Leik lokið!
Mjög áhugaverðum leik lokið hér í Mosfellsbæ. Viðsnúningur hjá heimamönnum sem fara í undanúrslit í fyrsta skipti í sögu félagsins!
Skýrsla og viðtöl væntanleg síðar í kvöld.
Ég þakka fyrir mig.
96. mín
InnSævar Atli Hugason
ÚtGunnar Bergmann Sigmarsson
95. mín
Bart reynir skot frá miðju en hittir hann ekki vel.
93. mín
Gult spjald
Róbert Agnar Daðason
Gulum spjöldum rignir þessa stundina.91. mín
Gult spjald
Jökull I Elísabetarson
Enn eitt spjaldið og nú er það þjálfarinn.90. mín
Gult spjald
Guðmundur Kristjánsson
Mótmæli90. mín
5 mínútur í uppbótartíma. Ekki mikið lífsmark eftir í Stjörnunni.
89. mín
Seinna gula
Örvar Eggertsson
Pirrings hrinding inn á vítateig Aftureldingar.88. mín
Gult spjald
Aron Elí Sævarsson
Stoppa skyndisókn88. mín
Bart leikur listir sínar og kemur boltanum á Óðin sem kemur með boltann inn á teiginn en ekkert verður úr þessu.
86. mín
InnRóbert Agnar Daðason
ÚtJoacim Emil Godhei Holtan
84. mín
Gult spjald
Guðmundur Baldvin Nökkvason
Hlýtur gult spjald fyrir dýfu. Hann kvartar lítið svo þetta virðist hafa verið spot on hjá Twana.84. mín
InnGeorg Bjarnason
ÚtBirkir Már Sævarsson
84. mín
InnÞorri Mar Þórisson
ÚtDamil Serena Dankerlui
84. mín
InnBenedikt V. Warén
ÚtHaukur Örn Brink
83. mín
Stjarnan vill víti
Birnir setur boltann í höndina á Birki af stuttu færi en hún var alveg upp við líkamann og ekkert dæmt.
80. mín
Afturelding leggst aftar á völlinn og Stjörnumenn í leit að einhverri líflínu en komast ekkert áleiðis.
78. mín
Örvar Logi með skot í varnarmann og enn ein hornspyrna sem gestirnir fá.
78. mín
Stjarnan fær hornspyrnu
Þeir þurfa mark sem allra fyrst til að halda lífi í þessu.
75. mín
BIRKIR AÐ GERA ÚT UM LEIKINN
Birkir Már Sævarsson
Fær langan bolta í gegn frá Óðni og gerir þetta listilega vel. Tekur boltann með hægri fæti framhjá Árna Snæ og klárar með vinstri í sömu hreyfingunni. Ótrúlega gæðamikið mark og róðurinn orðinn afar þungur fyrir Stjörnuna.70. mín
Stjörnumenn nú í leit að jöfnunarmarki eftir þennan löðrung frá heimamönnum.
66. mín
HVAÐ ER AÐ GERAST!!!!????
Bart Kooistra (stoðsending: Bjartur Bjarmi Barkarson)
Bart Kooistra búinn að koma heimamönnum yfir eftir frábæran skalla. Bjartur lyfti honum á teiginn og Hollendingurinn svoleiðis stangaði boltann inn. Ótrúlegur viðsnúningur heimamanna. Rétt rúm mínúta á milli markanna!!64. mín
REYNSLUBOLTINN JAFNAR METIN
Birkir Már Sævarsson (stoðsending: Óðinn Bjarkason)
Óðinn með gríðarlega sterkan skalla á fjærsvæðinu sem hafnar í nærstönginni og fer nánast bara í hausinn á Birki og inn. Hann náði þó að stýra honum inn svo við hrósum honum fyrir það62. mín
InnArnar Breki Björnsson
ÚtHeiðar Ægisson
60. mín
Gult spjald
Örvar Eggertsson
Heimamenn fara loks yfir miðju og Örvari líst ekki á blikuna og tekur á sig gult.59. mín
Birnir Snær tekur fast skot fyrir utan teig Aftureldingar en yfir fer boltinn.
Heimamenn hafa ekki enn farið yfir miðju í síðari hálfleik.
57. mín
Birkir Már klobbar Örvar og stúkan ánægð með þann gamla.
54. mín
Haukur Brink með vinstri fótar skot sem Arnar Daði ver.
52. mín
Stjarnan fær enn eina hornspyrnu
Vel spilað hjá gestunum og Haukur setur boltann fyrir markið en Axel kemur þessu í horn.
49. mín
Birnir með hornspyrnu inn á teiginn sem Arnar Daði grípur.
47. mín
DAUÐAFÆRI
Guðmundur Baldvin með skot sem Arnar Daði ver fyrir fætur Emils sem tekur frákastið en Arnar nær að verja aftur.
Besta færi Stjörnunnar í leiknum.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
46. mín
InnTrausti Þráinsson
ÚtJón Vignir Pétursson
45. mín
Stjarnan stenst pressu seinustu mínútna en annars heldur rólegum fyrri hálfleik lokið.
Tökum okkur 15 mínútna hlé.
45. mín
Seinasti séns fyrri hálfleiksins
Afturelding á aukaspyrnu aftarlega á vallarhelmingi Stjörnunnar. Boltinn kemur inn á teiginn en ekkert verður úr þessu.
45. mín
Heimamenn liggja á Stjörnunni
Stjarnan stenst þunga pressu þar sem Óðinn náði góðu skoti sem Damil henti sér fyrir og mikill darraðadans myndast í kjölfarið.
45. mín
Gult spjald
Haukur Örn Brink
Í þriðja sinn sem hann rífur í Aron Elí sem labbaði framhjá honum og fyrsta spjaldið komið í hús.45. mín
4 mínútur í uppbót.
43. mín
Aftur langt innkast!!
Axel Óskar með boltann á teiginn og aftur fá heimamenn dauðafæri!
Nú var það Gunnar Bergmann sem setti boltann í stöngina af stuttu færi.
40. mín
DAUÐAFÆRI
Axel Óskar með langt innkast inn á teiginn og boltinn endar hjá Jón Vigni sem er aleinn í miðjum teignum og tekur boltann á lofti viðstöðulaust í grasið og yfir markið.
Langbesta færi leiksins!
38. mín
Örvar fer harkalega í Gunnar Bergmann sem liggur eftir og fær aukaspyrnu en Twana sleppir að lyfta því gula.
35. mín
10 mínútur eftir af fyrri hálfleik og við höfum í raun enn ekki fengið alvöru færi í leikinn að undanskildu markinu.
30. mín
Twana hefur leyft leiknum að fljóta mikið og bæði lið með menn liggjandi og bekkirnir farnir að kvarta yfir meintum brotum.
27. mín
InnÖrvar Eggertsson
ÚtAndri Rúnar Bjarnason
25. mín
Andri Rúnar er sestur og þarfnast aðhlynningar. Virðist vera þjáður aftan í lærinu sem er ekki gott.
21. mín
Stjarnan heldur mikið í boltann og Afturelding er framarlega á velinum en samt ekki að pressa af neinum ákafa. Þetta hefur verið rólegt eftir markið.
17. mín
Birnir snær á fleygiferð upp kantinn og laumar honum á Guðmund Baldvin sem nær ekki að koma boltanum á Emil og þriðja hornspyrna gestanna staðreynd.
14. mín
Birnir Snær brýtur af sér og neglir síðan boltanum 70 metra í burtu en sleppur einhvern veginn án spjalds. Twana óvenju rólegur yfir þessu.
13. mín
Önnur hornspyrna gestanna
Guðmundur Baldvin með boltann á nærstöngina en boltanum hreinsað frá.
11. mín
Andri Rúnar lúrir fyrir utan teig Mosfellinga og boltinn hrekkur á hann en skot hans fer yfir markið.
10. mín
Gott spil hjá heimamönnum og Bjartur kom með góðan bolta á milli markmanns og varnar en engin rauð treyja í teignum.
9. mín
Afturelding haldið mikið í boltann eftir markið.
5. mín
MAÐURINN SEM ÁTTI AÐ BYRJA Á BEKKNUM
Heiðar Ægisson
Það var hornspyrna frá Birni sem fór inn á nærsvæðið og var flikkað á fjærsvæðið af leikmanni Aftureldingar og Heiðar var ákveðnastur á fjærsvæðinu stangaði boltann inn. Fyrsta markið komið!5. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins er Stjörnunnar.
3. mín
Hinum 41 árs gamla Birki Má er stillt upp á hægri kantinum og er hann strax byrjaður að ógna með hlaupum inn fyrir.
1. mín
Ballið er byrjað!
Fyrir leik
Gustav Kjeldsen dettur út
Hann virtist finna fyrir í mjöðminni í upphituninni og teymið hefur metið hann óleikfæran. Í stað hans kemur Heiðar Ægison.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn
Jökull og Maggi hafa valið liðin fyrir slag kvöldsins.
Fyrir leik
Staðan á Garðbæingum
Stjörnumenn eru að endurheimta menn til baka fyrir leik kvöldsins en þeir Örvar Eggertsson, Benedikt Warén, Andri Rúnar Bjarnason og Heiðar Ægisson eru klárir í slaginn. Hins vegar taka Daníel Finns Matthíasson og Jóhann Árni Gunnarsson út leikbann.

Fyrir leik
Mosfellingar geta skrifað söguna
Afturelding hefur aðeins einu sinni áður komist í 8-liða úrslit í bikarnum og var það einmitt í fyrra. Með sigri í dag verður það þá í fyrsta skipti sem Afturelding mun leika í undanúrslitum. Mikið í húfi fyrir Mosfellina sem ætla að tjalda öllu til fyrir leik.

Fyrir leik
Leið Aftureldingar
Afturelding hóf leik einni umferð á undan Stjörnunni og byrjaði á 2-3 sigri gegn ÍR þar sem Joacim Holtan skoraði tvö mörk og Óðinn Bjarka eitt. Því næst var það Ýmir sem beið þeirra en sá leikur fór 6-1 þar sem Holtan skoraði aftur tvö mörk og Óðinn eitt en ásamt þeim voru Elmar Kári, Bart Kooistra og Róbert Agnar á skotskónum. Að lokum voru það Njarðvíkingar sem máttu þola 5-2 tap þar sem Óðinn skoraði í þriðja bikarleiknum í röð, Elmar Kári skoraði tvö mörk og Aron Elí og Bart Kooistra skoruðu einnig.

Fyrir leik
Leið Stjörnunnar
Stjarnan byrjaði á 2-1 sigri gegn Selfossi þar sem Emil Atlason setti bæði mörkin í síðari hálfleik en Einar Bjarki Einarsson minnkaði muninn á lokamínútum leiksins. Því næst var það sigur gegn KR, aftur 2-1 sigur, en sá leikur kom beint í kjölfar taps Stjörnunnar í deildinni gegn KR. Aftur skoraði Emil Atlason bæði mörk Stjörnunnar, nú bæði í fyrri hálfleik.

Fyrir leik
Þriðja liðið
Twana Khalid Ahmed fær traustið og er dómari leiksins, honum til halds og trausts eru Gylfi Már Sigurðsson og Egill Guðvarður Guðlaugsson sem aðstoðardómarar og fjórði dómari er Elías Ingi Árnason. Dómaraeftirlitsmaður er enginn annar en Halldór Breiðfjörð Jóhannsson.

Fyrir leik
8 liða úrslitin að hefjast!
Velkomin í textalýsingu fyrir leik Aftureldingar og Stjörnunnar í 8-liða úrslitum Mjólkubikars karla sem fer fram á Malbikastöðinni að Varmá. Sigurvegari kvöldsins verður fyrsta liðið til þess að tryggja sig inn í undanúrslitin.






