Fotbolti.net
@fotboltinetKristján Hrafn Kristjánsson
Forkeppni Evrópudeildarinnar
Tofiq Bahramov Republican (Bakú)
25 gráður
Qarabag
Qarabag
3 - 0
Vestri
Vestri
Zakaria Sawo 30'1 - 0Abdellah Zoubir 45'2 - 0Renaldo Cephas 86'3 - 0
Dómari: Roman Jitari (Norður-Makedónía)
Leik lokið!
Fyrsti Evrópuleikur í sögu Vestra endar á 3-0 tapi
Lokatölur í fyrsta leik í einvígi Vestra og Qarabag í forkeppni Evrópudeildarinnar er 3-0 sigur Qarabag. Skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í dag, ég þakka fyrir mig.
90. mín
+4 mínútur bætt við
Qarabag
88. mín
InnDani Bolt
ÚtBadavi Hüseynov
Qarabag
86. mín
Úffffffffff, núna verður þetta erfitt!

Renaldo Cephas (stoðsending: Zakaria Sawo)

Vestri missa boltan rétt fyrir utan teig Qarabag og þá sækja heimamenn hratt. Zakaria Sawo fær boltann á miðjum vellinum og fer upp völlinn, endar á að klippa boltann inn á Cephas sem klárar auðveldlega í opið markið.
80. mín
Dauðfæri!
Renaldo Cephas sendir boltann fyrir við endamörkin sem fer í Guðmund Pál og í andlitið á Marvin í markinu. Þessi hefði getað endað í markinu!
Qarabag
79. mín
InnRenaldo Cephas
ÚtAbdellah Zoubir
Vestri
78. mín
InnBirkir Eydal
ÚtGunnar Jónas Hauksson
Vestri
77. mín
InnJohannes Selvén
ÚtBreki Þór Hermannsson
77. mín
Seinni hálfleikurinn hefur verið rólegur, lítið um færi og stóra sénsa. Það er að mestu sama sagan Qarabag halda boltanum meira en Vestri og Vestri reyna að sækja hratt.
73. mín
Cafu er komin inn á, gott fyrir Vestra.
72. mín
Cafu Phete liggur og þarf aðhlynningu, það síðasta sem Vestramenn þurfa er annar lykilmaður af velli í meiðsli. Vonum að það sé í lagi með Cafu.
Qarabag
65. mín
InnElvin Jafarguliyev
ÚtBruno Langa
Qarabag
65. mín
InnElvin Jafarguliyev
ÚtBruno Langa
Qarabag
65. mín
InnJaly Mouaddib
ÚtOlexiy Kashchuk
Qarabag
65. mín
InnSamuel Lobato
ÚtMarko Jankovic
64. mín
Edson Gomes!
Vestri í góðri sókn sem endar á hættulegu skoti frá Edson sem breytti aðeins um stefnu á leiðinni að marki og Mateusz Kochalski markmaður Qarabag rétt nær að koma líkamanu fyrir þetta.
Vestri
58. mín
InnGuðmundur Páll Einarsson
ÚtGuðmundur Arnar Svavarsson
Vestri
58. mín
InnChriss-Albin Mörfelt
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
57. mín
Frábær varsla!
Kady á hættulegt skot að marki á vítarteigshorninu, skotið er gott í fjærhornið en Marvin ver frábærlega frá honum.
54. mín
Qarabag í góðri stöðu sem endar á skoti sem Marvin ver. Eftir á er dæmd rangstæða á Qarabag.
52. mín
Hættulegt hjá Vestra!
Guðmundur Arnar sendir góðan bolta fyrir mark Qarabag en bæði Breki og Þórður ná ekki að koma fæti í boltann.
51. mín
Seinni hálfleikur fer rólega af stað.
46. mín
Seinni hálfleikur farin stað
45. mín
Beint streymi
45. mín
Asersku risarnir leiða í hálfleik
Qarabag 79% með boltann í fyrri hálfleik og eiga tvö skot á markið sem bæði enduðu með marki. Vestri reyna að verja markið og hafa gert það vel á köflum.
Qarabag
45. mín
Mark á hræðilegum tíma

Abdellah Zoubir

Abdellah Zoubir vinnur boltann af Elmari á hættulegum stað og brunar upp kantinn, hann kemst inn á teginn og vippar snyrtilega yfir Marvin í markinu.
45. mín
+2 mínútur í uppbót
42. mín
Rólegt yfir leiknum um þessar mundir, Qarabag halda boltanum töluvert meira og Vestri reyna að sækja hratt.
37. mín
Kady með fast skot yfir í álitlegri stöðu.
32. mín
Vestri sækja
Breki Þór tekur langt innkast inn á teig Qarabag sem Qarabag hreinsa frá.
Qarabag
30. mín
Qarabag brýtur ísinn!

Zakaria Sawo (stoðsending: Olexiy Kashchuk)

Olexiy Kashchuk leikur á Þórð Gunnar á vinstri kantinum og á frábæra fyrirgjöf beint á kollinn á Zakaria Sawo sem er aleinn og yfirgefinn í teig Vestra og skallar boltanum í markið.
29. mín
Smá töf á leiknum, sýnist Bruno Langa vistri bakvörður Qarabag liggur og fær aðhlynningu.
27. mín
Qarabag ógna
Marko Jankovic á skot á vítateigslínunni sem er langt yfir.
Vestri
26. mín
InnJacob Stensson
ÚtIbrahima Balde
Virðist hafað fenguð högg á öxlina og þarf að fara meiddur útaf.
25. mín
Dauðafæri!
Zakaria Sawo framherji Qarabag kemst í stórhættulegt skallafæri og skallar yfir.
8. mín
Breki Þór á fyrstu tilraun Vestra úr aukaspyrnu, hans skot fór í varnarmann Qarabag.
5. mín
Qarabag á fyrstu hornspyrnu leiksins, sem þeir nýta sér ekki.
3. mín
Marko Jankovic tekur aukaspyrnuna og hittir ekki markið.
Vestri
2. mín
Gult spjald

Sergine Modou Fall

Fyrir leik
Fyrsti Evrópuleikur í sögu Vestra farin af stað!
Streymið er ennþá niðri því miður.
Fyrir leik
Það styttist í að leikurinn fari af stað, lýsandi er að treysta á streymi frá CBS sports í dag. Streymið liggur niðri þessa stundina, en vonandi dettur það inn sem fyrst!
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindinn
Byrjunarlið fyrir fyrsta Evrópuleik í sögu Vestra er komið í loftið og helstu tíðindi hjá Vestra eru þau að, fyrirliðinn Elmar Atli Garðarsson kemur inn í liðið ásamt þeim Gunnari Jónasi Haukssyni, Ibrahima Balde og Sergine Fall. Chriss-Albin Mörfelt, Emmanuel Duah, Guðmundur Páll Einarsson og Jacob Stensson taka sér sæti á bekknum.
Fyrir leik
20.500 gegn 16 á pöllunum
Samkvæmt samfélagsmiðlum Qarabag er von á 20.500 stuðningsmönnum Qarabag á völlinn í dag og samkvæmt samfélagsmiðlum Vestra eru 16 stuðningsmenn þeirra mættir til Bakú.
Fyrir leik
Ætti að vera auðveldur sigur Qarabag ef litið er á stuðlana
Fyrir leik
Aðeins meira um Qarabag
Undanfarnar vikur hefur lið Qarabag verið að æfa og spila í Austurríki. Liðið hefur spilað þrjá leiki á undirbúningstímabili sínu. Fernecváros 1-0 Qarabag Qarabag 2-6 FC Kharkiv Triol 0-4 Qarabag Eins og áður var skrifað hafa Qarabag verið duglegir á félagsskiptamarkaðnum, Qarabag hafa sótt 8 leikmenn og 7 leikmenn hafa farið frá félaginu, af þessum 8 sem hafa farið frá félaginu má segja að tveir þeirra séu algjörir lykilmenn og þeir eru Leandro Andrade sem hefur verið einn besti leikmaður Qarabag síðustu ár og Kevin Medina miðvörður sem hefur spilað hjá liðinu síðustu 6 ár. Nýjar fréttir af leikmannamálum Qarabag eru þær að Camilo Duran framherji þeirra er líklega á leið til Celtic í Skotlandi, Duran skoraði 15 mörk á síðasta tímabili.
Mynd: EPA
Fyrir leik
Styttist í lykilmann
Fatai Gbadamosi miðjumaður Vestra verður í leikmannahópi liðsins gegn Qarabag, hann er ekki orðin spilfær, að hann sé komin í leikmannahóp Vestra eru frábærar fréttir fyrir liðið. Fatai var frábær á síðasta tímabili í Bestu deildinni með Vestra en varð fyrir því óláni að slíta krossband seinni hluta tímabilsins. Fatai var valin leikmaður tímabilsins hjá Vestra og íþróttamaður Ísafjarðarbæjar í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Mikil spenna og þurfa heppni
