SKÝRSLAN: Fram sigur á Þjóðhátíð
Hvað réði úrslitum?
Fram voru einfaldlega betri í þessum leik. Eyjamenn voru í vandræðum með að skapa sér færi, kannski aðeins undir lokin sem þeir náðu að valda einhverjum usla og lokakaflinn spennandi.
Bestu leikmenn
1. Freyr Sigurðsson
Var mjög góður í þessum leik. Skapaðast alltaf hætta þegar hann fékk boltann. Átti stóran þátt í fyrsta markinu þegar hann átti fyrirgjöfina inn á teiginn og skorar svo örugglega úr vítinu sem kom Fram í 0-2.
2. Ægir Jarl Jónasson
Var mikið í boltanum og var að koma sér í góðar stöður. Átti svo snertinguna á boltann í fyrra marki Framara.
Atvikið
Man ekki eftir neinu sérstöku atviki.
Hvað þýða úrslitin?
Fram kemst upp fyrir KR, að minnsta kosti þangað til þeir spila gegn FH á miðvikudaginn. Eru sem stendur í öðru sæti með 37 stig. Eyjamenn eru í áttunda sæti með 16 stig.
Vondur dagur
Sigurður Arnar Magnússon hefur átt betri daga. Skorar sjálfsmark og fær svo dæmt á sig víti.
Dómarinn - 6
ÞÞÞ lét leikinn fljóta vel í fyrri hálfleik og var ekki að flauta á mikið. Í síðari hálfleik var hann alveg nálægt því að missa tökin, því það var mikið um gróf brot og leikmenn að fara seint í tæklingar.



