SKÝRSLAN: Jafntefli í Eyjum í hörkuleik
Hvað réði úrslitum?
Eyjamenn byrjuðu leikinn mun betur og voru í raun betra liðið í fyrri hálfleik. ÍBV Nýtti færin sín illa í fyrri háfleik en KA komust yfir upp úr engu. Eftir það var mikið barátta og í raun sanngjarnt jafntefli.
Bestu leikmenn
1. Birgir Balvinsson
Leggur upp fyrra markið og skorar það seinna fyrir KA. Var einnig solid varnarlega og stóð fyrir sínu.
2. Vicente Valor
Öflugur inn á miðjunni hjá ÍBV og öruggur í sínum aðgerðum. Hann missir nær aldrei boltann og tengir spilið hjá ÍBV. Skorar svo örugglega úr vítaspyrnu leiksins og jafnar leikinn fyrir ÍBV.
Atvikið
Þau eru nokkur! Arnór Ingi hefði mögulega átt að fá vítaspyrnu þegar hann brunar upp kantinn og er tekinn niður inn í teig snemma leiks. Er líklega refsað fyrir það að reyna að standa af sér. Einnig ber að nefna rauða spjaldið sem Omar Sowe fékk í síðari hálfleik eftir stimpingar inn í markteig KA manna.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að ÍBV halda KA mönnum enn fyrir neðan sig í deildinni og fallbaráttan harðnar. Eyjamenn eru með 16 stig í sjötta sæti og KA eru með 14 stig í tíunda.
Vondur dagur
Omar Sowe var alls ekki lélegur í þessum leik og skoraði auðvitað fyrra mark ÍBV. En hann lætur reka sig mjög klaufalega útaf og skilur samherja sína eftir í erfiðri stöðu.
Dómarinn - 5
Mér fannst Gunnar Oddur engan veginn halda einhverri línu í þessum leik. Töluvert um spjöld fyrir lítil atriði og svo ekki spjöld við meira tilefni. Svo er spurning með hvort að Arnór Ingi hefði átt að fá vítaspyrnu snemma í leiknum. Rauða spjaldið og vítið líklega rétt hjá honum en erfitt var að sjá.



