Leik lokið!
Bráðfjörugum leik lokið!!
Ég segi bara takk! Viðtöl og skýrsla koma seinna í kvöld!
93. mín
Þvílíka skotið frá Sigurði!! Tekur hann í volley en Ólafur rétt nær að verja þetta út! Eftir hornið nær Eiríkur Beck að verja á línu!! Annað horn!!
91. mín
5 mínútur í uppbótartíma
89. mín
Arnór Sölvi ekki langt frá því að jafna, en hann dettur um boltann inn í teignum
89. mín
Gult spjald
Marko Veselinovic
88. mín
Annað horn fyrir Leikni
Þessi var ekki langt frá því að svífa inn
88. mín
InnÁrni Elvar Árnason
ÚtRúrik Gunnarsson
88. mín
InnAron Skúli Brynjarsson
ÚtDagur Ingi Hammer Gunnarsson
88. mín
InnJóhann Kanfory Tjörvason
ÚtAxel Freyr Harðarson
86. mín
Horn fyrir Leikni
Þeir ná ekki að nýta það
85. mín
ÍR var í dauðafæri fyrir þetta gula spjald, komust í skyndisókn. Orri fær fyrirgjöfina en skýtur boltan hreinlega framhjá
85. mín
Gult spjald
Emil Nói Sigurhjartarson
83. mín
InnÍsak Atli Atlason
ÚtKristján Atli Marteinsson
83. mín
InnÍvan Óli Santos
ÚtÓliver Elís Hlynsson
81. mín
Rautt spjald
Bergvin Fannar Helgason
Úffffff ljótt brot. Orri fær boltann eftir mistök, sendir á Bergvin og fer takkana á undan og í andlitið á Ólafi. Dýrkeypt fyrir ÍR-inga sem þurftu ekki á þessu að halda80. mín
InnÓliver Andri Einarsson
ÚtHákon Dagur Matthíasson
80. mín
InnArnór Sölvi Harðarson
ÚtGuðjón Máni Magnússon
79. mín
2-1!!!!!!!!!!!1
Shkelzen Veseli (stoðsending: Anton Fannar Kjartansson)
Frábærlega gert hjá Shkelzen! Sendir hann á Anton, sem sendir hann í fyrsta á Shkelzen, sem tekur skotið í fyrsta og boltinn ratar í hægra hornið!77. mín
Davíð ekki par sáttur við afskiptasemi bekkjar Leiknis. Hrafn þurfti að fara útaf með blóðnasir. Fær pappír frá bekknum og fer inná og Leiknismenn mótmæla. Davíð hreinlega öskrar á þá og segir þeim að grjóthalda kjafti!
76. mín
Horn fyrir Leikni
Boltinn skallaður frá af ÍR-ingum. Leiknismenn ná þó að halda boltanum og gera aðra fyrirgjöf. Varnarmaður ÍR ætlar að láta boltann renna í markspyrnu en fer með tánna í hann.
Annað horn, en Leiknismenn ná ekki að nýta þetta.
71. mín
Horn fyrir Leikni
Búnir að pressa mikið.
Menn mikið að tuða í markmannsteignum og Twana flautar á þá og segir þeim að hætta að tuða!
Boltinn flýgur á Axel Frey, kjörið tækifæri fyrir hann að koma heimamönnum yfir en hann hittir hann ekki nægilega vel og boltinn flýgur yfir
70. mín
Úfffff, þarna var Ágúst nálægt því að bæta öðru marki við! Frábær sending frá Guðjóni sem rennur honum á Ágúst. Hann reynir síðan skotið hægra megin í vítateig ÍR, en boltinn fer í stöngina og út í markspyrnu
68. mín
Horn fyrir Leikni!
Þarna munaði mjóu! Axel sendir fyrir á Dag sem tekur skotið í fyrsta. Boltinn fer síðan af Hrafni og út í horn. Shkelzen sendir boltann á Marko sem skallar honum útaf
65. mín
Lítið að gerast seinustu 5.
60. mín
Horn fyrir Leikni
Mislukkuð sending frá Shkelzen, hann fær boltann aftur, en mislukkuð sending. Mikil pressa eftir þetta í teig ÍR og Leiknismenn klára þetta með löngu skoti utan af teig en Vilhelm grípur þetta auðveldlega
55. mín
ANNAÐ RUGLUMARK
Þorsteinn Emil Jónsson
Leiknismenn jafna metin! Svakalegur darraðardans og einhverjir vildu hendi í þessu en ég sá það ekki alveg! 1-1!54. mín
Sólin aðeins búin að hverfa bakvið skýin, sem er gott fyrir mig, því nú sé ég almennilega á völlinn!
