SKÝRSLAN: Alvöru iðnaður hjá Skaganum á móti Val
Hvað réði úrslitum?
Betri frammistaða heilt yfir hjá ÍA sem var líklegra til að komast í 2-0 heldur en að Valsmenn myndu jafna. Sterkur og vel skipulagður varnarleikur Skagamanna hélt bragðdaufum sóknarleik Vals í skefjum sem endaði í talsverðum pirringi og uppsöfnun á gulum spjöldum í seinni hálfleik.
Bestu leikmenn
1. Viktor Jónsson
Skoraði eina mark leiksins og þó svo að afgreiðslan hafi verið einföld þá fær hann mikið hrós fyrir að vera fyrstur á fætur þegar hann, Markus Lund og Schram þvælast hver fyrir öðrum en það var Viktor sem stóð upp og rendi honum í netið. Þess má líka geta að nýja tölfræðin okkar velur hann mann leiksins með einkunnina 8,6 og setur kórónu á hausinn hans.
2. Haukur Andri Haraldsson
Mikil vinnusemi á miðjunni hjá honum hér í kvöld. Var alltaf nálægt boltanum og sterkur varnarlega. Átti nokkrar góðar rispur þar að auki og var flottur hér í kvöld.
Atvikið
Atvikið er klárlega markið og nú mæli ég með því að fólk sjái það með eigin augum því að stórfurðulegt var það. Þrír menn þvælast hvor fyrir öðrum en Viktor Jónsson stendur upp manna fyrstur og autt markið blasir við honum.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að liðin skipta um sæti á stigatöflunni og ÍA fer í það fimmta og setur Valsmenn í það sjötta. Góð stigasöfnun Skagamanna heldur áfram en liðið hefur nælgt sér í 10 af síðustu 12 mögulegu stigum. En Valsmenn hafa núna tapað þremur deildarleikjum í röð.
Vondur dagur
Sóknarleikurinn hjá Valsmönnum fær þennan óheiður og Hemmi var sammála mér að hann var ekki upp á marga fiska hér í kvöld. Einstök hálffæri hér og þar en heilt yfir mjög lítið að frétta. Eitt skot á mark í leiknum segir allt sem segja þarf og 6 gul spjöld þegar menn voru pirraðir.
Dómarinn - 4
Mjög óljós lína hjá Gunnari í kvöld. Fullt af vafasömum atvikum og röngum dómum og ég skil gremju Valsmanna í þessum leik. Fannst ekkert endilega halla á annað hvort liðið en dómgæslan var í sama gæðaflokki og sóknarleikur Vals hér í kvöld.




