Fotbolti.net
Kristján Hrafn Kristjánsson
Lengjudeild karla
Kerecisvöllurinn
Vestri
Vestri
0 - 3
Grótta
Grótta
0 - 11' Kristófer Dan Þórðarson0 - 225' Caden Robert McLagan0 - 385' Mattías Kjeld
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: Grótta með Vestra í vasanum

Hvað réði úrslitum?

Í stuttu máli þéttur varnarleikur og góð færanýting. Grótta var betri liðið á vellinum nánast allan leikinn, þeir fegnu Vestra til að spila sinn leik og Vestri náði þeim aldrei úr sínu kerfi. Sóknarleikur Vestra var stirður en það var að mestu vegna góðs varnarleiks frá Gróttu. Grótta fékk ekki mörg færi en nýttu þau vel þegar þau komu.

Bestu leikmenn

1. Dagur Bjarkason

Það voru margir góðir hjá Gróttu í dag og þrátt fyrir það að Dagur hafi hvorki skorað né lagt upp mark þá er hann maður leiksins. Dagur var frábær í hægri bakverðinum framan að og um miðjan seinni hálfleik færði hann sig inn á miðju, hann varðist vel og var yfir allan leikinn frábær.

2. Kristófer Dan Þórðarsson

Kristófer skoraði fyrsta mark Gróttu og var hættulegur fram á við þegar Grótta var með boltann. Einnig voru Andri Freyr Jónasson og Mattías Kjeld sterkir.

Atvikið

Atvikið var áhugavert og það var þegar Dagur Bjarkason rúllaði sér inn á völlinn beint fyrir framan Aðalbjörn dómara eftir að hann stoppaði leikinn vegna meiðsla Dags. Aðalbjörn virðist ekki hafa tekið eftir því og leyfði honum að halda leik áfram. Ég er ekki alveg með reglubókina á hreinu en ég er nokkuð viss um að þetta megi ekki.

Hvað þýða úrslitin?

Grótta vinnur þriðja leikinn í röð gegn Vestra á tímabilinu, Gróttu virðist líða vel að spila á móti Vestra. Grótta eru nú einu stigi frá Njarðvík sem er í 5. sæti og nálgast umspilið. Vestri eru í 7. sæti og fara hvorki upp né niður um sæti.

Vondur dagur

Sóknarleikur Vestra var ekki góður í dag, vörn Gróttu átti ekki í miklum erfiðleikum að verjast sóknaraðgerðum Vestra og færin voru fá hjá heimamönnum.

Dómarinn - 6

Aðalbjörn var ágætur í dag, nokkur sérstök atvik og tvö skipti sem Vestri vildi fá víti. Það fyrsta var að mínu mati hárrétt ákvörðun, seinna skiptið var erfitt að sjá og ég treysti því að hann hafi rétt fyrir sér þar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.