Fotbolti.net
@fotboltinetFótbolti.net
Fótbolti.net
HM 2026
Dallas
Fílabeinsströndin
Fílabeinsströndin
0 - 0
Noregur
Noregur
Dómari: Jesus Valenzuela (Venesúela)
29. mín
Fílabeinsströndin fær hættulegt færi
Nicolas Pepe í hættulegri stöðu, Kristoffer Ajer nær að koma boltanum afturfyrir í horn.
28. mín
Mynd: EPA
24. mín
Vatnspása
21. mín
Mynd: EPA
9. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins
Nicolas Pepe að ógna. Torbjörn Heggem kemur boltanum í horn.
1. mín
Þetta er komið af stað! - Leikur gegn Brössum í boði
Jesus Valenzuela, dómari frá Venesúela, hefur flautað til leiks í Dallas. Fílabeinsströndin hóf leik. Sigurliðið í þessum leik mun mæta Brasilíu í 16-liða úrslitum á sunnudaginn.
0. mín
Svona komst Noregur áfram:
Mynd: EPA
Noregur vann fyrstu tvo leiki sína, 4-1 gegn Írak og 3-2 gegn Senegal, og hvíldi leikmenn í lokaleiknum í riðlinum; 4-1 tapi gegn Frakklandi.
0. mín
Spenna í Dallas
Mynd: EPA
0. mín
Svona komst Fílabeinsströndin áfram:
Liðið vann Ekvador 1-0, tapaði 2-1 gegn Þýskalandi en vann svo Curacao 2-0 og komst í fyrsta sinn áfram í útsláttarkeppni HM.
Mynd: EPA
0. mín
Velkomin til leiks
Noregur og Fílabeinsströndin eigast við í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Flautað verður til leiks klukkan 17:00 og er leikurinn í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.

Emerse Fae, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar, gerir þrjár breytingar á byrjunarliði sínu frá 2-0 sigri gegn Curacao.

Inn í liðið koma þeir Ghislain Konan, Emmanuel Agbadou og Christ Inao Oulai. Úr liðinu víkja þeir Ousmane Diomande, Christopher Operi og Amad Diallo.

Stale Solbakken, þjálfari Noregs, hvíldi helstu stjörnurnar gegn Frakklandi og gerði tíu breytingar fyrir þann leik.

Hann gerir sömuleiðis tíu breytingar í dag og eru helstu stjörnurnar mættar aftur. Patrick Berg eini leikmaðurinn sem heldur sæti sínu frá Frakkaleiknum.

Fílabeinsströndin: Fofana; Konan, Kossounou, Doue, Agbadou, Kessie, Sangare, Oulai, Bonny, Diomande, Pepe

Noregur: Nyland; Ajer, Heggem, Wolfe, Pedersen, Berge, Odegaard, Berg, Sorloth, Haaland, Nusa
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.