Liverpool opið fyrir því að selja Van Dijk - Tveir á óskalista Man Utd - Suzuki til Leeds?
ÍBV
1
0
Valur
Alex Freyr Hilmarsson '58 1-0
Hólmar Örn Eyjólfsson '65
04.07.2026  -  16:00
Hásteinsvöllur
Besta karla
Aðstæður: Sól og smá gola.
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Byrjunarlið:
33. Ari i Haraldstovu Petersen (m)
4. Mattias Edeland
6. Milan Tomic
7. Sesar Örn Harðarson ('75)
8. Bjarki Björn Gunnarsson ('81)
22. Eiður Atli Rúnarsson ('81)
23. Arnór Ingi Kristinsson
25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
26. Felix Örn Friðriksson
27. Róbert Elís Hlynsson ('69)
30. Vicente Valor
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
3. Alexander Örn Friðriksson
5. Sturla Sagatun-Kristjánsson
10. Viggó Valgeirsson ('75)
11. Þorri Heiðar Bergmann
14. Arnar Breki Gunnarsson ('81)
17. Emil Gautason
28. Heiðmar Þór Magnússon
42. Pisco ('81)
67. Omar Sowe ('69)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Aleksandar Linta (Þ)
Jakob Fannar Möller (Liðsstj.)
Óskar Elías Zoega Óskarsson (AÞ)
Filipe Andre Alexandre Machado (MÞ)
Björgvin Eyjólfsson (Sjúkraþj.)
Branisalv Bajic (AÞ)
Elías Árni Jónsson (Styrktarþj.)
Guðrún Ágústa Möller (Forráðam.)

Gul spjöld:
Bjarki Björn Gunnarsson ('41)

Rauð spjöld:
Skýrslan
@fotboltinet Tryggvi Guðmundsson
Skýrslan: Sterkur sigur ÍBV í Goslokaleik
Hvað réði úrslitum?
Í raun nýttu ÍBV færin sín betur, þetta var samt ekki leikur margra færa en þó hefði Tryggvi Hrafn getað jafnað leikinn í síðari hálfleik þegar hann kemst einn í gegn á móti markmanni. Hann ætlaði að vippa yfir Ara í marki ÍBV en boltinn beint í hendur Ara.
Bestu leikmenn
1. Alex Freyr Hilmarsson
Alex er einfaldlega bara drifkraftur ÍBV liðsins og það skína af honum gæðin bæði varnar- og sóknarlega. Hann skorar svo auðvitað úrslitamark leiksins.
2. Milan Tomic
Gott fyrir Eyjamenn að fá hann til baka svona sterkan inn á miðjuna. Skín af honum leikgleðin og hann smitar út frá sér. Hann var ásamt Alex Frey mjög góður inn á miðvæðinu hjá ÍBV. Einnig var Mathias Edeland klettur í vörninni hjá Eyjamönnum.
Atvikið
Rauða spjaldið hjá Hólmari Erni Eyjólfssyni. Stórskrítið að koma sér í þessa stöðu hvort sem hann er sáttur með dóminn eða ekki, þá áttu bara ekki að vera að þessu.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Eyjamenn halda áfram sinni velgengni og eru komnir upp í sjöunda sæti með 15 stig. Valsmenn eru í fimmta sæti með 19 stig og ætluðu sér örugglega meira. Eru með fleiri töp heldur en sigra það sem af er af móti.
Vondur dagur
Hólmar Örn Eyjólfsson fær þetta fyrir að fá rautt spjald á 65. mínútu leiksins. Eins góður leikmaður og Hólmar er þá finnst mér hann koma sér í þessar stöður alltof oft. Þarna skilur hann samherja sína eftir einum færri útaf kjánaskap.
Dómarinn - 7
Twana var heilt yfir bara nokkuð öruggur í sínum leik í dag. Hefði samt getað spjaldað fleiri leikmenn en hann gerði því það var frekar mikil harka í leiknum, þá aðallega á miðjusvæðinu þar sem endalaust var verið að brjóta á mönnum. Ég er samt enginn áhugamaður um of mörg spjöld en þarna fannst mér hann kannski aðeins of soft.
Byrjunarlið:
18. Frederik Schram (m)
4. Markus Lund Nakkim
6. Bjarni Mark Duffield ('84)
11. Ingimar Torbjörnsson Stöle ('79)
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
13. Kristján Oddur Kristjánsson ('69)
14. Albin Skoglund
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
17. Lúkas Logi Heimisson
24. Myles A Veldman
28. Samúel Kári Friðjónsson ('69)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
25. Stefán Þór Ágústsson (m)
95. Tómas Blöndal-Petersson (m)
8. Jónatan Ingi Jónsson
16. Loki Kristjánsson
21. Jakob Franz Pálsson ('69)
26. Emil Nönnu Sigurbjörnsson ('79)
30. Gunnar Karl Heiðdal ('84)
37. Stefan Tufegdzic
66. Ólafur Flóki Stephensen ('69)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Chris Brazell (Þ)
Örn Erlingsson (Liðsstj.)
Hilmar Andrew McShane (Styrktarþj.)
Baldvin Orri Friðriksson (Leikgr.)
Kirian Elvira Acosta (Styrktarþj.)
Emil Alexander Larsen (MÞ)
Halldór Eyþórsson (Liðsstj.)
Einar Óli Þorvarðarson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:
Myles A Veldman ('13)
Bjarni Mark Duffield ('56)
Tryggvi Hrafn Haraldsson ('92)
Albin Skoglund ('94)

Rauð spjöld:
Hólmar Örn Eyjólfsson ('65)