Fotbolti.net
Besta deildin
Hafþór Örn Laursen
Hafþór Örn Laursen
Besta kvenna
AVIS völlurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 0
Víkingur R.
Víkingur R.
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Fyrir leik
Spá fyrir leik
Alma Mathiesen, leikmaður HK í Lengjudeildinni, spáði fyrir 13. umferð í Lengjudeildinni og hafði þetta að segja um leikinn í kvöld.

Þróttur R. 1 - 2 Víkingur R. (19:15 í kvöld)
Víkingar koma gíraðar inn í leikinn staðráðnar í að koma sér upp úr fallsæti. Jafn leikur á milli tveggja góðra liða. Kristín Erla skorar sigurmark Víkings með skalla á lokamínútunum.
Fyrir leik
Víkingur
Víkingur hefur einnig átt erfitt uppdráttar og hefur ekki sigrað leik í rúma tvo mánuði.

Víkingur situr í neðsta sæti deildarinnar og eru með eitt jafntefli úr seinustu fimm og 4 tapleiki.

Víkingur hefur misst nokkra leikmenn í glugganum, þ.á.m. Birtu Birgisdóttir í Grindavík/Njarðvík og Freyju Stefánsdóttur í Djurgårdens í Svíðþjóð, en fengu alvöru liðsstyrk í markið í Telmu Ívarsdóttur, en hún kom frá Rangers í Skotlandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þróttur
Þróttarar hafa átt það erfitt seinustu mánuði, en liðið hefur ekki unnið deildarleik síðan 29. maí. Þær töpuuðu fjórum leikjum í röð í deildinni en það gefur þeim smá kikk að þær séu komnar í úrslit Mjólkurbikarsins eftir að hafa slegið ÍBV út 1-0 24. júlí seinastliðinn.

Þróttur situr eins og er í 6. sæti en hafa gert eitt jafntefli í esinustu fimm og tapað rest.
Þær hafa fengið liðsstyrkingar í Katie Cousins og Bríeti Fjólu, en þær spiluðu sínar fyrstu mínútur í Þróttaratreyju þetta tímabilið í seinasta leik gegn Fram.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið
Dómari leiksins er Brynjar Þór Elvarsson, en honum til halds og trausts eru Óliver Thanh Tung Vú og Ingibjörg Garðarsdóttir Briem. Fjórði dómari er Ásmundur Þór Sveinsson og eftirlitsmaður er Kristján Halldórsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Laugardalsleikur!
Gott kvöld kæru lesendur og veirð hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá AVIS-vellinum, þar sem Þróttur og Víkingur etja kappi í 13. umferð Bestu Deildar kvenna!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.