Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Besta kvenna
FH
LL 6
2
Fram
2. deild kvenna
Fylkir
LL 1
1
Vestri - konur
Besta kvenna
Stjarnan
LL 2
0
ÍBV
Besta kvenna
Þór/KA
LL 4
6
Víkingur R.
Besta kvenna
Gri/Nja
LL 0
5
Breiðablik
Gri/Nja
0
5
Breiðablik
0-1 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir '1
0-2 Katelyn Duong '15
0-3 Agla María Albertsdóttir '51
0-4 Agla María Albertsdóttir '64
0-5 Líf Joostdóttir van Bemmel '67
30.05.2026  -  14:00
JBÓ völlurinn
Besta kvenna
Dómari: Hreinn Magnússon
Maður leiksins: Agla María Albertsdóttir
Byrjunarlið:
1. Lauren Kellett (m)
5. Natasha Anasi ('73)
9. Lily Anna Farkas
12. Hannah McLaughlin
17. Sophia Faith Romine ('73)
19. Rakel Sigurðardóttir
22. Sigríður Emma F. Jónsdóttir (f) ('73)
24. Danai Kaldaridou ('65)
26. Maci Nicole Teater
27. Hildur Katrín Snorradóttir ('58)
28. Emma Nicole Phillips
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
20. Irma Rún Blöndal (m)
3. Brynja Pálmadóttir
6. Rut Sigurðardóttir ('73)
8. Katrín Lilja Ármannsdóttir
11. Eydís María Waagfjörð
13. Lea Björt Kristjánsdóttir ('73)
15. Tinna Hrönn Einarsdóttir ('65)
18. Ása Björg Einarsdóttir ('58)
23. Júlía Rán Bjarnadóttir ('73)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Gylfi Tryggvason (Þ)
Þorsteinn Magnússon (MÞ)
Lúðvík Már Matthíasson (Sjúkraþj.)
Kamilla Ósk Jensdóttir (Liðsstj.)
Armandas Leskys (AÞ)

Gul spjöld:
Hannah McLaughlin ('60)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Blikar vinna 0:5 stórsigur Breiðablik mjög góðar í dag og eiga þennan sigur skilið.

Takk fyrir mig, skýrsla væntanleg.
90. mín
+2 í uppbót
88. mín
Stórsókn Blika! Blikar fá tvö góð færi í röð en Lauren ver bæði færin mjög vel og nær að handsama boltann.
85. mín
Leikurinn hefur róast mikið eftir fimmta mark Blika.
83. mín
Inn:Guðrún Þórarinsdóttir (Breiðablik) Út:Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik)
Ása og Karitas voru mjög góðar hér í dag.
83. mín
Inn:Lilja Þórdís Guðjónsdóttir (Breiðablik) Út:Karitas Tómasdóttir (Breiðablik)
80. mín
Agla í færi! Ólöf mjög sterk á kantinum og kemur boltanum á Öglu sem kemst í gott skotfæri en skýtur yfir.

Þarna var hún ekki langt frá þrennunni.
73. mín
Inn:Rut Sigurðardóttir (Gri/Nja) Út:Natasha Anasi (Gri/Nja)
73. mín
Inn:Lea Björt Kristjánsdóttir (Gri/Nja) Út:Sigríður Emma F. Jónsdóttir (Gri/Nja)
73. mín
Inn:Júlía Rán Bjarnadóttir (Gri/Nja) Út:Sophia Faith Romine (Gri/Nja)
71. mín
Inn:Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Breiðablik) Út:Líf Joostdóttir van Bemmel (Breiðablik)
Líf frábær í dag
67. mín MARK!
Líf Joostdóttir van Bemmel (Breiðablik)
Stoðsending: Katelyn Duong
Þær eru að ganga frá þeim!!! Líf fær boltann á miðjum vellinum og á frábæran sprett upp allan vallarhelminginn og klárar vel framhjá Lauren í markinu
65. mín
Inn:Tinna Hrönn Einarsdóttir (Gri/Nja) Út:Danai Kaldaridou (Gri/Nja)
64. mín MARK!
Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Karitas Tómasdóttir
Frábærlega gert! Karítas vinnur boltann á vallarhelming heimakvenna og kemur með rosalega góðan bolta inn á teiginn á Öglu Maríu sem skallar boltann vel í fjærhornið
60. mín Gult spjald: Hannah McLaughlin (Gri/Nja)
Fær gult fyrir að ýta frá sér eftir að það var brotið á henni
58. mín
Inn:Sunna Rún Sigurðardóttir (Breiðablik) Út:Edith Kristín Kristjánsdóttir (Breiðablik)
58. mín
Inn:Ása Björg Einarsdóttir (Gri/Nja) Út:Hildur Katrín Snorradóttir (Gri/Nja)
51. mín MARK!
Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Líf Joostdóttir van Bemmel
Blikar bæta við! Blikar vinna boltann á miðjum vellinum, Líf fær hann og vippar boltanum í gegn á Öglu sem klárar þetta vel í gegnum klofið á Lauren í markinu.

