Fyrir leik
Heldur sigurgangan áfram?
Fram er í 7. sæti deildarinnar með 13 stig, þremur meira en Valskonur og tapi heimakonur í dag fer Valur upp fyrir þær. Fram fékk skell um helgina, tapaði 0-3 gegn Grindavík/Njarðvík í undanúrslitum Mjólkurbikarsins. Þar á undan hafði Fram unnið þrjá deildarleiki í röð og komið sér úr botnsætinu sem liðið hafði vermt allt tímabilið. Það er spurning hvort Fram haldi áfram á sömu braut í deildinni og nái að slíta sig örlítið frá Val.


Fyrir leik
Gestirnir í vandræðum
Valskonur eru í 10. og síðasta sæti deildarinnar en það er í fyrsta skipti í sögu félagsins sem kvennaliðið er í fallsæti. Valur er sigurlaust í síðustu sex leikjum og skoraði einungis fjögur mörk í þeim leikjum. Varnarleikurinn hefur þó verið flottur í sumar ef við tökum síðasta leik út fyrir sviga. Þar tapaði liðið 1-7 gegn Breiðabliki á heimavelli.

22.07.26 08:35
Víðir Sig: Söguleg staða og skellur hjá Val, tímamót hjá FH og fjórar með stóra áfanga

Fyrir leik
Þriðja liðið
Reynir Ingi Finnsson er á flautunni. Honum til aðstoðar eru Steinar Stephensen og Ingólfur Kristinn Magnússon. Fjórði dómari er Hallgrímur Viðar Arnarson.


Fyrir leik
Reykjavíkurslagur
Heil og sæl öll sömul og verið þið velkomin í textalýsingu frá Lambhagavellinum. Hér mun Fram taka á móti Val í lokaleik 13. umferðar í Bestu deild kvenna.