51. mín
Dauðafæri fyrir ÍR! Bergvin nær boltanum af Marko , sendir á mér sýnist Hákon sem sendir hann fyrir á Emil. Reynir skotið en frábærlega varið hjá Ólafi
50. mín
Gult spjald
Óliver Elís Hlynsson
Brýtur á Shkelzen49. mín
Gult spjald
Anton Fannar Kjartansson
49. mín
ÞRUMUBOLTI FRÁ DJORDE
Shkelzen leitar inn í teig, ÍR hreinsar og Djorde með þvílíkan þrumufleyg sem fer í varnarmann og út
46. mín
Leiknismenn með langt innkast inn í teig. Boltanum er skallað upp í loft og Vilhelm grípur hann
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Ég vil fá meira spennandi leik eftir þennan fyrri hálfleik!
45. mín
+3
Skrýtið mark sem skilur liðin af. Smá fætingur líka í fyrri sem maður bjóst við svo sem.
45. mín
+3
Horn fyrir Leikni, Rúrik tekur hana, en ÍR hreinsar
45. mín
+2
Twana bætti einhverju við, guð má vita hvað það var
43. mín
Slakt horn hjá Leikni. Vilhelm grípur hann vel og nær aftur langri sendingu á Bergvin. Hann og Eiríkur kljást afutr um boltann en Óli grípur hann
41. mín
Gult spjald
Brynjar Björn Gunnarsson
Brynjar fær gult fyrir að rífa kjaft40. mín
Gult spjald
Bergvin Fannar Helgason
Þeir fá gult fyrir að byrja þessi slagsmál. Eiríkur ekki sáttur40. mín
Gult spjald
Eiríkur Örn Beck
40. mín
Mjöööög mikill hiti kominn í leikinn og leikmenn fara hreinlega að slást aðeins! Bergvin og Eiríkur byrja þetta
39. mín
Horn fyrir ÍR
Vilhelm með frábæra markspyrnu! Bergvin eltir uppi boltann en boltinn fer af varnarmanni og út.
38. mín
InnOrri Bjarkason
ÚtVíðir Freyr Ívarsson
Víðir fer útaf og heldur ekki áfram leik.
38. mín
Gult spjald
Hrafn Hallgrímsson
Brýtur af sér34. mín
Horn fyrir Leikni
Mislukkað aftur hjá þeim. Shkelzen fær boltann stuttu eftir spyrnuna. Hann reynir lágt skot utan af teig en ekkert vandamál fyrir Ólaf
32. mín
Víðir liggur eftir og nuddar á sér kálfann. Honum vantar aðhlynningu og Twana stöðvar leikinn.
Hann virðist ætla að halda áfram
32. mín
ÍR-ingar vaknaðir eftir þetta heppnismark!
27. mín
Hvað var ég að sjá?!?!?!?
Ágúst Unnar Kristinsson (stoðsending: Kristján Atli Marteinsson)
Þetta er skýtnasta mark ársins! Ágúst er með mislukkaða fyrirgjöf og boltinn skoppar hreinlega inn! Skil alls ekki hvernig Ólafur ver þetta bara ekki!23. mín
Axel Freyr brjálaður út í Twana eftir að hafa verið tekinn niður, en Twana lætur leikinn rúlla
20. mín
Horn fyrir Leikni
Held svei mér þá að þetta sé fimmta horn þeirra.
Þeir ná ekkert að nýta þetta þó
18. mín
ÍR fær annað horn
Emil tekur spyrnuna, en boltinn fer á kollin á Hrafn og útaf
17. mín
InnÞorsteinn Emil Jónsson
ÚtKári Steinn Hlífarsson
Kári Steinn farinn útaf
Smá spes. Manni sýndist hann ekki verða fyrir einhverju hnjaski, en aldrei að vita
15. mín
Fyrsta hornspyrna ÍR
Bergvin heldur í varnarmann Leiknis og Twana dæmir aukaspyrnu fyrir Leikni
13. mín
Leiknismenn að fá sitt þriðja horn
Þeir missa hann aðeins frá sér. Ná boltanum svo nokkru seinna inn í teig þar sem liðin stíga smá darraðardans og boltinn fer í fjórða horn Leiknismanna! Vilhelm nær þó að kýla þennan frá!
11. mín
Leiknir með annað horn
Shkelzen fékk boltann hægra megin við teiginn, reynir skotið en hann fer af varnarmanni og út.
