Fotbolti.net
@fotboltinetFótbolti.net
Fótbolti.net
HM 2026
Dallas
Fílabeinsströndin
Fílabeinsströndin
1 - 2
Noregur
Noregur
0 - 139' Antonio NusaAmad Diallo 74'1 - 11 - 286' Erling Haaland
Dómari: Jesus Valenzuela (Venesúela)
Leik lokið!
+8
NOREGUR MUN MÆTA BRASILÍU Í 16-LIÐA ÚRSLITUM. Fílabeinsströndin fékk hornspyrnu í blálokin og Fofana markvörður kom fram. Hættuleg hornspyrna en Fílabeinsströndin náði ekki marktilraun.
90. mín
+6 - VÁÁÁÁÁÁÁ!!!!
ÞVÍLÍK AUKASPYRNA FRÁ AMAD DIALLO! ÖRJAN NYLAND MEÐ GEGGJAÐA VÖRSLU! Þetta var rosalegt. Fílabeinsströndin svo nálægt því að jafna hér í blálokin.
Fílabeinsströndin
90. mín
InnBazoumane Toure
ÚtYan Diomande
Fílabeinsströndin
90. mín
InnEvann Guessand
ÚtGhislain Konan
90. mín
+2
Fílabeinsströndin að ógna, Nyland nær að blægja boltanum frá.
90. mín
Uppbótartíminn er að minnsta kosti 7 mínútur
Ég endurtek: 7 mínútur - Nóg eftir.
89. mín
Við höfum fengið fullt af mörkum í viðbótartíma að undanförnu! Það getur allt gerst.
Fílabeinsströndin
87. mín
InnOumar Diakite
ÚtNicolas Pepe
Noregur
86. mín
HANN SKORAR ALLTAF!

Erling Haaland (stoðsending: Patrick Berg)

Patrick Berg með frábært hlaup og lága fyrirgjöf sem Haaland stýrir í markið. Hann hefur skorað 60 mörk í 53 landsleikjum. Alveg biluð tölfræði.
Noregur
83. mín
InnFredrik Aursnes
ÚtMarcus Holmgren Pedersen
82. mín
Leikurinn stopp því Amad Diallo þarf aðhlynningu.
78. mín
Pepe fellur í teignum en þetta var ekki nægilega mikið til að Valenzuela dómari frá Venesúela bendir á punktinn.
Fílabeinsströndin
74. mín
ÞÁ KEMUR JÖFNUNARMARKIÐ!

Amad Diallo (stoðsending: Nicolas Pepe)

Fílabeinsströndin fer illa með norsku vörnina! Amad Diallo og Pepe taka gott þríhyrningsspil, Amad fer framhjá varnarmanni í teignum og klárar vel. Hans annað mark á mótinu.
Mynd: EPA
74. mín
Höddi Magg og Kjartan Henry sem lýsa leiknum á RÚV 2 að tala um að Fílabeinsströndin hafi verið nánast bitlaus í þessum leik. Leikmenn eins og Diomande hafa verið langt frá sínu besta.
Noregur
71. mín
InnOscar Bobb
ÚtAlexander Sörloth
Noregur
71. mín
InnAndreas Schjelderup
ÚtAntonio Nusa
70. mín
Seinni vatnspásan í gangi
Frábær viðbót segja sumir
67. mín
Fílabeinsströndin bjargar á línu
Torbjörn Heggem með tilraun en Fílabeinsströndin bjargar á línu. Heggem með skalla af stuttu færi en Amad Diallo nær að bjarga línu.
Fílabeinsströndin
60. mín
InnAmad Diallo
ÚtAnge-Yoan Bonny
Fílabeinsströndin
60. mín
InnElye Wahi
ÚtChrist Inao Oulai
56. mín
Nicolas Pepe með skottilraun
Í hörkugóðu færi en Nyland ver.
54. mín
Mjög róleg byrjun á seinni hálfleik.
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað
Mynd: EPA
45. mín
Norðmenn leiða í hálfleik eftir þetta glæsilega einstaklingsframtak Nusa
+4
Noregur
45. mín
+1

