Leik lokið!
94. mín
Ólafur grípur fyrirgjöf og þetta virðist vera að fjara út.
92. mín
DAUÐAFÆRI
VAR BOLTINN EKKI INNI?
Frábær hornspyrna inn á teiginn en Arnar Númi bjargar á línu og Grinavík fær einnig frákastið en einhvern veginn fer boltinn fram hjá markinu.
Ótrúlegt að þessi hafi ekki farið inn.
Frábær hornspyrna inn á teiginn en Arnar Númi bjargar á línu og Grinavík fær einnig frákastið en einhvern veginn fer boltinn fram hjá markinu.
Ótrúlegt að þessi hafi ekki farið inn.
92. mín
Grindavík fær horn
90. mín
Fjórar mínútur í uppbót.
89. mín
Fylkismenn hafa nú fengið fjórar hornspyrnur í röð.
87. mín
Hætta úr spyrnunni!
Myndast darraðadans inni á teig Grindavíkur sem endar með skoti frá Orra sem fer í varnarmann og Fylkir fær enn eina hornspyrnuna.
87. mín
Eyþór Wöhler með góðan sprett og nælir í hornspyrnu. Fylkismenn virðast vera að sigla þessu heim.
86. mín
InnValur Þór Hákonarson
ÚtMikael Máni Þorfinnsson
82. mín
InnArnar Númi Gíslason
ÚtGuðmundur Tyrfingsson
81. mín
Algjörlega gegn gangi leiksins.
Fylkismenn höfðu ekkert ógnað í seinni hálfleik!
Kári Sigfússon
Þetta mark kemur nánast upp úr engu. Árbæingar voru að ógna marki Grindavíkur í fyrsta sinn í síðari hálfleik og endar það með skoti frá Kára frá teigslínunni sem ratar í markinu.Algjörlega gegn gangi leiksins.
80. mín
Tíu mínútur eftir af þessum leik.
77. mín
Haraldur vinnur boltann og lætur bara vaða af 30 metra færi en boltinn fer framhjá.
74. mín
Fylkismenn hreinsa en heimamenn vinna boltann aftur og Haraldur endar á að taka laust skot beint á Ólaf úr afbragðsstöðu.
Grindvíkingar hafa verið mun sterkari aðilinn seinustu 15 mínútur.
Grindvíkingar hafa verið mun sterkari aðilinn seinustu 15 mínútur.
74. mín
Grindavík fær hornspyrnu sem Lárus Orri undirbýr sig að taka.
71. mín
LÁRUS ORRI!
Frábær aukaspyrna hjá Lárusi af löngu færi en Ólafur ver listilega vel.
69. mín
InnAron Snær Guðbjörnsson
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
69. mín
InnEyþór Aron Wöhler
ÚtDagur Traustason
69. mín
InnRúnar Ingi Eysteinsson
ÚtHeiðar Snær Ragnarsson
69. mín
InnGunnleifur Orri Gunnleifsson
ÚtIngi Þór Sigurðsson
68. mín
Besta færi leiksins!
Góð skyndisókn Grindavíkur sem endar með góðri sendingu frá Eysteini á Inga sem skýtur í hausinn á Ólafi og aftur fyrir endamörk.
66. mín
Lárus Orri tekur aukaspyrnuna og kemur með frábæran bolta inn á teiginn sem Rafel skallar yfir.
65. mín
Gult spjald
Orri Sveinn Segatta
Fer alltof seint inn í tæklingu á Rafael Victor og uppsker réttilega gult spjald.64. mín
Loksins kemur Heiðar Snær aftur inn á völlinn. Var látinn bíða utan vallar í dágóðan tíma eftir að hafa fengið aðhlynningu, nýja reglan að láta ljós sitt skína.
61. mín
Hiti í mönnum
Heiðar Snær fer upp í skallabolta inni í teig Fylkis en Ólafur nær til boltans og síðan aðeins í Heiðar og heimamenn æfir yfir því að fá ekki víaspyrnu.
Heiðar liggur eftir og fær aðhlynningu.
Heiðar liggur eftir og fær aðhlynningu.
60. mín
InnBirkir Eyþórsson
ÚtNikulás Val Gunnarsson
60. mín
InnKári Sigfússon
ÚtTheodór Ingi Óskarsson
59. mín
Arnór Breki stoppar snöggt upphlaup heimamann með því að fara á hestbak á Inga en einhvern veginn sleppur án spjalds.
57. mín
Arnór Breki með góða spyrnu inn á teiginn en enginn Fylkismaður nær til boltans og boltinn fer aftur fyrir endamörk.
55. mín
InnLárus Orri Ólafsson
ÚtChristian Bjarmi Alexandersson
Eysteinn fer í vinstri bakvörðinn og Lárus á miðjuna.
54. mín
Aðeins betra frá Grindvíkingum sem ná í fyrsta sinn í leiknum að halda smá pressu á Fylki á efsta þriðjungi vallarins.
49. mín
Grindvíkingar ekkert að reyna að spila út frá marki og negla þessu bara fram völlinn.
46. mín
Sá seinni er farinn af stað
45. mín
Hálfleikur
Helgi Mikael flautar mjög bragðdaufan fyrri hálfleik af.
15 mínútna hlé sem við tökum okkur.
15 mínútna hlé sem við tökum okkur.
45. mín
Skalli hjá Fylkismönnum eftir hornspyrnu sem Hjörvar ver þó nokkuð þægilega.
44. mín
Fylkismenn ógna
Góð fyrirgjöf frá Theodóri sem Damir nær að hreinsa í horn en Dagur var í frábærri stöðu fyrir aftan hann.
39. mín
Nikulás Val með góðan skalla sem Hjörvar ver vel aftur fyrir.
37. mín
Fyrstu hornspyrnu Grindavíkur fá þeir á silfurfati
Misheppnuð sending frá Tuma sem leiðir að misskilning í vörninni og hornspyrna heimamanna er niðurstaðan.
31. mín
Mikið miðjumoð fyrsta hálftímann
Fylkismenn hafa heilt yfir verið sterkari aðilinn en hafa ekki náð að skapa sér neitt alvöru marktækifæri enn. Grindvíkingar hafa átt eina skottilraun en það var laust skot fyrir utan teiginn.
26. mín
Önnur hornspyrna Fylkismanna í leiknum tekin af Mána, góð spyrna en Grindvíkingar koma þessu í burtu.
24. mín
Fyrsta almennilega sókn Grindavíkur
Tapaður bolti á miðjunni hjá Fylki og Grindavíkurmenn keyra hratt og Mikael tekur laust skot á nærstöngina sem Ólafur er með í teskeið.
23. mín
Guðmundur Tyrfings nær mjög lúmsku skoti eftir að hafa verið að falla um sjálfan sig en boltinn fer framhjá.
18. mín
Máni með spyrnuna sem fer í vegginn og leikur til Hjörvars í markinu.
17. mín
Fylkismenn fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað. Damir brýtur á Degi í miðjum teigsboganum.
13. mín
Gult spjald
Heiðar Snær Ragnarsson
Hörkutækling hjá Heiðari sem verðskuldar að lágmarki gult spjald. Heiðar nýbúinn að eiga hrikalega vonda sendingu til baka sem fór beint á Dag sem var nánast sloppinn einn í gegn en mistókst að ná stjórn á boltanum.10. mín
Sindri brýtur á Guðmundi og Fylkir fær aukaspyrnu í góðri fyrirgjafastöðu.
5. mín
Fylkismenn halda áfram að byrja þennan leik af krafti og Guðmundur kemur boltanum á Mána sem á skot fram hjá markinu.
3. mín
Fylkismenn í góðri sókn og halda þungri pressu á heimamönnum. Endar með skoti frá Guðmundi Tyrfings sem fer í varnarmann og fyrsta hornspyrna leiksins er gestanna.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Fyrir leik
Öllu til tjaldað í fjölmiðlaboxinu
Ég sit hér í fjölmiðlaboxinu á Stakkavíkurvelli þar sem tveir góðir menn lýsa leiknum í beinni á Livey, það eru þeir Guðjón Þorsteinsson og Daði Berg Jónsson, leikmaður Víkings.


