingu í gegn en Dagur rétt nær að tækla boltann fyrir horn.
87. mín
Þróttarar eru að spila frekar illa, sérstaklega eftir þriðja mark Gróttu. Missa boltann frekar léttilega og virðast ráðalausir.
84. mín
Björgvin Brimi er að komast í gott færi en skotið fer yfir markið.
82. mín
Þróttur er að komast í góða sókn en Emil Skúli blokkar fyrirgjöfina með því að setja hendina upp í loftið og fyrir sendinguna. Fékk ekki neitt fyrir það, áhugavert.
80. mín
Inn:Einar Tómas Sveinbjarnarson (Grótta) Út:Tristan Freyr Ingólfsson (Grótta)
80. mín
Inn:Alexander Emil Stefánsson (Grótta) Út:Tristan Freyr Ingólfsson (Grótta)
79. mín
Boltinn er í loftinu og dettur á Kristófer Dan sem tekur laust skot sem fer í varnarmann, Grótta er líklegri að skora en Þróttur.
76. mín MARK!
Mattías Kjeld (Grótta)
Stoðsending: Tristan Freyr Ingólfsson
Tristan fær boltann á vinstri kantinum, sendir svo á Kjeld sem er staðsettur fyrir utan teiginn.

Kjeld lætur vaða í fjær hornið, Aron Dagur hreyfir sig ekki þar sem hann sá ekki boltann. Mögulega fór skotið í varnarmann.
75. mín
Kjeld fær boltann fyrir utan teiginn og lætur vaða, en skotið er beint á Aron Dag.
73. mín
Örn keyrir inn í teig Gróttu en varnarmaðurinn nær svo að pota boltnaum út fyrir horn.

Hornið er gripið af Guðmundi.
69. mín Gult spjald: Caden Robert McLagan (Grótta)
Hann og Kári fara saman þegar boltinn er í loftinu.
68. mín
Kjeld reynir að senda boltanum í gegn en sendingin fer beint til Arons í markinu.
66. mín
Inn:Emil Skúli Einarsson (Grótta) Út:Jónatan Ari Bragason (Grótta)
65. mín
Siggi Lár kemur boltanum á Örn sem reynir að setja boltann fram fyrir markið þar sem Vilhjálmur er en Dagur nær að verjast.
61. mín
Dauðafæri í þrígang!!! Hvar á ég að byrja.

Siggi Lár kemur með sendingu fyrir markið, Vilhjálm Kaldal er í boxinu og nær ekki að pota honum inn.

Boltinn dettur þá á Brynjar Gaut sem er með galopið markið á vinstri kantinum en hann skýtur framhjá.

Skotið hjá Brynjari endar á Sigga Lár sem er á hægri kantinum, Siggi sendir á Kára sem er einn við vítapunktinn. Kári skýtur en skotið er í varnarmann og framhjá.

Ótrúlegt, þarna á Þróttur að vera 3-2 yfir. Mæli með að skoða þetta atvik á Livey.
59. mín
Siggi Lár reynir háa sendingu inn í teig en boltinn fer yfir markið.
58. mín
Aron Jó er á vinstri kantinum og kemur með sendingu fyrir en Grótta kemur boltanum fyrir horn.
57. mín
Hlynur missir boltann klaufalega og Andri Freyr nær að keyra í áttina að markinu þangað til að Kolbeinn Nói nær boltann af honum.
56. mín
Inn:Aron Jóhannsson (Þróttur R.) Út:Tryggvi Snær Geirsson (Þróttur R.)
56. mín
Grótta fær horn sem þeir taka stutt á Kjeld en sendingin inn í teig er beint á Aron dag.
55. mín
Kjeld á hægri kantinum kemur svo með háa fyrirgjöf sem fer beint á Tristan sem lætur vaða í fyrsta en skotið er rétt framhjá.
53. mín
Tryggvi er að sleppa í gegn en McLagan er góður og setur pressu á hann þangað til að Tryggva missir boltann.
51. mín
Eiríkur Blöndal kemst framhjá varnarmanni Gróttu og kemur svo með lága sendingu fram fyrir markið sem Jónatan Ari kemst í en fer svo yfir markið.
48. mín MARK!
Andri Freyr Jónasson (Grótta)
Stoðsending: Dagur Bjarkason
Grótta er að herja á vörn Þrótts.

Dagur fær boltann fyrir utan teiginn og lætur vaða en boltinn deflectar í Andra og inn í markið.

Aron Dagur var að fara í allt aðra átt og gat lítið gert.
47. mín
Siggi með góða takta við hliðarlínuna, kemur svo með háa sendingu sem fer beint á Tryggva, en skallinn fer upp í loftið og Guðmundur Rafn grípur hann.
46. mín
Kjeld keyrir á vörn Þrótts á hægri kantinum en missir svo boltann.
46. mín
Seinni hálfleikur Grótta byrjar seinni hálfleikinn.
45. mín
Hálfleikur
Góður fyrri hálfleikur.

Sjáumst eftir korter.
43. mín
Tristan með horn sem fer beint á McLagan sem skallar yfir markið.
42. mín
Kjeld með hættulega fyrirgjöf á hægri kantinum, Eiríkur nær að skalla boltanum burt samt.
41. mín
Orðið frekar rólegt núna.
38. mín
Tryggvi, Siggi Lár og Örn í skyndisókn.

Siggi Lár setur Örn í gegn en skotið hjá Erni fer í hliðarnetið.
37. mín
Kári Kristjáns reynir skot langt frá en skotið fer framhjá.
36. mín
Kolbeinn reynir að vippa boltanum yfir vörn Gróttu á Tryggva Snæ en varnarmenn ná að skalla boltanum burt.
34. mín
Grótta fær aukaspyrnu rétt við D bogann, Kristófer Dan tekur hana en skotið fer beint í vegginn.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Þróttur er að leitast eftir þriðja markinu sínu.

Siggi Lár kemur með sendingu í gegnum vörn Gróttu en sendingin er aðeins of föst.
27. mín MARK!
Örn Bragi Hinriksson (Þróttur R.)
Stoðsending: Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
Stutt horn hjá Þrótturum, Grótta nær að koma boltanum út en Vilhjálmur Kaldal fær hann aftur.

Vilhjálmur er við endalínuna og keyrir inn í teiginn og kemur svo boltanum á Örn sem skorar af stuttu færi, mögulega fór skotið undir Guðmund Rafn.
25. mín MARK!
Andri Freyr Jónasson (Grótta)
Stoðsending: Tristan Freyr Ingólfsson
Vel spilað hjá Gróttu, einfalt.

Það kemur ein sending í gegn og Tristan kemst í boltann vinstra meginn í teignum.

Kemur svo með sendingu fram fyrir markið sem Andri Freyr skorar úr.
24. mín Gult spjald: Jónatan Ari Bragason (Grótta)
22. mín
Vilhjálmur Kaldal fær boltann í teignum, hann nær að skjóta en skotið fer beint í bakið hjá McLagan.
21. mín
Þróttarar eru að taka meira yfir leikinn en Grótta hefur sýnt það að þeir geta verið hættulegir í skyndisóknum.
20. mín
Orðið smá rólegt.
15. mín
Aukaspyrna fyrir Gróttu rétt fyrir utan teiginn.

Tristan Freyr ætlar að taka aukaspyrnuna en hann ætlar að fara undir vegginn en veggurinn stekkur ekki og ná Þróttarar að koam boltanum burt.
12. mín
Mark dæmt af! Örn Bragi sleppur í gegn á hægri kantinum, kemur með fyrirgjöf fram fyrir markið.

Vilhjálmur Kaldal rennir sér á boltann og boltinn fer undir Guðmund Rafn og Tryggvi Snær kemur boltanum í markið.

Vilhjálmur Kaldal fór samt í Guðmund Rafn og dæmir hann þá brot á Vilhjálm.
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
10. mín
Tristan Freyr með flottan bolta, beint á Andra Frey sem er einn og nær að skalla en hann var rangur.
9. mín
Færi Hlynur Þórhalls fær skot tækifæri inn í teignum eftir mikið klafs.

Guðmundur Rafn grípur boltann samt.
7. mín MARK!
Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson (Þróttur R.)
Stoðsending: Kári Kristjánsson
Horn fyrir Þrótt sem Kári tekur.

Boltinn fer beint á Villhjálm sem skallar yfir Guðmund Rafn sem stóð eins og stytta.
5. mín
Stöng Grótta að komast í gott færi inn í teig Þrótts.

