Fotbolti.net
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Lengjudeild karla
AVIS völlurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
2 - 0
Grindavík
Grindavík
Kári Kristjánsson 39'1 - 0Örn Bragi Hinriksson 71'2 - 0
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Leik lokið!
Öruggur sigur Þróttara staðreynd! Viðtöl og skýrsla væntanleg.
91. mín
Þrjár mínútur í uppbót
90. mín
Frábær sending fyrir markið frá Magnúsi Þórðar sýndist mér endar á fjær þar sem Eiríkur Blöndal var næstum búin að bæta við þriðja markinu en Hjörvar Daði lokaði vel.
88. mín
Það er svolítið tilfinningin að bæði lið séu bara að bíða eftir lokaflautinu. Lítið í gangi síðustu mínútur.
Þróttur R.
88. mín
InnStefán Þórður Stefánsson
ÚtKolbeinn Nói Guðbergsson
82. mín
Hvernig var þetta ekki þriðja markið!?
Kári Kristjáns á tilraun fyrir utan teig sem fer inn í þvöguna og endar hjá Magnúsi Þórðarsyni sem kemur á ferðinni aleinn á fjærstöng en lyftir boltanum yfir markið.
Grindavík
80. mín
Gult spjald

Stefán Jón Friðriksson

Fer full geyst í Magnús Þórðarson og kemst í bókina.
Grindavík
79. mín
InnValur Þór Hákonarson
ÚtGunnleifur Orri Gunnleifsson
Þróttur R.
79. mín
InnViktor Steinarsson
ÚtSigurður Egill Lárusson
78. mín
Gunnleifur Orri með skemmtilega takta og á flotta tilraun sem fer af varnarmanni og aftur fyrir.
Grindavík
74. mín
InnViktor Guðberg Hauksson
ÚtDamir Muminovic
73. mín
Magnús Þórðarson skorar fyrir Þrótt en flaggið komið á loft. Þróttarar ekki langt frá því að ganga bara endanlega frá þessu.
Grindavík
72. mín
InnMikael Máni Þorfinnsson
ÚtRúnar Ingi Eysteinsson
Grindavík
72. mín
InnStefán Jón Friðriksson
ÚtHaraldur Björgvin Eysteinsson
Þróttur R.
71. mín
Þróttur tvöfaldar!

Örn Bragi Hinriksson

Áttu frábæra fyrirgjöf fyrir markið frá vinstri fyrst sem var nálægt því að verða að marki en Þróttarar héldu sókninni lifandi og komu boltanum aftur fyrir markið frá hægri og boltinn fellur svo fyrir fæturna á Erni Braga sem er með opið mark fyrir framan sig og klárar þetta vel.
70. mín
Grindvíkingar að undirbúa þrefalda skiptingu sýnist mér á bekknum.
67. mín
Rúnar Ingi með skalla yfir markið eftir fínasta bolta fyrir markið frá Heiðari Snær sýndist mér það vera. Grindvíkingar reyndu að kalla eftir vítaspyrnu stuttu áður en það voru mjög veik köll sem Gunnar Oddur réttilega hlustaði lítið á.
Þróttur R.
66. mín
Gult spjald

