Lengjudeild karla
Þróttur R.
19:15
0
0
0
HK
Mjólkurbikar karla
Ægir
49'
0
2
2
Breiðablik

ÍA
0
0
Víkingur R.

12.06.2026 - 20:15
ELKEM völlurinn
Mjólkurbikar karla
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
ELKEM völlurinn
Mjólkurbikar karla
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Byrjunarlið:
Varamenn:
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Fyrir leik
Aðeins um tímabil liðanna
Eins og flestir vita eru Víkingar á toppi Bestu deildarinnar en þeir hafa unnið 10 leiki í röð í öllum keppnum.
Víkingar hafa alls unnið 11 af 12 leikjum sínum á tímabilinu, tvo í bikar gegn Fram og HK, en eina jafntefli þeirra kom gegn Blikum í fyrstu umferð Bestu deildar.
Skagamenn sitja hins vegar í 6. sæti deildarinnar með 12 stig eftir 9 leiki. Þeir unnu Hauka 4-0 og þar næst Grindavík í vítaspyrnukeppni eftir 2-2 leik.
Báðir leikir Skagamanna í bikarnum hafa verið á heimavelli og báðir leikir Víkings hafa verið á útivelli og það sama er á boðstólnum hér í dag.

Skemmtilegar fréttir frá fótboltaparinu
Karl Friðleifur, leikmaður Víkings, á von á barni en hann greindi frá því í gær og óskum við hjá Fótbolta.net honum og frú innilega til hamingju með það!

Fyrir leik
Fallegt framtak Skagamanna
Fyrir leik kvöldsins verður afhjúpaður minningarsteinn til heiðurs Sigursteini Gíslasyni. Fallegt hjá Skagamönnum en Sigursteinn lék á sínum tima 335 leiki og skoraði í þeim 40 mörk.
Fyrir leik
Markús Páll vill fá fólkið á völlinn
Markaskorarinn var tekinn í viðtal við Fótbolta.net fyrir leikinn og hafði hann mikið að segja.

Fyrir leik
Seinast höfðu Víkingar betur
Liðin mættust í Bestu deildinni í Víkinni í apríl en þá flengdu Víkingar Skagamenn með 4-0 sigri. Þar skoraði Elías Már tvö mörk en ásamt því voru það Valdimar Þór og Viktor Örlygur sem komust á blað.
Ná Skagamenn að hefna fyrir þetta slæma tap og halda bikarævintýri sínu áfram eða halda Víkingar áfram að vinna allt og alla?
Ná Skagamenn að hefna fyrir þetta slæma tap og halda bikarævintýri sínu áfram eða halda Víkingar áfram að vinna allt og alla?

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Gunnar Oddur Hafliðason er aðaldómari leiksins, aðstoðardómararnir tveir eru Ragnar Þór Bender og Kristján Már Ólafs og fjórði dómari er Pétur Guðmundsson. Viðar Helgason er dómaraeftirlitsmaður.

Byrjunarlið:
Varamenn:
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Rauð spjöld: