Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
Samsungvöllurinn
Sól og gola
Stjarnan
Stjarnan
3 - 0
Fram
Fram
Birna Jóhannsdóttir 38'1 - 0Birna Jóhannsdóttir 61'2 - 0Birna Jóhannsdóttir 74'3 - 0
Dómari: Bergrós Lilja Unudóttir

SKÝRSLAN: Stjörnuregn Birnu á Samsungvellinum

Hvað réði úrslitum?

Færanýtingin hjá Birnu í dag er klárlega það sem réði úrslitum! Þrenna hjá henni og Stjarnan vinnur 3-0. Framkonur voru óheppnar í byrjun leiks að ná ekki að setja inn mark en þær komu af miklum krafti inn í leikinn. Stjörnukonur hins vegar unnu sig inn í leikinn og nýttu færin þegar þau komu

Bestu leikmenn

1. Birna Jóhannsdóttir

Með þrennu í dag! Ekki hægt að velja neinn annan leikmann, var alltaf hárrétt kona á hárréttum stað og vissi nákvæmlega hvert boltinn var að fara. Dugleg inn á miðsvæðinu og eðalslútt hjá henni í kvöld!

2. Andrea Mist Pálsdóttir

Átti einnig frábæran dag fyrir Stjörnuna, skóp fyrstu tvö mörkin fyrir hana Birnu af harðfylgi. Frábær leiðtogi og peppaði sínar konur í gang eftir brösulega byrjun á leiknum.

Atvikið

Set þetta á þriðja markið hennar Birnu, kórónaði frábæra frammistöðu sína með því að starta sókninni sjálf og hirðir svo frákastið og setur þriðja mark leiksins. Birna fékk svo að sjálfsögðu að eiga boltann eftir leik!

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það einfaldlega að Stjarnan heldur 3. sætinu með 17 stig og eru nú komnar með þriggja stiga forskot á ÍBV í 4. sætinu. Framkonur hins vegar verma nú botninn með sín 4 stig en Þór/KA fóru yfir þær með sínum fyrsta sigri fyrr í kvöld.

Vondur dagur

Vondur dagur hjá Fram konum, áttu alls ekki slæma frammistöðu en ná hins vegar einhverra hluta vegna ekki að skora í Bestu deildinni, þær fengu góð færi til þess að setja mörk í dag en Taylor og Alda eru bara ekki að ná að stýra boltanum inn.

Dómarinn - 7

Vel dæmt hjá Bergrósu og félögum í dag. Ég bara hef ekki neitt út á þær að setja, leikurinn fékk að fljóta vel og brot sem flautað var á voru bara hárrétt dæmd.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.