Fotbolti.net
Besta deildin
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta kvenna
JBÓ völlurinn
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík
0 - 0
FH
FH
Dómari: Ronnarong Wongmahadthai
Fyrir leik
Innbyrðis viðreign
Saga Grindavík/Njarðvík er ekki löng en þessi félög kepptu fyrst undir sameiginlegum merkjum á síðasta tímabili. Tvívegis hafa þessi lið þó mæst og það var í bæði skiptin á þessu ári. Annarsvegar í Lengjubikar þar sem Grindavík/Njarðvík hafði betur með einu marki gegn engu og svo í 3. umferð Bestu deild kvenna þar sem FH hafði betur með tveimur mörkum gegn einu. Liðin eiga því einn sigur á haus.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Fyrir leik
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík sitja fyrir miðja deild í 6.sæti deildarinnar með 12 stig eftir tíu umferðir. Þær eru í þéttum pakka um miðja deild en aðeins þrjú stig skilja að í botnsæti deildarinnar og aðeins 4 stig skilja á milli 5. sætis og 12. sætis. Grindavík/Njarðvík hafa aðeins verið að hiksta en þær hafa sótt fimm stig af mögulegum 15 í síðustu fimm umferðum. Þær máttu þola 1-0 tap á Akureyri í síðustu umferð gegn Þór/KA þrátt fyrir að hafa verið heilt yfir sterkari aðilinn í þeim leik. Grindavík/Njarðvík vonast til þess að komast aftur á sigurbraut og ógna baráttu í top fjórum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
FH
FH sitja á toppi deildarinnar með 23 stig eftir tíu umferðir. Þær eru tveimur stigum á undan Breiðablik fyrir þessa umferð og eru því í hörku toppbaráttu. Gengi FH hefur verið gríðarlega gott síðust umferðir en stelpurnar úr Hafnarfirði hafa sótt 13 stig af 15 mögulegum í síðustu fimm umferðum deildarinnar. FH vann gríðarlega öflugan endurkomusigur á Þrótti í síðustu umferð 7-3 eftir að hafa lent 0-2 undir í leiknum en Ída Marín Hermannsdóttir skoraði fimm mörk í þeim leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymið
Ronnarong Wongmahadthai fær það verkefni að halda utan um flautuna hér í kvöld og honum til aðstoðar verða Tijana Krstic og Ricardas Kanisauskas. Arnar Hólm Einarsson er svo fjórði dómari hér í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Velkomin á JBÓ völlinn!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Grindavík/Njarðvík og FH í 11. umferð Bestu deild kvenna sem fram fer á JBÓ vellinum í Njarðvík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.