Fotbolti.net
Besta deildin
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Besta kvenna
N1-völlurinn Hlíðarenda
Valur
Valur
0 - 0
Víkingur R.
Víkingur R.
Fyrir leik
Liðsstyrkur í Fossvoginn
Miðjumaðurinn Saana Emilia Tuomala er gengin í raðir Víkings frá Åland United í heimalandinu. Hún getur bæði spilað sem miðjumaður og miðvörður. Saana Tuomala er með leikheimild og má spila í kvöld. Víkingur hefur líka náð í Telmu Ívarsdóttur frá Rangers en hún er þegar byrjuð að spila fyrir Víking.



Valur er ekki búin að vera eins aktívir á leikmannamarkaðinum, Valur hefur náð í einn leikmann, hana Emmu Hawkins. Hún hefur þegar byrjað einn leik fyrir Val. Það var í síðasta leik gegn Fram, þegar þær töpuðu 4-1.

Mynd: Valur

Fyrir leik
Óvæntur botnslagur?
Bæði liðin í dag eru í fallsæti, Valur er í 10. sæti og Víkingur er í 9. sæti. Síðasta sumar lenti Valur í 5. sæti og Víkingur í 6. sæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Valur hefur ekki unnið leik síðan 25. maí og var það gegn Víking á útivelli, leikurinn fór 0-1, Nadía Atladóttir fyrrum fyrirliði Víkings skoraði eina mark leiksins.

Víkingur hefur ekki unnið leik síðan 30. maí. Það var á útivelli gegn Þór/KA og fór leikurinn 4-6. Freyja Stefánsdóttir skoraði tvennu í þeim leik en núna spilar hún fyrir Djurgarden í Svíþjóð,


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Sú besta heilsar!
Heil og sæl kæru lesendur, það er komið að leik Vals og Víkings í 15. umferð Bestu Deild kvenna. Leikurinn er spilaður á Hlíðarenda og byrjar kl: 19:15.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.