Björgvin Brimi fær boltann og cuttar inn, skýtur svo í markið en boltinn fer í stöngina og fyrir markspyrnu.
4. mín
Þetta byrjar frekar hægt en Grótta er búin að vera meira með boltann en Þróttur.
1. mín
Horn fyrir Þrótt.

Siggi Lár kemur með lágan, beint á Kolbeinn Nóa sem skallar beint á markið.
1. mín
Leikur hafinn
Þróttarar byrja.
Fyrir leik
Liðin eru að koma sér inn á völlinn.
Fyrir leik
Byrjunarliðin mætt Síðan er komin í lag og byrjunarliðin eru líka komin.

Veisla!
Fyrir leik
16 ára hetja Gróttu Hinn 16 ára gamli Mattías Kjeld skoraði tvö mörk gegn Vestra í síðustu umferð, með þessari frammistöðu var hann valinn leikmaður umferðarinnar. Grótta fékk Mattías frá Val í vetur.

Grótta vann samt leikinn 5-3, Andri Freyr, Björgvin Brimi og Alexander Emil með hin mörkin þrjú.

Grótta kann alveg að skora. Þeir hafa skorað átta mörk á tímabilinu en fengið á sig 12 mörk í leiðinni. Þeir hafa haldið hreinu einu sinni og var það gegn Ægi í Þorlákshöfn.

Þeir sitja í níunda sæti með tvo sigra og þrjú töp.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson


@lengjudeildin2026 Mattías Kjeld skoraði stórkostlegt mark! ???? #lengjudeildin ? original sound - tobyyy.fotty2

Fyrir leik
Þróttur með eitt stig í síðustu tveimur leikjum Þróttur byrjaði sumarið vel með því að sigra Njarðvík og ÍR á heimavelli. Svo fóru þeir til Húsavíkur og unnu Völsung 0-3.

Svo fékk Þróttur, Leikni í heimsókn á heimavelli og leikurinn endaði 1-1, eftir þann skell fóru þeir í Mosfellsbæ og töpuðu þeir 4-3 gegn Afturelding.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Aron Snær Ingason leikmaður Þrótts og Axel Óskar Andrésson leikmaður Aftureldingar skullu harkalega saman. Aron þurfti að fara af velli með sjúkrabíl.


Magnús Þórðarson fékk rautt í síðasta leik og mun þá væntalega ekki spila.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lengjudeildin kallar Heil og sæl kæru lesendur. Það er komið að sjöttu umferðinni í lengjudeildinni, þar sem Þróttur tekur á móti Gróttu á AVIS vellinum í Laugardalnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

umferðin
Mið 27. maí 18:00 HK - Völsungur
Mið 27. maí 18:00 Vestri - Njarðvík
Mið 27. maí 19:15 Grindavík - Afturelding
Mið 27. maí 19:15 Fylkir - Leiknir R.
Mið 27. maí 19:15 Ægir - ÍR
Mið 27. maí 19:15 Þróttur R. - Grótta

Það er þá alvöru miðvikudags stemming í dag.
Byrjunarlið:
12. Guðmundur Rafn Ingason (m)
3. Jónatan Ari Bragason ('66)
4. Dagur Bjarkason
7. Björgvin Brimi Andrésson
8. Caden Robert McLagan
9. Andri Freyr Jónasson
10. Grímur Ingi Jakobsson (f)
20. Kristófer Dan Þórðarson
21. Tristan Freyr Ingólfsson ('80) ('80)
24. Nökkvi Már Nökkvason ('89)
30. Mattías Kjeld ('89)
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
1. Alexander Arnarsson
5. Patrik Orri Pétursson ('89)
11. Axel Sigurðarson ('89)
14. Einar Tómas Sveinbjarnarson ('80)
19. Alexander Emil Stefánsson ('80)
25. Elmar Freyr Hauksson
96. Emil Skúli Einarsson ('66)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Paul Benjamin Westren (AÞ)
Hrannar Ingi Magnússon (leikmaður utan hóps)
Patrekur Ingi Þorsteinsson (liðsstjóri)
Bjarni Björnsson (styrktarþj.)
Anton Bogdanov (MÞ)
Halldór Svavar Sigurðsson (sjúkraþj.)

Gul spjöld:
Jónatan Ari Bragason ('24)
Caden Robert McLagan ('69)

Rauð spjöld: