Leik lokið!
Ekki sekúndu bætt við.
Íslenska liðið sá takmarkað til sólar í kvöld og sigurinn er fyllilega sanngjarn gegn liði sem við áttum litla möguleika gegn. Margt sem við getum lært af leik kvöldsins og vonandi er þetta varða á þeirri vegferð sem liðið er á.
Ljósu punktarnir eru að Linda Líf Boama er komin á blað með landsliðinu.
Viðtöl úr Laugardal eru væntanleg.
89. mín
2517 áhorfendur lögðu leið sína á Laugardalsvöll í kvöld.
84. mín
Kunnulegt stef mistök = refsing
Aitana Bonmatí
Bonmati leikur til vinstri frá D-boga og lætur vaða með vinstri fæti og boltinn syngur í netinu. Þetta hefur bara verið of einfalt fyrir lið Spánar í kvöld.83. mín
Hætta í teig Íslands og boltinn liggur í netinu. Búið að dæma brot á Ednu Imade fyrir klafs í teignum svo það telur ekki.
79. mín
Næstum sjálfsmark
Bonmati að leika listir sínar úti til hægri, setur boltann fyrir markið þar sem boltinn hrekkur af Örnu í átt að marki en Ceci rétt nær að slá boltann frá áður en hann fer yfir línuna.
77. mín
InnBirta Georgsdóttir
ÚtSandra María Jessen
76. mín
Aitana Bonmatí með skalla að marki eftir horn en boltinn beint á Cecilíu.
73. mín
Karólína Lea með skot úr þröngu færi sem Spánverjar komast fyrir.
Ísland fær horn.
71. mín
InnMaría Méndez
ÚtIrene Paredes
68. mín
Og þær spænsku skipta þá bara um gír!
Cllaudia Pina (stoðsending: Eva Navarro)
"Cutback" sending frá hægri vængnum inn á teiginn frá Navarro, Þar mætir Claudia Pina og setur hann í fyrsta úr teignum í stöngina inn.67. mín
Íslenska liðið verið mun ákveðnara í sínum aðgerðum í síðari hálfleik heldur en þeim fyrri, pressan að mörgu leyti verið markvissari og liðið "þorað" meira.
61. mín
InnHlín Eiríksdóttir
ÚtDiljá Ýr Zomers
61. mín
InnArna Eiríksdóttir
ÚtIngibjörg Sigurðardóttir
58. mín
Fyrsta landsliðmark Lindu!
Linda Líf Boama (stoðsending: Karólína Lea Vilhjálmsdóttir)
Virkilega vel útfærð skyndisókn Íslands. Karólína Lea vinnur boltann og Ísland brunar upp, Karólína finnur Lindu í hlaupinu inn á teiginn til hægri, hún tekur vel á móti boltanum og klárar vel á nærhornið fram hjá Coll í marki Spánar.57. mín
InnEva Navarro
Út Ona Batlle
57. mín
InnClara Serrajordi
ÚtPatri Guijarro
54. mín
Alexia Putellas fær langan tíma til að athafna sig í teignum eftir sókn Spánar og nær að endingu skotinu. Setur það sem betur fer yfir markið.
53. mín
Besta færi Íslands
Ísland vinnur boltann strax eftir innkastið. Linda Líf finnur Karólínu í teignum sem reynir skotið en setur boltann rétt framhjá stönginni.
52. mín
Innkast dæmt af Íslandi þar sem Sædís var of lengi að athafna sig.
50. mín
Gæðin eru rosaleg
Vicky López
Misheppnuð sending Íslands á eigin vallarhelmingi og boltinn til Spánar, hann sendur rakleitt á Vicky sem stendur við D-bogann og hikar ekkert heldur neglir boltanum óverjandi í netið. 4-0 og haldi þetta svona áfram gæti þetta orðið ansi ljótt.46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
46. mín
InnCllaudia Pina
ÚtSalma Paralluelo
46. mín
InnAitana Bonmatí
Út Mariona Caldentey
46. mín
InnLinda Líf Boama
ÚtThelma Karen Pálmadóttir
46. mín
InnHildur Antonsdóttir
ÚtÍda Marín Hermannsdóttir
45. mín
Þurfum að þora að pressa þær Spænsku almennilega þegar þær eru á boltanum. Höfum engu að tapa. Erum að gefa þeim alltof stór svæði fyrir aftan bakverðina okkar og á milli hafsenta og miðju til að spila í.
— Orri Rafn Sigurdarson (@OrriRafn) June 9, 2026
Við getum spilað mun betri varnarleik enn þetta og við vitum það.
45. mín
