0. mín
Spákona umferðarinnar
Við fengum Helgu Rut Einarsdóttur, fyrirliða U19 landsliðs kvenna, til að spá í spilin fyrir umferðina. Helga er þessa stundina í Bosníu á lokakeppni Evrópumótsins með U19.
Keflavík 1 - 2 Fram
Fram búnir að vera a góðu runni og taka þennan leik. Sigurjón Rúnarsson skorar með góðum skalla!



0. mín
Innbyrðis viðreignir
Þessi lið hafa marga fjöruna sopið saman og vilja Keflvíkingar sennilega sem minnst muna eftir leik liðana í lokaumferðinni 2008 þegar Fram stal undan Keflvíkingum Íslandsmeistaratitlinum með 1-2 sigri sem varð til þess að FH urðu Íslandsmeistarar það ár.
Þessi lið hafa mæst x sinnum.

0. mín
Keflavík
Keflavík hefur komið skemmtilega á óvart á tímabilinu og verið mun beittari en flestir héldu fyrir mót. Keflavík hefur verið að tengja saman góðar frammistöður og sótt flott úrslit þar sem af er tímabils og sitja í 7. sæti deildarinnar með 15 stig en geta með sigri lyft sér upp í efri hluta deildarinnar.
Eftir að hafa aðeins misst dampinn og tapað gegn ÍBV og FH hafa Keflvíkingar verið að finna gott form og sóttu gott stig á Hlíðarenda og unnu frábæran sigur á KR í síðustu umferð 3-2 en það var jafnframt þeirra fyrsti sigur á KR í 18 ár.

0. mín
Fram
Fram hafa átt magnað tímabil til þessa og geta með sigri í kvöld jafnað KR af stigum í 2. sæti deildarinnar og eiga að auki leik til góða til þess að komast átta stigum frá Víkingum á toppi deildarinnar.
Frammarar hafa unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum en eini tapleikur liðsins kom gegn toppliði Víkinga.
Í síðustu umferð unnu Frammarar góðan 0-2 útisigur á ÍA þar sem Atli Þór Jónasson skoraði bæði mörkin en hann er markahæsti leikmaður Fram í deildinni með sjö mörk.

0. mín
Dómarareymið í kvöld
x
0. mín
Lokaleikur þrettándu umferðar
Leikur Keflavíkur og Fram lokar 13. umferð Bestu deild karla.
Umferðin hefur farið svona fram:
Þór Ak. 3-3 KR
Víkingur 3-2 KA
FH 2-2 Stjarnan
ÍA - Breiðablik
ÍBV - Valur

0. mín
Velkomin á HS Orku völlinn!
Heil og sæl og verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá HS Orku vellinum í Keflavík þar sem heimamenn í Keflavík taka á mót Fram í Bestu deild karla.