Antonio Nusa

Markaskorarinn fær spjald fyrir brot.
45. mín
Fjórar mínútur að minnsta kosti í uppbótartíma
44. mín
Tölfræðihorn
Marktilraunir: 4-7
Á mark: 1-2
43. mín
Alexander Sörloth skallar framhjá eftir horn
Norðmenn fara hamförum skyndilega!
42. mín
Haaland nálægt því að tvöfalda forystu Noregs
Dauðafæri en Ibrahim Sangare nær að komast fyrir á ögurstundu og bjarga marki!
Noregur
39. mín
Algjörlega frábært mark

Antonio Nusa (stoðsending: Martin Ödegaard)

Nokkuð gegn gangi leiksins kemur þetta fallega skot frá Nusa sem setur boltann upp í fjærhornið. Þetta kom eins og þruma úr heiðskíru!
Mynd: EPA
38. mín
Erling Haaland með skalla
Frekar laus og beint á Yahia Fofana. Ekki mikill kraftur.
35. mín
Emmanuel Agbadou með skot, hittir boltann illa og Nyland grípur af öryggi.
33. mín
Hörður Magnússon lýsir leiknum á RÚV 2 og talar um að orkustigið í Norðmönnum sé ekki sérstaklega hátt, þetta minni hann á þýska liðið í gær.
31. mín
Þetta hefur verið jafn leikur en lítið um færi. Vonandi fer að færast meira fjör í leika.
29. mín
Fílabeinsströndin fær hættulegt færi
Nicolas Pepe í hættulegri stöðu, Kristoffer Ajer nær að koma boltanum afturfyrir í horn.
28. mín
Mynd: EPA
24. mín
Vatnspása
21. mín
Mynd: EPA
9. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins
Nicolas Pepe að ógna. Torbjörn Heggem kemur boltanum í horn.
1. mín
Þetta er komið af stað! - Leikur gegn Brössum í boði
Jesus Valenzuela, dómari frá Venesúela, hefur flautað til leiks í Dallas. Fílabeinsströndin hóf leik. Sigurliðið í þessum leik mun mæta Brasilíu í 16-liða úrslitum á sunnudaginn.
0. mín
Svona komst Noregur áfram:
Mynd: EPA
Noregur vann fyrstu tvo leiki sína, 4-1 gegn Írak og 3-2 gegn Senegal, og hvíldi leikmenn í lokaleiknum í riðlinum; 4-1 tapi gegn Frakklandi.
0. mín
Spenna í Dallas
Mynd: EPA
0. mín
Svona komst Fílabeinsströndin áfram:
Liðið vann Ekvador 1-0, tapaði 2-1 gegn Þýskalandi en vann svo Curacao 2-0 og komst í fyrsta sinn áfram í útsláttarkeppni HM.
Mynd: EPA
0. mín
Velkomin til leiks
Noregur og Fílabeinsströndin eigast við í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Flautað verður til leiks klukkan 17:00 og er leikurinn í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.

Emerse Fae, þjálfari Fílabeinsstrandarinnar, gerir þrjár breytingar á byrjunarliði sínu frá 2-0 sigri gegn Curacao.

Inn í liðið koma þeir Ghislain Konan, Emmanuel Agbadou og Christ Inao Oulai. Úr liðinu víkja þeir Ousmane Diomande, Christopher Operi og Amad Diallo.

Stale Solbakken, þjálfari Noregs, hvíldi helstu stjörnurnar gegn Frakklandi og gerði tíu breytingar fyrir þann leik.

Hann gerir sömuleiðis tíu breytingar í dag og eru helstu stjörnurnar mættar aftur. Patrick Berg eini leikmaðurinn sem heldur sæti sínu frá Frakkaleiknum.

Fílabeinsströndin: Fofana; Konan, Kossounou, Doue, Agbadou, Kessie, Sangare, Oulai, Bonny, Diomande, Pepe

Noregur: Nyland; Ajer, Heggem, Wolfe, Pedersen, Berge, Odegaard, Berg, Sorloth, Haaland, Nusa
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.