Spánverjar ráðið lögum og lofum á vellinum og leiða verðskuldað. Ísland á engan hátt ráðið við leik þeirra í fyrri hálfleik enda Spánn sýnt afhverju þær eru besta lið í heiminum í dag.
En við þurfum að gera betur varnarlega klárlega, þær eru að fá of mikin tíma og pláss og hafa refsað fyrir það.
45. mín
Þetta var of auðvelt
Salma Paralluelo (stoðsending: Ona Batlle)
Ona Batlle alein úti á hægri vængnum og hefur þann tíma og það pláss til að gera hvað sem henni dettur í hug. Salma Paralluelo alein í teignum, fær boltann og skorar auðveldlega af stuttu færi.43. mín
Sandra María tapar boltanum klaufalega og Spánverjar bruna upp, Sandra keyrir það eina rétta og keyrir á eftir þeim og brýtur til að stöðva skyndisókn.
Vinnusemin til fyrirmyndar þar að vanda.
41. mín
Ísland með skot að marki
Fínn kafli Íslands sem heldur boltanum lengur en fyrr í leiknum. Sóknin endar með skoti frá Alexöndru af talsverðu færi sem fer framhjá markinu.
37. mín
Ein mistök og Spánn refsar
Edna Imade (stoðsending: Ona Batlle)
Ingibjörg reynir að hreina boltann frá en setur hann beint í Batlle, boltinn fellur þægilega fyrir hana hægra megin í teignum og getur hún valið að skjóta sjálf eða setja boltann fyrir markið. Hún velur seinni kostinn og finnur þar Imade sem skorar þægilega úr miðjum markteignum.35. mín
Patri með skot eftir enn eina sóknarlotu Spánar. Úr ágætri stöðu í D-boganum en setur boltann yfir markið.
32. mín
Alexia Putellas með tilraun að markið eftir darraðardans í teig Íslands, setur boltann framhjá afturfyrir sig af stuttu færi.
30. mín
Salma Paralluelo með skot eftir hraða sókn Spánar, Glódís mætt og kemur sér fyrir skotið.
24. mín
Spánn fær aukaspyrnu á fínum stað eftir að Karólína Lea brýtur á Patri.
Vantar ekki spyrnugetuna í þetta spænska lið.
Sending inn á teiginn en Sandra María skallar boltann frá.
23. mín
Vicky López að ógna, með skot úr teignum en Cecilía ver og heldur boltanum.
17. mín
Frábær varsla
Salma Paralluelo í dauðafæri í markteignum eftir sendingu frá Vicky, nær boltanum eftir fyrirgjöf og setur boltann á markið en Cecilía vandanum vaxin og ver vel.
17. mín
Yfirburðir Spánar miklir úti á velli og lið Íslands lítið náð að "klukka" þær varnarlega til þessa í leiknum.
12. mín
Salma Paralluelo í hörkufæri í teignum en Diljá rennir sér fyrir skot hennar.
Spánn fær hornspyrnu.
Hornið tekið stutt, Vicky Lopez með boltann við vinstra vítateigshorn og reynir sendingu inn á teiginn sem hafnar í fangi Cecilíu.
8. mín
Ekki byrjunin sem íslenska liðið vonaðist eftir.
5. mín
Vá!
Vicky López (stoðsending: Patri Guijarro)
Spænska liðið heldur boltanum vel úti á hægri vængnum og sprengir svo með virkilega snotru þríhyrningsspili. Patri leggur boltann inn á teiginn fyrir Vicky sem skorar með snyrtilegu skoti. Þær eru ótrúlega góðar í því að láta boltann vinna fyrir sig.3. mín
Vicky López í prýðis skotfæri í D-boganum á teig Íslands, velur að senda boltann frekar út á væng og setur of mikið púður í sendinguna sem fer afturfyrir.
Þær spænsku mega taka svona ákvarðanir í allt kvöld.
1. mín
Þetta er farið af stað í Laugardal. Það er Ísland sem hefur hér leik og Karólína Lea sparkar þessu af stað.
Áfram Ísland!
Fyrir leik
2x slagur við ríkjandi heimsmeistara!
Bæði kvenna og karlalandslið Íslands eigast við ríkjandi heimsmeistara í leikjum sínum núna með nokkra klukkustunda millibili.
Stelpurnar eigast þá auðvitað við lið Spánar sem hefst eftir skamma stund!
Strákarnir okkar hins vegar mæta Argentínu í vináttulandsleik í Auburn Alabama klukkan 01:00 á íslenskum tíma.


