Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSnæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
Kaplakrikavöllur
hlýtt og milt veður
FH
FH
1 - 1
Valur
Valur
Ída Marín Hermannsdóttir 3'1 - 01 - 138' Nadía Atladóttir
Dómari: Hreinn Magnússon

SKÝRSLAN: Færin fóru forgörðum í Kaplakrika

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði hreinlega úrslitum í dag var hrikaleg færanýting FH, sérstaklega í fyrri hálfleik og baráttan og krafturinn sem Valur tók með sér út í seinni hálfleikinn. Miðað við færin hefði FH hins vegar alltaf átt að vinna þennan leik.

Bestu leikmenn

1. Tinna Brá Magnúsdóttir

Átti góðan dag í markinu og átti oft á tíðum hörku vörslur. Var líka örugg í sínum aðgerðum og það var ekkert panikk þrátt fyrir dauðafærin sem FH konur komu sér í. Hélt Valskonum inn í leiknum, sérstaklega í fyrri hálfleik.

2. Margrét Brynja Kristinsdóttir

Var mjög öflug í liði Valskvenna í dag. Það er alltaf barátta og fightingur í henni og hún var að skapa usla í vörn FH og þá sérstaklega í seinni hálfleik. Tekur mikið til sín, er hröð og áræðin fyrir framan markið.

Atvikið

Verð að nefna höfuðhöggið hjá Jónínu Linnet þetta leit alls ekki vel út og ég sendi henni batakveðjur! Við þurfum hana heila fyrir Lokamót EM hjá U19

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það einfaldlega að liðin fá sitthvort stigið en annað breytist ekki. FH mistekst að koma sér aftur í toppsætið og Valur situr áfram í 8. sæti stigi á eftir Víking sem einnig gerði jafntefli í kvöld.

Vondur dagur

Þetta var vondur dagur hjá sóknarmönnum FH. Eins og Guðni þjálfari þeirra hafði orð á var eins og þær væru í krummafót fyrir framan markið! Ekki vantaði færin fyrir þær að klára leikinn.

Dómarinn - 5

Já bara ágætis leikur hjá dómaratríóinu í dag, það voru nokkur fólskuleg brot sem hann dæmdi ekki á. Svo finnst mér alltaf skrítið þegar dómarar fara allt í einu á 70. mínútu að spjalda allt og ömmur þeirra! Sem hann var að sleppa fyrr í leiknum án tiltals.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.