0. mín
Sjens til þess að komast upp úr fallsæti
Núna er Ægir í 11. sæti sem er fallsæti með 8 stig. Aðeins Völsungur er fyrir neðan þá með 6 stig, en Völsungur er búin að ná í 4 stig í síðustu tveimur leikjum, sem getur verið áhyggjuefni fyrir Ægi. Með sigri í dag getur Ægir komist yfir Grindavík sem er í 10 sæti, en Grindavík á samt leik inni.

0. mín
Sjens til þess að komast í annað sæti
Afturelding er statt í fjórða sæti með 19 stig en þeir eiga leik inni og með sigri geta þeir komist í annað sætið með 22 stig. Núna eru Vestri, Fylkir og Þróttur fyrir ofan Aftureldingu. En þessi þrjú lið töpuðu öll stigum í síðustu umferð. Kemst þá Afturelding með sigri yfir Vestra og Fylki, en það myndi muna einu stigi mill Aftureldingar og Þróttar.

0. mín
Lengjudeildin heilsar!
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin á Malbikstöðina að Varmá, þar sem heimamenn í Aftureldingu fá Ægi í heimsókn.