Eiríkur Þorsteinsson Blöndal

Rífur aftan í Grindvíking og fer í svörtu bókina.
66. mín
Fyrirgjöf frá Erni Braga of innarlega og beint í fangið á Hjörvari Daða.
Þróttur R.
64. mín
InnMagnús Þórðarson
ÚtVilhjálmur Kaldal Sigurðsson
Þróttur R.
64. mín
InnTryggvi Snær Geirsson
ÚtUnnar Steinn Ingvarsson
62. mín
Daaauðafæri!!
Grindvíkingar sækja hratt og Rafael Victor kemur boltanum út á Inga Sig sem á flotta sendingu á Rúnar Inga sem er svo einn á móti Ladda sem kemur vel út á móti og lokar á hann! Grindvíkingar munu ekki fá mikið betri færi en þetta í leiknum!
59. mín
Varsla!
Allt í einu er Örn Bragi einn á móti Hjörvari Daða og lætur vaða fínasta skot sem er beint á Hjörvar Daða sem ver þetta vel. Grunamlega einn allt í einu í teignum.
58. mín
Þróttarar hættulegir þegar þeir komast á boltann.
56. mín
Grindavík búnir að þrýsta Þrótti neðarlega á völlinn en eru ekki að ná að skapa sér færi.
50. mín
Brynjar Gautur með fyrirgjöf sem fer í gegnum allan pakkann en virðist fara af Grindvíkingi því Þróttarar fá innkast.
48. mín
Þróttur fær aukaspyrnu sem Kári Kristjáns spakar fyrir markið en Grindvíkingar ná að díla vel við þetta.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Þróttarar sparka okkur af stað aftur.
Þróttur R.
46. mín
InnÞórhallur Ísak Guðmundsson
ÚtAron Dagur Birnuson
Markmannsskipti í hálfleik
45. mín
Hafliði Breiðfjörð er með myndavélina á lofti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
45. mín
Rándýr sveit börumanna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
45. mín
Skemmtilegur fyrri hálfleikur að baki þar sem heimamenn í Þrótt leiða í hálfleik. Þróttur verið hættulegri en Grindvíkingar sýnt að þeir geti líka alveg verið hættulegir á breikinu. Fáum vonandi áframhaldandi skemmtun í seinni hálfleik en tökum okkur stutta pásu og snúum svo aftur með síðari hálfleikinn.
45. mín
+1 Örn Bragi í þröngu færi en skóflar boltanum yfir.
45. mín
Hjörvar Daði!
Þróttarar að hóta öðru markinu og spila Sigurð Egil einan á móti Hjörvari Daða sem gerir frábærlega að loka á hann! Þróttarar ná frákastinu en Grindvíkingar verjast vel og koma boltanum burt.
Grindavík
43. mín
Gult spjald

Haraldur Björgvin Eysteinsson

Fyrsta gula spjaldið í kvöld og hann ætlaði varla að trúa því sjálfur.
Þróttur R.
39. mín
Ísinn er brotinn!

Kári Kristjánsson (stoðsending: Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson)