Fyrir leik
Flottar aðstæður suður með sjó
Hér í Grindavík eru 13 gráður og skýjað. Það eru um 6 m/s og því létt gola en ekkert til að hafa áhyggjur af. Grasið lítur nokkuð vel út og allt til alls á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin í hús
Fyrir leik
Grindavík
Grindvíkingar koma kaldir inn í þennan leik eftir tvo tapleiki í röð í deildinni en þeir hafa aðeins sótt sjö stig í fyrstu sjö leikjum sínum í Lengjudeildinni. Liðið er í 9. sæti en aðeins á markatölu en Ægir og ÍR eru einnig með sjö stig í 10. og 11. sæti. Ljóst er að Grindavík þarf því á stigum að halda hér á heimavelli í dag.


Fyrir leik
Fylkir
Árbæingar sitja eins og er í 3. sæti Lengjudeildarinnar eftir 8 leiki og hafa þeir sótt í þeim 15 stig. Þeir hafa þó tapað seinustu tveimur leikjum í deildinni en í síðasta leik liðsins unnu þeir Gróttu í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins og mæta þar Aftureldingu í undanúrslitum.


Fyrir leik
Dómaratríóið
Helgi Mikael Jónasson er dómari leiksins og honum til halds og trausts sem aðstoðardómarar eru þeir Antoníus Bjarki Halldórsson og Arnþór Helgi Gíslason.


Fyrir leik
Gleðilegan þjóðhátíðardag!
Komið sæl og blessuð og verið verið velkomin í beina textalýsingu fyrir leik Gridavíkur og Fylkis á Stakkavíkurvelli á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga.





Skýrsla og viðtöl væntanleg.
Takk fyrir mig.