Fyrir leik
Uppstilling Íslands

Fyrir leik
Byrjunarliðið klárt!
Steini þjálfari gerir tvær breytingar á liðinu sem lagði Úkraínu að velli á föstudaginn.
Diljá Ýr Zomers og Ída Marín Hermannsdóttir koma inn fyrir Emilíu Kiær Ásgeirsdóttur og Hildi Antonsdóttur sem setjast á bekkinn.
Byrjunarlið:
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
3. Sandra María Jessen
4. Glódís Perla Viggósdóttir (f)
6. Ingibjörg Sigurðardóttir
8. Alexandra Jóhannsdóttir
9. Diljá Ýr Zomers
10. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
17. Ída Marín Hermannsdóttir
18. Guðrún Arnardóttir
19. Sædís Rún Heiðarsdóttir
20. Thelma Karen Pálmadóttir

Fyrir leik
Fyrri leikurinn í Castellon
Fyrri leikur liðanna fór fram í Castellon þann 3. mars sl. þar sem Spánverjar fóru með 3-0 sigur af hólmi. Clàudia Pina gerði þá fyrsta mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks eftir umdeilt atvik.
Hún bætti svo við öðru marki sínu í seinni hálfleik áður en Edna Imade rak smiðshöggið og innsiglaði 3-0 sigurinn.
Íslenska liðið var þétt varnarlega og átti Cecilía hverja meistaravörsluna á fætur annarri. Hins vegar var lítið að frétta í sóknarleiknum og spilaðist leikurinn mikið til á vallarhelmingi Íslands.
Spánn sigraði England 4-0 á dögunum og koma því inn í þennan leik sjóðheitar. Það mun því mæða mikið á öftustu línu Íslands ef ekki á illa að fara.

Fyrir leik
Fréttir og viðtöl í aðdraganda leiksins
Fyrir leik
Staðan í riðlinum - Allt undir hjá Spáni en Ísland í umspil
Lokaleikirnir í riðlinum fara fram á sama tíma klukkan 19:00 í kvöld.
Ísland tekur á móti Spáni á Laugardalsvelli á meðan England mætir Úkraínu.Fyrir leiki kvöldsins er staðan í riðlinum svona:
Spánn - 12 stig
England - 12 stig
Ísland - 6 stig
Úkraína - 0 stig
Íslenska liðið hefur þegar tryggt sér 3. sæti riðilsins, með sigrinum á Úkraínu, í síðasta leik. Það breytir engu hvað gerist í kvöld, Ísland fer beint í umspilsleiki í haust þar sem mætt verður liði úr C-deild Þjóðadeildarinnar um sæti á HM í Brasilíu.
Fyrir Spánverja er hins vegar allt undir en þær eru jafnar Englandi að stigum á toppi riðilsins en með betri markatölu. Spánn verður því að vinna í kvöld til að tryggja sér HM-sætið beint ef England vinnur Úkraínu.
Sarina Wiegman, þjálfari Englands, viðurkenndi í gær að hún muni fylgjast stressuð með því hvað gerist hér í Reykjavík!

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Dómararnir í dag koma frá Slóvakíu
Með flautuna í dag er Miriama Bocková, henni til halds og trausts eru Miroslava Pastoreková og Martina Ukropova aðstoðadómarar.
Fjórði dómari í kvöld er svo Zuzana Valentová

Fyrir leik
Landsliðið kallar!
Verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu beint frá Laugardalsvelli þar sem stelpurnar okkar taka á móti heimsmeisturum Spánar.
Leikurinn hefst á slaginu 19:00!














