SKÝRSLAN: Baráttusigur Þróttara á AVIS
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í dag var í rauninni munurinn á færanýtingu liðanna. Víkingar fengu betri færi í þessum leik og fleiri en það þurfti bara eitt dauðafæri fyrir Þróttara sem gerði gæfumuninn. Svekkjandi fyrir Víkinga en svona er boltinn.
Bestu leikmenn
1. María Eva Eyjólfsdóttir
María skoraði sigurmarkið sem skaut Þrótturum í undanúrslitin.
2. Mollee Swift
Öryggið uppmálað í markinu í dag og einn besti markmaður deildarinnar eins og Jóhann Kristinn kom inn á í viðtali eftir leik.
Atvikið
Sigurmarkið var stóra atvikið í þessum leik.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Þróttarar eru á leiðinni í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna!
Vondur dagur
Það er enginn sem átti vondan dag. Víkingar spiluðu vel en allt kom fyrir ekki. Sóknarmenn Víkinga hefðu þurft að nýta færin betur.
Dómarinn - 8
Ekki ýkja erfiður leikur að dæma en ÞÞÞ negldi allar ákvarðanir.