Shkelzen nær þó ekki að nýta þessa hornspyrnu vel og ÍR hreinsar
9. mín
Kári Steinn með flott skot eftir skyndisókn en virðist vera að það sé brotið á honum. Twana segir nei og dæmir bara horn.
Rúrik fær boltann eftir stutt spil og reynir sendingu í teiginn, en boltinn er auðveldur fyrir Vilhelm
7. mín
Axel Freyr aðeins of seinn í boltann. Fer harkalega í Kristján Atla
5. mín
Lítið að gerast fyrstu 5 mínútúr leiksins
1. mín
Leiknismenn hefja leik
Góða skemmtun!
0. mín
Elvis á fóninum og liðin eru að labba inn á völl! Sá mikli meistari Elvar Magnússon er vallarþulur dagsins og gerir það af algerri fagmennsku!
0. mín
Sólin að reyna brjótast inn hérna í gegnum skýin, rúmar 10° gráður hérna. Stutt í þessa veislu!
0. mín
Byrjunarlið
Tvær breytingar á Leiknisliðinu í dag! Marko Veselinovic og Anton Fannar Kjartansson eru kominir aftur eftir að hafa verið í eins leikja banni,
Inn fyrir ÍR koma Sigurður Karl Gunnarsson og Óliver Elís Hlynsson
0. mín
Spá umferðarinnar
Alexander Rafn Pálmason var fenginn til að spá í 11. umferðina í Lengjudeildinni, en hann er á leiðinni til Nordsjælland frá KR í júlí! Þetta hafði kappinn að segja um leikinn!
Leiknir 3 - 2 ÍR (19:15 í kvöld)
Þetta verður rosalegur leikur alvöru hiti jafnvel 1 eða 2 rauð en Leiknir tekur þetta last minute, Jon Arnar setur eitt frá 30 metrum fyrir ÍR inga en það er bara ekki nóg.
0. mín
Innbyrðis viðureignir
Fyrsta viðureign þessara liða sem ég finn á KSÍ er á því herrans ári 1996, en þessi lið hafa 120% mætt hvoru öðru oftar fyrir þann tíma. Ef einhver er fróðari um það má sá hinn sami endilega senda mér skilaboð um það! Ég hefði mikið gaman að læra um það!
En allaveganna! Fyrsti leikurinn 1996 fór 2-3 fyrir ÍR í 2. deild karla, en þar lentu ÍR í 7. sæti og Leiknir á botninum í 10. sæti.
Leiknismenn hafa sigrað 16 af þessum leikjum, ÍR sigrað 14 sinnum, og liðin skilið jöfn að 7 sinnum.
0. mín
Dómarateymið
Dómari leiksins er enginn annar en Twana Khalid Ahmed!
Honum til halds og trausts verða Kári Mímisson og Óliver Thanh Tung Vú.
Dóamraeftirlitsmaður verður Oddur Helgi Guðmundsson.

0. mín
ÍR
ÍR situr fyrir neðan Leikni, þá í 9. sæti með 11 stig eftir 10 umferðir. Þeir hafa sigrað þrjá leiki (Aftureldingu, HK og Gróttu), gert tvö jafntefli (Grindavík og Völsung) og tapað fimm leikjum (Þrótti, Fylki, Ægi, Vestra og Njarðvík).
Í seinustu fimm leikjum hafa þeir aðeins unnið einn leik, gert eitt jafntefli og tapað þremur.
ÍR hefur skorað þriðju mest mörkin af liðunum í deildinni, en ÍR hefur skorað 22 mörk. Víðir Freyr Ívarsson hefur verið afkastamestur, en hann hefur skorað fimm, og þrjú af þeim komu í seinustu tveimur leikjum.


0. mín
Leiknir
Leiknismenn sitja eins og er í 6. sæti með 15 stig eftir 10 umferðir. Þeir hafa sigrað fjóra (Gróttu, HK, Ægi og Vestra), gert þrjú jafntefli (Völsung, Þrótt og Grindavík) og tapað þremur (Aftureldingu, Fylki og Njarðvík).
Í seinustu fimm leikjum hafa þeir tapað tvemur og sigrað þrjá, en í seinasta leik töpuðu þeir naumt gegn Njarðvík á útivelli.
Helstu markaskorar Leiknis í deildinni eru Shkelzen Veseli og Dagur Ingi Hammer, en þeir hafa báðir skorað þrjú mörk sem gera helming marka Leiknis í sumar.


0. mín
Góðann daginn og verið hjartanlega velkomin á Leiknisvöll, þar sem nágrannaliðin Leiknir og ÍR munu mætast í sannkölluðum nágrannaslag í 11. umferð Lengjudeildarinnar!