Þróttarar búnir að hóta þessu!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eru vinstra megin við D-bogann í stuttu spili og Vilhjálmur Kaldal leggur boltann fyrir Kára Kristjáns sem lætur svo vaða og nú fór það inn! ÞRÓTTARAR LEIÐA!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
39. mín
Kári Kristjáns gerir ágætlega að koma sér í skotfæri en tilraunin er hátt yfir markið.
35. mín
Sigurður Egill á skot beint í vegginn úr aukaspyrnunni. Boltanum rúllað létt til hans en tilraunin beint í vegginn.
34. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað.
Þróttur að fá aukaspyrnu á hættulegum stað þegar brotið er á Vilhjálmi Kaldal rétt fyrir utan vítateig hægra megin.
33. mín
Brynjar Gautur
Fær boltann fyrir utan teig og lætur vaða gott skot með jörðinni sem Hjörvar Daði þarf að skutla sér á og slá framhjá.
32. mín
Færi!
Flott samspil milli Vilhjálms Kaldal og Kára Kristjáns inn á teig endar með skoti frá Kára sem fer framhjá markinu á fjær. Þarna var tækifæri!
30. mín
Kári Kristjáns lyftir boltanum innfyrir í hlaup fyrir Vilhjálm Kaldal sem lætur vaða fyrir utan teig hátt yfir. Það var ekki mikil trú í þessari tilraun.
29. mín
Kári Kristjáns með skot fyrir utan teig en Hjörvar Daði er með á lás.
27. mín
Vilhjálmur Kaldal með tilraun sem fer framhjá markinu. Þróttur tekur innkast og Villi Kaldal fer inn á teig í þröngu færi og á tilraun sem fer framhjá markinu.
25. mín
Leikurinn er stopp
Aron Dagur er sestur og fær aðhlynningu. Vonandi ekkert alvarlegt og hann getur haldið leik áfram án vandræða.
24. mín
Rafael Victor með lausan skalla að marki. Christian Bjarmi átti fínustu fyrirgjöf sem Aron Dagur mætti út í en greip í tómt. Grindavík hélt lífi í sókninni og komu með aðra fyrirgjöf sem Rafael Victor skallaði á markið.
22. mín
Þróttarar að reyna spila sig í gegnum vörn Grindavíkur og vinna hornspyrnu.
19. mín
Haraldur Björgvin með tilraun fyrir Grindavík sem endar úti á bílastæði.
17. mín
Grindvíkingar aðeins að ógna þessa stundina. Halda vel í boltann og reyna að koma Rúnari Inga í færi en hann notar hendurnar of mikið að mati dómara í baráttu við varnarmenn Þróttara og er dæmdur brotlegur þegar hann reynir að leggja fyrir sig boltann.
14. mín
Frábær tækling
Christian Bjarmi rennir boltanum inn á Rafael Victor í teignum sem er að fara í skotið þegar Baldur Hannes rennir sér fyrir skotið.
11. mín
Vilhjálmur Kaldal reynir skot en það fer framhjá.
9. mín
Grindvíkingar að leita af Rúnari Inga með löngum bolta en flaggið á loft.
6. mín
Örn Bragi með stórhættulegan bolta fyrir markið beint í hættusvæðið en Grindvíkingar koma boltanum frá áður en hann ratar á Vilhjálm Kaldal. Frábært hlaup frá Erni Braga sem bjó sér til þessa stöðu vel.
5. mín
Fínasta horn frá Grindavík ratar á fjær þar sem Damir skallar hann fyrir markið í eitthvað kraðak en Þróttarar verjast þessu vel.
4. mín
Rúnar Ingi jarðar Brynjar Gaut inní teig Þróttara og vinnur horn. Brynjar Gautur fann vel fyrir þessu höggi.
3. mín
Tveim hornspyrnum seinna eru Grindvíkingar mættir í skyndisókn en Þróttarar verjast því vel.
1. mín
Sigurður Egill með flottan bolta fyrir markið og Vilhjálmur Kaldal á skalla að marki sem Hjörvar Daði slær í horn.
1. mín
Þetta er farið af stað hér í Laugardalnum og það eru gestirnir frá Grindavík sem sparka okkur í gang.
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar
Adam Ægir Pálsson, sem hefur leikið vel með Valsmönnum í upphafi tímabilsins, tók að sér það verkefni að spá í leiki umferðarinnar. Þróttur R. 3 - 0 Grindavík Þegar litli strákurinn minn hann Siggi er á svona eldi með einhver 10 mörk og assist í sumar vinnur Þróttur þetta 3-0. Mingus og Siggi með tvö þrátt fyrir það að vera helvíti hátt uppi þessa dagana.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Innbyrðis viðreignir
Samkvæmt nýjum vef KSÍ hafa þessi lið mæst 48 sinnum í mótsleik á vegum KSÍ. Á síðustu leiktíð skiptu liðin með sér sigrunum en þau unnu bæði sína útileiki í fyrra. 18.maí 2025: Þróttur R. 2-4 Grindavík 25.Júlí 2025: Grindavík 1-2 Þróttur R. Grindavík hefur yfirhöndina þegar horft er til innbyrðisviðreigna síðustu ár en Grindvíkingar hafa 23 sinnum unnið. Þróttur R. hefur 19 sinnum unnið. Liðin hafa skilið jöfn 6 sinnum.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Fyrir leik
Þróttur R.
Þróttarar hafa verið að hiksta svolítið eftir frábæra byrjun á mótinu. Þróttur vann fyrstu þrjá leiki sína en hafa ekki sigrað í síðustu þrem leikjum sínum og tapað síðustu tveim í röð. Þróttur tapaði í síðustu umferð gegn Gróttu á Avis vellinum 2-3 og þeir vonast til þess að hrista úr sér hrollinn í kvöld og komast aftur á sigurbraut.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Grindavík
Grindvíkingar voru síðasta vígið til að falla í ósigur í síðustu umferð en þeir höfðu byrjað mótið taplausir í fyrstu fimm umferðunum með einn sigur og fjögur jafntefli. Afturelding sá hinsvegar til þess að fyrsti tapleikurinn kæmi í síðustu umferð þegar þeir lögðu Grindvíkinga 3-1 á Stakkavíkurvellinum. Grindvíkingar hafa skorað 7 mörk og fengið á sig 7 mörk og eru því sléttir á markatölu fyir kvöldið í kvöld. Aðeins Völsungur [4] og Njarðvík [6] hafa skorað minna og aðeins Njarðvík [6] hefur fengið færri mörk á sig.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymið
Þriðja liðið í kvöld skipa Gunnar Oddur Hafliðason á flautunni og honum til aðstoðar verða Kristofer Bergmann og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage. Eftirlitsmaður KSÍ er Bergur Þór Steingrímsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Velkomin á Avis völlinn!
Heil og sæl! Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Avis vellinum þar sem Þróttur R. og Grindavík eigast við til þess að loka 7. umferð Lengjudeild karla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.