Fotbolti.net
Besta deildin
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Besta karla
Kópavogsvöllur
Breiðablik
Breiðablik
0 - 0
Víkingur R.
Víkingur R.
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
0. mín
Mætast aftur á sunnudag
Ekki nóg með að etja kappi í deildinni í kvöld þá munu liðin jafnframt mætast aftur á sunnudaginn í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Upphaflega átti bikarleikurinn að fara fram í dag en Rúv fékk að víxla leikjunum við Sýn vegna heimsmeistaramótsins. Stjarnan og KR mættust í deild og bikar með skömmu millibili fyrr í sumar. KR vann þá dramatískan sigur í deildinni en Stjarnan vann bikarleikinn. Spennandi verður að sjá hvernig Víkingur og Breiðablik munu mæta til leiks í þessum tveimur leikjum sem fara fram með þriggja daga millibili.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
0. mín
Ívar Orri með flautuna
Ívar Orri Kristjánsson verður með flautuna í leik kvöldsins. Honum til halds og trausts á sitthvorri hliðarlínunni verða þeir Birkir Sigurðarson og Guðmundur Ingi Bjarnason. Jóhann Ingi Jónsson er fjórði dómari. Eftirlitsmaður er enginn annar en Kristinn Jakobsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Ívar Örn í banni
Ívar Örn Árnason, varnarmaður Breiðabliks, verður ekki með í kvöld vegna leikbanns. Hann fékk sitt fjórða gula spjald á tímabilinu gegn KA. Ívar var hluti af þéttri varnarlínu með Ásgeiri Helga Orrasyni og Viktori Erni Margeirssyni gegn Víkingi í fyrstu umferðinni. Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, var spurður í viðtali í gær hvort að það verði mikil breyting á upplegginu frá fyrsta leik í deildinni. „Ég ætla að gefa mér það leyfi að vera ekkert að ræða það of mikið svona deginum fyrir leik. Við erum auðvitað búnir að teikna upp leikplan sem við viljum framkvæma á morgun. Það verður að koma í ljós hvernig það verður."
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Víkingar óstöðvandi
Liðin mættust í opnunarleik Bestu deildarinnar þetta árið og enduðu leikar 1-1. Síðan þá hafa Víkingar stigið á bensíngjöfina og ekkert gefið eftir, unnið alla sína leiki eftir fyrstu umferð. Víkingur er nú með sex stiga forystu á toppi deildarinnar. Sömu sögu er ekki hægt að segja um Breiðablik sem hafa átt sveiflukenndar frammistöður. Þeir grænklæddu eru í 4. sæti deildarinnar með 19 stig, heilum fimmtán stigum á eftir Víkingum.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
0. mín
Velkomin til leiks!
Heilir og sælir lesendur góðir og verið velkomin í þráðbeina lýsingu frá Kópavogsvelli þar sem Breiðablik fær Íslandsmeistara Víkings í heimsókn í stórleik 12. umferðar Bestu deildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.