Fotbolti.net
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Lengjudeild karla
Malbikstöðin að Varmá
Byrjaði í sunshine, svo kom rigningin
Afturelding
Afturelding
8 - 1
Ægir
Ægir
Joacim Emil Godhei Holtan 2'1 - 0Sævar Atli Hugason 37'2 - 02 - 145' Bjarki Rúnar JónínusonJoacim Emil Godhei Holtan 49'3 - 1Joacim Emil Godhei Holtan 55'4 - 1Óðinn Bjarkason 59'5 - 1Róbert Agnar Daðason 67'6 - 1Óðinn Bjarkason 77'7 - 1Aron Elí Sævarsson 89'8 - 1
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

SKÝRSLAN: Slátrunarstöðin að Varmá

Hvað réði úrslitum?

Afturelding var bara betri í dag. Ægir fékk sín móment til þess að skora, sérstaklega í fyrri hálfleik en Arnar varði vel. Í seinni hálfleik með tímanum þegar vörn Ægis opnaði þá slátraði Afturelding þeim.

Bestu leikmenn

1. Joacim Holtan

Skoraði þrennu og erfitt að horfa framhjá honum, öll þrjú mörkin sem hann skoraði voru gjafir frá Ægi en fyrir utan það þá gerði hann vel.

2. Óðinn Bjarkason

Tvö mörk í dag, bæði mörkin voru mjög góð. Ægir í seinni hálfleik áttu erfitt með hann.

Atvikið

Þriðja mark Aftureldingar, þá fór hausinn hjá Ægi. Vörnin opnaðist hjá Ægi og Afturelding slátraði þeim, eftir það vildi Ægir fara heim og helst gleyma þessu.

Hvað þýða úrslitin?

Afturelding er í öðru sæti, einu stigi frá Þrótti. Ægir er í ellefta sæti með 8 stig.

Vondur dagur

Ég gæti mætt með ritgerð um hversu hræðilegur varnarleikur þetta var, hann var ekki boðlegur hjá Ægi, eins og Nenad sagði í viðtali eftir leik, þetta voru gjafir. Jólin komu snemma í Mosfellsbæ. Stefan Dabetic var ekki góður og rauða spjaldið sem hann fékk var alveg glórulaust. Þetta var aðeins of auðvelt fyrir Aftureldingu. Sendingarnar til baka voru oft mjög soft.

Dómarinn - 7

Ekki hægt að kvarta.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.