Fyrir leik
Félagsskiptaglugginn
Fyrir leik
Alma Spáir í umferðina
Alma Mathiesen, leikmaður HK í Lengjudeildinni er spámaður umferðarinnar
Stjarnan 2 - 1 Grindavík/Njarðvík
Býst við fjörugum og opnum leik, þar sem bæði lið reyna að sækja sigurinn. Verður mikið af færum en ekki endilega mörg mörk skoruð. Úlfa Dís setur tvö og tryggir Stjörnunni sigurinn.

Býst við fjörugum og opnum leik, þar sem bæði lið reyna að sækja sigurinn. Verður mikið af færum en ekki endilega mörg mörk skoruð. Úlfa Dís setur tvö og tryggir Stjörnunni sigurinn.
Fyrir leik
Fyrri viðureignir
Liðin hafa mæst 3x á árinu, þann 3. mars mættust liðin fyrst í Lengjubikarnum og fóru leikar þá 2-2.
Liðin mættust svo í Bestu deildinni 20. maí sl. og var þá aftur jafntefli 1-1.
Eins og áður hefur komið fram þá mættust liðin svo einnig í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins þar sem staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma en Ása Björg Einarsdóttir tryggði svo Grindavík/Njarðvík áfram með marki í framlengingunni.

Grindavík/Njarðvík
Gri/Nja konur sitja í 5. sæti með 15 stig, 5 stigum á eftir ÍBV í 4. sætinu og 2 stigum á undan Þrótti R. og Fram í 6. og 7. sætinu.
Gri/Nja koma inn í þennan leik á sigurbraut í þéttu leikjaprógrammi! Þær sigruðu Þrótt 4-2 fyrir rúmlega viku í deildinni þar sem splunkunýr leikmaður þeirra Santa Sanija Vuskane kom inn á 65. mínútu og setti þrennu í sínum fyrsta leik fyrir félagið
Þær tryggðu sig svo í úrslit Mjólkurbikarsins með 0-3 sigri á Fram sl. laugardag. Þetta er því 3. leikurinn þeirra á rúmlega viku.
Þær eru því í hörkustuði þessa dagana og ég býst ekki við neinu öðru en hörkuframmistöðu í kvöld!

Stjarnan
Stjörnukonur sitja fyrir þennan leik í 3. sæti með 21 stig eða 8 stigum á eftir toppliði FH og 6 stigum á eftir Breiðablik í 2. sætinu. Þær eru svo einungis 1 stigi á undan ÍBV sem sitja í 4. sætinu.
Stjarnan hafði fyrir síðasta leik gegn FH ekki tapað leik í deildinni síðan 10. maí þegar þær mættu einmitt FH í fyrri umferðinni. Þær voru fyrir þann leik einmitt líka það lið sem hafði fengið fæst mörk á sig en þær fengu 7-3 skell gegn FH o misstu þann titil til Blikanna.
Fyrir utan leikinn gegn FH þá hefur Stjarnan þó átt góðar frammistöður og þá eiga þær harma að hefna gegn Grindavík/Njarðvík sem sló þær út úr bikarnum.
Ég held því að við ættum að fá vel gírað Stjörnulið hér í kvöld! Svara fyrir skellinn gegn FH og hefna fyrir bikarinn fyrr í sumar.

14. umferðin
Umferðin hefst í dag með tveimur leikjum og klárast svo með þremur leikjum á morgun.
Umferðin lítur þá svona út:
Í dag:
19:15 Þróttur R. - Víkingur R.
19:15 Stjarnan - Grindavík/Njarðvík
Á morgun:
18:00 Breiðablik - Þór/KA
18:00 ÍBV - FH
19:15 Fram - Valur

Umferðin lítur þá svona út:
Í dag:
19:15 Þróttur R. - Víkingur R.
19:15 Stjarnan - Grindavík/Njarðvík
Á morgun:
18:00 Breiðablik - Þór/KA
18:00 ÍBV - FH
19:15 Fram - Valur

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Hallgrímur Viðar Arnarson og honum til halds og trausts verða Mikael Ívan Axelsson og Daníel Örn Arnarson aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er Reynir Ingi Finnsson og eftirlitsmaður í kvöld er Ólafur Ingi Guðmundsson

Fjórði dómari er Reynir Ingi Finnsson og eftirlitsmaður í kvöld er Ólafur Ingi Guðmundsson

Fyrir leik
Besta deildin kallar!
Verið hjartanlega velkomin í þessa textalýsingu þráðbeint frá Samsungvellinum þar sem Stjarnan tekur á móti Grindavík/Njarðvík í 14. umferð Bestu deildarinnar.
Leikurinn hefst á slaginu 19:15!

Leikurinn hefst á slaginu 19:15!

Rakel og Rut eru báðar farnar út og þá var Maci Nicole Teater seld til Bandaríkjanna. Þá virðist markmaðurinn Lauren Kellett vera hætt.
Í staðinn hafa Grindavík/Njarðvík fengið Elísu Birtu og Birtu Birgisdóttur frá Víking og Hrafnhildi Sölku frá Val á láni auk þess sem heimakonan Júlía Ruth Thasaphong er komin aftur heim. Þá hafa Hugrún Helgadóttir og Stígheiður einnig gert félagsskipti í liðið. Þá hafa þær einnig sótt eins og áður sagði lettnesku landsliðskonuna Santa Sanija Vuskane, hina bandarísku Hayden Colson auk nýs markmanns, Kelly Steen
Stjarnan
Ekkert hefur verið að frétta hjá Stjörnunni í leikmannakaupum en þær hafa þó misst nokkra leikmenn í skóla til Bandaríkjanna. Óskar Smári átti ekki von á neinni styrkingu og vísaði á stjórn Stjörnunnar í viðtali eftir síðasta leik.