Fotbolti.net
Besta deildin
Tryggvi Guðmundsson
Besta karla
Hásteinsvöllur
Sól og vindur í allar áttir.
ÍBV
ÍBV
1 - 2
Fram
Fram
0 - 117' Sigurður Arnar Magnússon (sjm)0 - 243' Freyr Sigurðsson (víti)Vicente Rafael Valor Martínez (víti) 78'1 - 281' Rúnar Kristinsson
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Leik lokið!
Fram sigur í Eyjum!
Fram vinnur nokkuð sanngjarnan 1-2 sigur í Þjóðhátíðarleiknum.
98. mín
Haraldur Einar með skot fyrir utan teig en það er fram hjá.
97. mín
Hættuleg aukaspyrna frá Bjarka inn á teig Fram en Liam er svo dæmdur brotlegur eftir að hafa farið í Viktor.
94. mín
Fram í færi!!
Freyr fékk boltann hægra meginn og keyrir inn á teiginn og setur boltann fyrir en boltinn fer í gegnum alla.

Vantaði einhvern til að pota boltanum inn!
91. mín
Sesar nálægt því að sleppa í gegn Sigurjón kemur til bjargar.
90. mín
+8 í uppbótartíma.
Fram
89. mín
Gult spjald

Bjarni Páll Linnet Runólfsson

Fer alltof seint í Bjarka Björn.
ÍBV
86. mín
InnRóbert Elís Hlynsson
ÚtMilan Tomic
ÍBV
86. mín
InnViggó Valgeirsson
ÚtVicente Rafael Valor Martínez
Fram
85. mín
Gult spjald

Sigurjón Rúnarsson

Fer mjög harkalega í Liam Daða.
83. mín
Felix með hættulega spyrnu út aukaspyrnunni en hann fer í gegnum allan pakkann og endar í innkasti.
82. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á fínum stað, soldið fyrir utan teig. Sesar tekinn niður.
Fram
81. mín
Rautt spjald

Rúnar Kristinsson

Beint rautt á Rúnar þjálfara Fram. Lætur í sér heyra ósáttur við dómgæsluna. Rúnar verður í stúkunni gegn KR í næstu umferð.
Fram
80. mín
Gult spjald

Frederico Bello Saraiva

Fram
80. mín
InnJakob Byström
ÚtVuk Oskar Dimitrijevic
Fram
80. mín
InnBjarni Páll Linnet Runólfsson
ÚtFrederico Bello Saraiva
ÍBV
78. mín
ÍBV AÐ MINNKA MUNINN!

Vicente Rafael Valor Martínez

Vicente með örugga spyrnu niðri vinstra megin við Viktor.

Fram
78. mín
Gult spjald

Israel Garcia Moreno

77. mín
ÍBV fær víti!!!
Bjarki Björn með frábæra sendingu í gegn á Sesar og Israel tekur hann niður inn á teig.
75. mín
Alex Freyr liggur eftir á vellinum eftir samstuðið við Viktor Frey.
75. mín
Felix með aukaspyrnu fyrir ÍBV inn á teiginn en Viktor kemur út úr markinu og svo er brotið á honum.
74. mín
Arnór Ingi með fyrirgjöf frá hægri sem Framarar hreinsa frá.
72. mín
Flottur sprettur hjá Haraldi sem kemur sér inn á teiginn og vinnur hornspyrnu fyrir Fram.
ÍBV
67. mín
Gult spjald

Arnór Ingi Kristinsson

ÍBV
67. mín
Gult spjald

Bjarki Björn Gunnarsson

Fram fær aukaspyrnu á fínum stað úti vinstra megin. Vuk tekinn niður.
Fram
65. mín
InnIsrael Garcia Moreno
ÚtKyle Douglas Mc Lagan
64. mín
Vicente með fyrirgjör frá hægri inn á markteiginn en Liam nær ekki til boltans.
63. mín
Liam fékk boltann á hægri vængnum og reynir að skipta boltanum yfir á Sesar en Sigurjón kemur boltanum frá.
ÍBV
62. mín
InnLiam Daði Jeffs
ÚtHalldór Jón Sigurður Þórðarson
62. mín
Bjarki í færi!!
Felix kom með fyrirgjöf frá vinstri sem Viktor slær út í teiginn beint fyrir fætur Bjarka sem er í fínni skotstöðu á vítapunktinum en skot hans fer yfir markið.
59. mín
Frekar lítið að frétta þessa stundina. Eyjamenn reyna enn að finna glufur en frekar hugmyndasnautt.
54. mín
Vicente með frábæra sendingu inn á Halldór Jón inn á teig Fram en í stað þess að skjóta bara þá reynir hann að setja boltann aftur út í teiginn og þar er enginn Eyjamaður.