Skellur fyrir Gri/Njar konur sem höfðu byrjað þennan seinni hálfleik vel.

50. mín
Dauðafæri!! Alveg sama uppskriftinn af færinu áðan. Rakel kemur með frábæran bolta inn á Emmu Nicole sem setur hann yfir í dauða færi en setur hann yfir.
47. mín
Strax komið færi! Rakel gerir frábærlega á kantinum og kemur með fyrigjöfina á kollin á Emmu sem skallar yfir.
46. mín
Þá er þetta komið á stað aftur. Breiðablik sparka þessum seinna hálfleik af stað.
45. mín
Hálfleikur
Fjörugur fyrri hálfleikur á enda. Breiðablik leiðir 0-2. Breiðablik hafa verið hættulegar fram á við og nýtt sína sénsa vel.

Gri/Njar hafa átt góðar stöður og fín færi sem þær hafa ekki nýtt sér.

43. mín
Gri/Njar fá hornspyrnu.

Hættuleg hornspyrna sem skoppar í teil Blika, þær hreinsa en ekki langt. Gri/Njar fá boltann fyrir utan teig og koma skoti á markið sem flaug yfir.
41. mín
Heimakonur fá aukaspyrnu í góðri fyrirgjafarstöðu.

Hanna McLaughlin sterk í boxinu og nær að flikka boltanum í áfram og hann rennur framhjá.
37. mín
Hættulegt! Sigríður Emma með frábæra fyrirgjöf inn á teig Blika þar sem Emma Nicole er hársbreidd frá því að ná snertingu á boltann í dauðafæri.
36. mín
Færi! Edith kemst í frábæra stöðu í teig Gri/Njar, sendir boltann fyrir á Öglu Maríu en sendingin er erftið í mittishæð og Agla setur boltann yfir með knénu.
35. mín
Heimakonur aðeins að láta taka til sín þessa stundina, eru að komast í flottar stöður en ná ekki að finna færi.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
33. mín
Löng sókn Gri/Njar endar á skoti frá Maci Nicole sem fer yfir.
26. mín
Herdís heppinn þarna! Herdís kærulaus í uppspili Blika, hún sendir boltann beint á Emmu Nicole sem nær sem betur fer fyrir hana ekki að koma boltanum fyrir sig og Blikar vinna boltann aftur.
22. mín
Þarna hefðu þær getað gert betur! Frábær sókn Gri/Njar endar á misheppnaðri sendingu frá Lily í gegn ætlaða Sophiu Romine.

20. mín
Blikakonur fá aukaspyrnu á ágætis stað. Agla María neglir á markið en aukaspyrnar og boltinn fer framhjá.
15. mín MARK!
Katelyn Duong (Breiðablik)
Blikakonur refsa! Agla María kemur með frábæran bolta í gegn á Ásu sem fellur niður í baráttunni við Natöshu, eftir það berst boltinn á Katelyn sem klárar þetta á einfaldan hátt í nánast autt marki.

Hreinn dómari hafði líklega dæmt víti á Natöshu ef Katelyn hefði ekki mætt inn á teiginn og skorað.
14. mín
Gott samspil hjá Lily og Sigríði Emmu. Emma kemst í skotfæri rétt fyrir utan teig Blika kvenna en Blikar komast fyrir.
9. mín
Frábær varsla! Lily Farkas með gott skot að marki Breiðabliks en Herdís ver þetta mjög vel í horn.