Elmar Atli Garðarsson fyrirliði Vestra sat á bekknum gegn Grindavík í síðustu umferð Lengjudeildarinnar, eftir leikinn var hann spurður út í komandi leik gegn Qarabag. ,,Það verður hrikalega gaman og spennandi að fá að spila við svona stórt lið. Maður er ekki alveg búinn að leyfa sér að verða spenntur fyrir þessu fyrr en kannski núna". ,,Við þurfum að eiga okkar allra besta dag og sennilega vera svolítið heppnir líka til að ná að keyra þetta í gegn. Við förum þangað brattir og pressulausir þannig að það verður bara stuð".
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samúel Samúelsson meðstjórnandi í stjórn fótboltadeildar Vestra var einnig í áhugaverðu viðtali við Fótbolta.net.
Fyrir leik
Vestri að spila fyrsta Evrópuleik í sögu félagsins
Bikarmeistarar Vestra eru að fara í sitt fyrsta Evrópu ævintýri í sögu félagsins og byrja það á virkilega sterkum andstæðing. Liðið varð Mjólkurbikarsmeistari á síðasta tímabili eftir að hafa unnið Val í æsispennandi leik á Laugardalsvelli. Liðið spilaði þá í Bestu deildinni, en í dag spilar liðið í Lengjudeildinni og er komið í hóp fárra liða til að spila í Evrópukeppni í næst efstu deild.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Vestramenn sitja í 4. sæti Lengjudeildarinnar með 21 stig. Vestri byrjuðu tímabilið höktandi og áttu erfitt með að tengja saman sigra og frammistöður. Eftir því sem hefur liðið á sumar þá hafa sigrar og góðar frammistöður dottið inn og Vestramenn eru í ágætis gír. Liðið hefur gert tvö jafntefli í röð gegn Þrótti og Grindavík en fyrir það unnu þeir tvo leiki. Ibrahima Balde er markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu með 4 mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Risarnir frá Aserbaídsjan
Qarabag ætti að vera fótbolta áhugamönnum vel kunnugt, liðið hefur marg oft spilað í Evrópukeppnum UEFA og nú síðast í Meistardeild Evrópu þar sem þeir fóru í umspil um að komast í 16. liða úrslit.
Mynd: EPA
Qarabag er lang stærsta lið Aserbísjan, liðið hefur unnið efstu deild í Aserbísjan 12 sinnum og bikarinn 8 sinnum. Í fyrra endaði liðið í 2. sæti asersku deildinni. Liðið hefur verið virkt á leikmanna markaðnum undarfarnar vikur og styrkt sig mikið, á móti kemur hafa þeir misst stóra pósta. Ef allt er eðlilegt þá ætti þetta einvígi að vera nokkuð auðvelt fyrir Qarabag. Þjálfari Qarabag heitir Qurban Qurbanov og hefur stýrt liðinu frá árinu 2008, eða í um 18 ár. Undirritaður vill fullyrða að hann sé líklega á meðal þriggja lengst starfandi þjálfara hjá sama liði í Evrópu.
Mynd: EPA
Fyrir leik
Dómarakvarett dagsins kemur frá Norður-Makedóníu
Dómari leiksins í dag er Roman Jitari honum til halds og trausts eru þeir Vlad Lifciu og Vadim Vicol. Fjórði dómari er Andrei Breguta. VAR dómarar dagsins koma frá Sviss og heita Luca Cibelli og Anojen Kanagasingam.
Fyrir leik
Evrópudeildin heilsar!
Góðan daginn kæra fólk og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu á leik Qarabag og Vestra í forkeppni Evrópudeildarinnar. Leikurinn fer fram á, Tofiq Bahramov vellinum í Baku, völlurinn tekur 31.850 manns í sæti og er þjóðarleikvangur Aserbaídsjan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.