Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetHelgi Inguson
Besta karla
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
3 - 2
KA
KA
Aron Elís Þrándarson 5'1 - 01 - 114' Hallgrímur Mar Steingrímsson1 - 223' Hallgrímur Mar SteingrímssonAron Elís Þrándarson 81'2 - 2Gylfi Þór Sigurðsson (víti) 94'3 - 2
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson

SKÝRSLAN: Meistarabragur á Víkingum

Hvað réði úrslitum?

Þrautseigja Víkinga réði úrslitum. Íslandsmeistararnir lentu undir en sýndu einfaldlega úr hverju þeir eru gerðir. Það var blanda af reynslu, gæðum og "know how" sem að sigldi þessu heim fyrir Víkinga. Maður getur hins vegar ekki gert annað en að finna til með gestunum. KA spilaði sinn besta leik í langan tíma og að tapa leiknum á 95. mínútu er einfaldlega „ógeðslegt" eins og Hallgrímur Mar orðaði það.

Bestu leikmenn

1. Aron Elís Þrándarson

Aron var út um allan völl í dag. Hann vann einvígi á miðjunni og var alltaf mættur inn í boxið. Tvö góð mörk hjá Aroni í dag sem er að nálgast sitt besta.

2. Hallgrímur Mar Steingrímsson

Hallgrímur með tvennu í kvöld. Var allt í öllu í sóknum KA og sömuleiðis duglegur að verjast þegar gestirnir lágu til baka.

Atvikið

Sigurmark Víkinga á 95. mínútu. Kári Gautason brýtur á Óskari Bogga inn í vítateig gestanna og Þórður dómari bendir á punktinn. Vítaspyrna Gylfa var örugg, sendi Stubb í vitlaust.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingur er nú með 11 stiga forskot á toppi Bestu deildarinnar. Liðið virðist ætla hlaupa í burtu með deildina og það er eiginlega bara spurning um hvaða met það slær í sumar. KA situr hins vegar í 10. sæti, tveimur stigum fyrir nágranna sína, Þór Akureyri, sem eru í fallsæti.

Vondur dagur

Kári Gautason kom inn og gaf víti tíu mínútum síðar. Hann var aðeins of ákafur í varnarleiknum og Óskar klókur að sækja brotið. Aron Snær Friðriksson og Oliver Heiðarsson fóru báðir meiddir af velli. Meiðsli þeirra litu ekki vel út og við óskum þeim góðs bata.

Dómarinn - 9

Mér þótti Þórður vera með fullkomna stjórn á leiknum. Var með hárrétta línu þegar það kom að gulum spjöldum og gat ekki gert annað en að dæma víti. Dómarateymið á hrós skilið fyrir frammistöðu sína.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.