SKÝRSLAN: Siggi Lár sjóðheitur í Árbænum
Hvað réði úrslitum?
Frammistaða Þróttar heilt yfir var mun betri en þeirra Fylkismanna. Þróttur gaf mjög lítið af færum framan af á meðan Fylksimenn voru mun opnari til baka og nýttu gestirnir sína færi vel og komu sér í þægilega stöðu og sigldu síðan sigrinum heim.
Bestu leikmenn
1. Sigurður Egill Lárusson
Reynsluboltinn var allt í öllu í sóknarleik gestanna og skoraði tvö mörk ásamt því að skila góðu varnarframlagi. Auðvelt val.
2. Magnús Þórðarson
Var virkilega góður í hálfsvæðinu í sóknarleik Þróttara og skaapaði mikið af hættulegum stöðum fyrir sína menn ásamt því að skora hið mikilvæga þriðja mark.
Atvikið
Annað Mark Sigga Lár kom á gríðarlega mikilvægum tíma eftir að Fylkismenn höfðu átt sinn besta kafla í leiknum. Hægri fóturinn á Sigga reyndist Ólafi í markinu of mikið og Þróttarar sigldu þessu heim eftir það.
Hvað þýða úrslitin?
Toppbaráttan er æsispennandi og þessi úrslit gera hana enn þéttari þar sem aðeins eitt stig skilur efstu fjögur liðin að. Þróttur er með 16 stig og jafnir Aftureldingu að stigum en eru á toppnum vegna markatölu. Fylkir situr síðan í 3. sæti með 15 stig, fyrir ofan HK á markatölu sem eru einnig með 15 stig.
Vondur dagur
Erfitt að velja einhvern einn en það er klárlega Fylkismaður sem tekur þetta á sig. Vörn Fylkis var of opin og sundruð sem leyfði Þrótturum að keyra á þá trekk í trekk. Því þarf fyrirliðinn, Orri Sveinn, að taka þetta á kassann í dag.
Dómarinn - 6
Leyfði leiknum að fljóta nokkuð vel og spjaldaði þegar átti við. Eitt vafaatriði í fyrri hálfleik þegar Fylkismenn vildu vítaspyrnu en annars vel dæmt.


