SKÝRSLAN: Markaregn í Vesturbænum
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í dag var gæðamunur liðanna. KR-ingar hefðu meira að segja getað skorað fleiri mörk en Tindastóll ógnuðu lítið sem ekkert.
Bestu leikmenn
1. Rakel Grétarsdóttir
Rakel var frábær í dag. Hún átti frábærar fyrirgjafir trekk í trekk sem skilaði mörkum fyrir KR; var eins og eimreið upp kantinn allan leikinn.
2. Kara Guðmundsdóttir
Kara var potturinn og pannan á miðjunni. Hún var mikið í boltanum og skapaði usla ásamt því að skora gott mark.
Atvikið
Það var ekkert eitt atvik sem stóð upp úr í frábærum liðs sigri KR.
Hvað þýða úrslitin?
Stefnir í þriggja liða baráttu KR, Hauka og erkifjendanna í Gróttu. KR-ingar á toppnum sem stendur. Tindastóll situr á botni deildarinnar með aðeins þrjú stig og staðan orðin svört.
Vondur dagur
Ég skrifa ekki vondan dag á einn einstakling. Vörn Stólanna hefur átt betri daga.
Dómarinn - 8
Bríet og hennar teymi með allt á hreinu í auðdæmdum leik.