Breiðablik gerðu vel að verjast hornspyrnunni.
6. mín
Smá hætta við mark Gri/Njar. Líf kemst í góða fyrirgjafastöðu og gefur góðan bolta fyrir en Lauren handsamar boltann.
1. mín MARK!
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik)
Þetta tók ekki langan tíma! Lauren Kellett markmaður Gri/Njar hrasar þegar hún ætlar að sparka boltanum upp völlin og boltinn fer beint á Ásu sem lyftir boltanum vel í markið.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er komið af stað! Grindavík/Njarðvík sparka þessu í gang.
Fyrir leik
Liðin eru að labba inn á völlinn og gera sig klárar.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindinn! Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík gerir eina breytingu á sínu liði frá 1-1 jafnteflinu gegn ÍBV í síðustu umferð. Rakel Sigurðardóttir kemur inn í liðið á kostnað Ásu Bjargar Einarsdóttur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Ian Jeffs þjálfari Breiðabliks gerir einnig eina breytingu á sínu liði eftir 2-3 tap gegn FH í síðustu umferð. Líf Joostdóttir van Bemmel kemur inn í liðið og Ólöf Sigríður Kristinsdóttir sest á bekkinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómaratríóið Dómari leiksins í dag er hann Hreinn Magnússon og honum til halds og trausts eru þau Kristofer Bergmann og Eydís Ragna Einarssdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Breiðablik Breiðablik hafa farið lista vel af stað í deildinni og sitja í 1. sæti með 5 sigra og eitt tap.

Tapið kom gegn FH í æsispennandi leik í síðustu umferð og verður fróðlegt að sjá hvernig liðið bregst við því bakslagi í leiknum í dag.

Markahæsti leikmaður Breiðabliks er Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir með 4 mörk og stuttu á eftir henni er hún Agla María Albertsdóttir með 3 mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Grindavík/Njarðvík Gri/Njar eru nýliðar í Bestu deildinni og þær hafa farið nokkuð vel af stað í ár. Liðið situr í 6. sæti eftir 6 umferðið með 8 stig og komið í 8. liða úrslit í Mjólkurbikarnum í þokkabót eftir sigur á Val í 16. liða úrslitunum.

Natasha Anasi og Sophia Romaine eru markahæstar í liði Gri/Njar með 2 mörk hver.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Arnar Páll spáir Blikasigri Fótboltaþjálfarinn Arnar Páll Garðarsson fékk það verkefni að spá í leiki umferðarinnar.

Grindavík/Njarðvík 1 - 3 Breiðablik (14:00)
Mest spennandi leikur umferðarinnar. Hér fáum við opnari leik og jafnvel smá vott af Samba bolta. Ég bið um opinn leik og 1-3 sigur Breiðabliks. Ása fagnar landsliðssæti með tvennu.

Vonum að spá hans um fjörugan og opin leik rætist.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Ása í landsliðið Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir markahæsti leikmaður Breiðabliks á tímabilinu hingað til var kölluð upp í landsliðið á dögunum.

Þetta er í fyrsta sinn sem Ása er valin í A-landslið kvenna en hún á að baki fjölda leikja fyrir yngri landslið Íslands.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Fyrir leik
7. umferðin 7. umferðin lítur svona út:

Í gær:
19:15 Valur 0-1 Þróttur

Í dag
14:00 Grindavík/Njarðvík-Breiðablik
14:00 FH-Fram
14:00 Þór/KA-Víkingur R.
14:00 Stjarnan-ÍBV

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


7. umferðin er síðasta umferðin fyrir tveggja vikna landsleikjarhlé þar sem Íslenska kvennalandsliðið spilar síðustu tvo leikina í undankeppni heimsmeistaramótsins 2027 gegn Úkraínu og Spáni dagana 5 og 9 júní.


Fyrir leik
Verið velkomin á JBÓ-völlinn! Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin á beina textalýsingu leiks Grindavík/Njarðvík-Breiðablik í 7. umferð Bestu deildar kvenna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
3. Elísa Viðarsdóttir
4. Elín Helena Karlsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir (f)
8. Katelyn Duong
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('83)
15. Edith Kristín Kristjánsdóttir ('58)
17. Karitas Tómasdóttir ('83)
18. Kristín Dís Árnadóttir
19. Líf Joostdóttir van Bemmel ('71)
27. Barbára Sól Gísladóttir
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
12. Taylor Kane (m)
5. Olga Ingibjörg Einarsdóttir
6. Mikaela Nótt Pétursdóttir
9. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir ('71)
10. Bryndís Arna Níelsdóttir
21. Guðrún Þórarinsdóttir ('83)
26. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir ('83)
29. Sunna Rún Sigurðardóttir ('58)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Ian David Jeffs (Þ)
Jóhanna Björk Gylfadóttir (Sjúkraþj.)
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (AÞ)
Stefán Logi Magnússon (AÞ)
Hjörtur Fjeldsted (Styrktarþj.)
Sæmundur Arnór Sigurðsson (Liðsstj.)
Gunnar Birgisson (AÞ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: