SKÝRSLAN: Birtir aðeins til yfir Kaplakrika
Hvað réði úrslitum?
Gamla klisjan, FH-ingar vildu þetta meira. Keflvíkingar byrjuðu aðeins betur en þegar líða tók á fyrri hálfleikinn þá uxu FH-ingar inn í leikinn. Þeir skoruðu og bættu svo við marki fyrir leikhlé. Í seinni hálfleik gerðu FH-ingar þetta mjög fagmannlega en baráttan hjá þeim var til fyrirmyndar allan leikinn. Eitthvað sem þeir klárlega geta byggt á.
Bestu leikmenn
1. Kjartan Kári Halldórsson (FH)
Skoraði frábært mark, eitt af mörkum tímabilsins til þessa. Maður hefur saknað þess að sjá þennan Kjartan Kára í sumar. Var áræðinn og kraftmikill. Þarf að taka þetta með sér inn í framhaldið.
2. Úlfur Ágúst Björnsson (FH)
Var táknmyndin fyrir það sem FH gerði svo vel í leiknum; baráttuandi, dugnaður og að vinna fyrir hvorn annan. Hann var út um allt og lagði gífurlega mikið á sig fyrir liðið.
Atvikið
Seinna markið sem Kjartan Kári skoraði fyrir FH. Það gerði stöðuna þægilegri og markið kom á besta tíma. Svo var það stórt atvik þegar Keflvíkingar klúðruðu dauðafæri í byrjun seinni hálfleiks.
Hvað þýða úrslitin?
Það er heldur betur farið að birta til úti og það birtir núna aðeins yfir Kaplakrika eftir erfiðan tíma í byrjun tímabilsins. Þessi frammistaða og þessi úrslit eru klárlega eitthvað sem þeir geta byggt á fyrir framhaldið. Keflavík hefur tapað tveimur í röð og þeir þurfa finna sjálfstraustið aftur.
Vondur dagur
Sóknarmaðurinn Stefan Ljubicic skoraði en hann hefði getað skorað fleiri mörk í leiknum. Sérstaklega fór hann illa með færi í byrjun seinni hálfleiks. Varnarlína Keflavíkur hefur líka átt betri leiki og Nacho Heras kannski sérstaklega en hann leit ekki vel út í seinna markinu hjá FH.
Dómarinn - 7
Mér fannst Twana dæma þennan leik bara vel. Var með ágætis stjórn á leiknum. Svolítið spjaldaglaður en bara fínn. Held að rangstöðudómurinn í fyrri hálfleik hafi verið réttur þó það hafi verið tæpt.