Boltinn barst svo Felix sem tók skotið á vítateigshornið en það er hátt yfir.
Fram
53. mín
Gult spjald

Þorri Stefán Þorbjörnsson

ÍBV
49. mín
Gult spjald

Felix Örn Friðriksson

Fer alltof seint í Fred.
48. mín
Fred tók hornspyrnu fyrir fram og boltinn endaði hjá Ægir Jarl sem tók skotið út teignum en það er það laust og fer til Ara.
47. mín
Vicente með fyrirgjöf inn á teiginn sem Framarar hreinsa og boltinn endar hjá Bjarka sem tekur skotið en aftur hreinsa Framarar.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Þetta er farið af stað aftur.

Sesar sparkar þessu í gang!
45. mín
Hálfleikstölfræði
Mynd: Fótbolti.net

45. mín
Hálfleikur
Fram leiðir með tveimur mörkum í hálfleik
Frekar leiðinlegur hálfleikur og myndi segja að Fram sé með sanngjarna forystu. Eyjamenn eru í veseni með að skapa sér alvöru færi.
45. mín
Bjarki Björn með skotið rétt fyrir utan teig en það er hátt yfir.
45. mín
Felix með skot af löngu færi en það fer hátt yfir.
45. mín
ÍBV fékk aukaspyrnu vinstra meigin á vallarhelmingi Fram sem Felix tekur og ÍBV fær svo hornspyrnu í kjölfarið.
45. mín
Mynd frá Eyjum
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Þorkelsson

45. mín
+5 í uppbótartíma.
Fram
43. mín
0-2!

Freyr Sigurðsson

Öruggt víti hjá Frey, setur hann niðri hægra megin við Ara og tvöfaldar forystu Framara!
43. mín
Víti!!!
Fram fær víti!! Sigurður Arnar klippir Vuk niður inn á teig.
40. mín
Vicente með lúmska sendingu inn á teiginn hjá Fram en Viktor Freyr er á undan Halldóri Jón í boltann.
38. mín
Freyr með fyrirgjöf sem Edeland hreinsar í burtu.
ÍBV
37. mín
Gult spjald

Halldór Jón Sigurður Þórðarson

Fram
36. mín
Gult spjald

Ægir Jarl Jónasson

35. mín
Vel spilað hjá Fram sem endar á Ægir Jarl fær boltann vinstra megin og kemur inn á teiginn. Hann nær hins vegar ekki að finna neinn inn á teignum og ÍBV kemur boltanum í innkast.
32. mín
Freyr með flottan sprett upp vinstri kantinn og fer inn völlinn og kemur boltanum á Harald sem fer í skotið en það fer af varnarmanni og til Ara.
ÍBV
28. mín
InnSesar Örn Harðarson
ÚtHermann Þór Ragnarsson
Hermann getur ekki haldið leik áfram.
28. mín
Tomic fékk boltann frá Arnóri Inga og tekur skotið í fyrsta fyrir utan teig en það er fram hjá markinu.
26. mín
Fred með sendingu frá vinstri inn á teiginn á Ægi Jarl en hann nær ekki góðri snertingu á boltann og Sigurður Arnar kemur boltanum í burtu.
24. mín
Vel spilað hjá Fram. Vuk fékk boltann hægra megin og kemur boltanum á Fred inn á teig ÍBV en hann nær ekki að koma sér í skotfæri.

Kom svo fyrirgjöf frá hægri á Vuk en skallinn frá honum laus og beint í hendur Ara.
21. mín
Eyjamenn spila ágætlega hérna á vallarhelmingi Fram en ná ekki að finna glufur á þéttri vörn Framara.
Fram
17. mín
Framarar komast yfir!

Sigurður Arnar Magnússon (stoðsending: Ægir Jarl Jónasson) (sjm)

Freyr Sigurðsson fékk boltann hægra megin og kom með góðan bolta inn á teiginn. Ægir Jarl nær smá snertingu á boltann og Sigurður Arnar rekur út fótinn og setur boltann í eigið mark. Frekar óheppilegt mark!

0-1!!
14. mín
Bjarki Björn með skot fyrir utan teig en það fer í varnarmann og Framarar fá boltann.
13. mín
Lítið að frétta hérna.
11. mín
Felix með spyrnuna en hún fer beint í hendurnar á Viktori í marki Fram.
10. mín
Bjarki kemur með stungusendingu inn á Halldór Jón en Framarar setja boltann aftur fyrir og ÍBV fær horn.
7. mín
ÍBV tóku hornspyrnuna stutt og Felix kemur svo með fyrirgjöf sem fer langt fyrir markið.
Fram
6. mín
InnRóbert Hauksson
ÚtSimon Tibbling
Tibbling getur ekki haldið leik áfram.
4. mín
Simon Tibbling fékk boltann í höfuðið og liggur eftir á vellinum.
4. mín
Eyjamenn fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
3. mín
Hermann fær langa sendingu frá Sigurði Arnar vinstra megin á vellinum og leggur boltann út í teiginn en Framarar koma boltanum burt.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað.

Gestirnir eiga upphafsspyrnuna.
Fyrir leik
Byrjunarlið
Heimamenn í Vestmannaeyjum gera þrjár breytingar frá naumu tapi gegn Breiðabliki í síðustu umferð.

Milan Tomic, Hermann Þór Ragnarsson og Halldór Jón Sigurður Þórðarson koma inn í byrjunarliðið fyrir Sesar Örn Harðarson, Viggó Valgeirsson og Róbert Elís Hlynsson sem setjast á bekkinn.

Framarar gera tvær breytingar þar sem lykilmaðurinn Kennie Chopart er í leikbanni vegna uppsafnaðra gulra spjalda og sest Róbert Hauksson á varamannabekkinn. Í þeirra stað koma Kyle Mc Lagan og Simon Tibbling inn í byrjunarliðið.
Fyrir leik
Fyrir leik
Eyjamenn að færast nær fallsvæðinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV situr í áttunda sæti Bestu deildarinnar og er aðeins þremur stigum fyrir ofan fallsæti. Það er afskaplega þéttur pakki þarna í neðri hlutanum og mörg lið í fallbaráttu. ÍBV hefur náð í eitt stig af níu mögulegum í síðustu þremur leikjum.
Fyrir leik
Fram vann 5-1 sigur á ÍBV í Dal draumanna

Þegar liðin mættust þann 27. apríl á heimavelli Fram unnu þeir bláu 5-1 sigur. Atli Þór Jónasson skoraði tvö mörk en Þorri Stefán Þorbjörnsson, Kyle McLagan og Kristófer Konráðsson komust einnig á blað fyrir Fram. Róbert Elís Hlynsson skoraði mark ÍBV. Varnarleikur Eyjamanna var hörmulegur í leiknum.
Fyrir leik
Fram aðeins tapað tveimur leikjum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framarar hafa átt þrusuflott sumar og eru í þriðja sæti deildarinnar með 34 stig. Liðið er með 10 sigurleiki, 4 jafntefli og hefur aðeins tapað tveimur leikjum. Virklega vel gert hjá Rúnari Kristinssyni og lærisveinum.
Fyrir leik
Fór Kennie viljandi í bann?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kennie Chopart, leikmaður Fram, fékk í sitt fjórða gula spjald í sumar í 0-0 jafnteflinu gegn FH og er því í leikbanni í dag. Það var eins og Kennie hafi viljandi krækt sér í gult spjald en hann tuðaði endalaust í Helga Mikael dómara þar til Helgi gat ekki annað en lyft gula spjaldinu.

Næsti leikur Fram eftir þennan verður gegn KR og með því að fá gula spjaldið gegn FH er Kennie öruggur með því að ná þeim leik.

„Dómgæslan var frábær, ekkert út á hana að setja. Ég veit ekki af hverju Kennie var pirraður, hann var pirraður af því að það var dæmt brot á hann örlítið áður, það sat ennþá í honum þegar hann þurfti að elta Kjartan Kára í gegnum vörnina og reyna bjarga einhverju. Ég hef bara ekki spurt hann að því, veit ekki hverju hann var að pirra sig á þessu, en hann er bara kominn í leikbann núna," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, við SÝN Sport eftir leikinn.
Fyrir leik
Sowe í banni - Þjálfararnir í fyrsta sinn á Þjóðhátíð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég sá þetta og mér fannst ekkert sérstakt vera í þessu. Þetta kom mér á óvart að þeir hefðu gefið honum tveggja leikja bann,“ sagði Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, eftir 1-0 tap Eyjamanna gegn Breiðabliki í síðustu umferð.

Sowe, sóknarmaður ÍBV, var í banni í Kópavogi og verður sömuleiðis ekki til taks gegn Fram í Þjóðhátíðarleiknum. Eyjamenn hinsvegar endurheimta Milan Tomic sem var í leikbanni gegn Blikum eftir að hafa fengið sitt sjöunda gula spjald á tímabilinu gegn KA.

Linta hlakkar til að taka þátt í Þjóðhátíðarleiknum en hann sækir hátíðina í fyrsta sinn, rétt eins og Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, sem sagði frá því í viðtali við Sýn á dögunum.

„Þetta verður mín fyrsta Þjóðhátíð og fyrsti leikur sem ég tek þátt á meðan hátíðinni stendur. Ég er mjög spenntur að koma til baka í þennan leik eftir þetta tap,“ sagði Linta.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarar dagsins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórður Þorsteinsson Þórðarson tók með sér flautuna og dæmir leikinn í dag. Egill Guðvarður Guðlaugsson og Antoníus Bjarki Halldórsson verða aðstoðardómarar. Eins og venjan er á Þjóðhátíð þá er Elías Ingi Árnason í teyminu en hann er fjórði dómari. Eftirlitsmaður er svo gleðigjafinn Viðar Helgason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Þjóðhátíð!
Mynd: ÍBV

Velkomin með okkur á Þjóðhátíð þar sem ÍBV og Fram eru að fara að eigast við klukkan 14:00.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.