Fotbolti.net
Besta deildin
Gylfi Már Þórðarson
Besta karla
HS Orku völlurinn
12°C, þungskýjað og smá gola. Fyrirtak til að spila knattspyrnu
Keflavík
Keflavík
3 - 0
KA
KA
Sindri Snær Magnússon 27'1 - 0Dagur Ingi Valsson 32'2 - 0Stefan Alexander Ljubicic 36'3 - 0Eiður Orri Ragnarsson 62'
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Níu mínútna sýning skilaði þremur stigum

Hvað réði úrslitum?

Níu mínútna kafli í fyrri hálfleik. Eftir glæsilegt mark Sindra Snæs héldu Keflvikingar áfram að þjarma að gestunum og skoruðu tvö mörk til viðbótar og gerðu út um leikinn.

Bestu leikmenn

1. Sindri Snær Magnússon - Keflavík

Stýrði miðjunni eins og herforingi í dag og kórónaði leik sinn með glæsilegu marki.

2. Axel Ingi Jóhannesson - Keflavík

Gerði engin mistök í dag og var eins og rennilás upp og niður kantinn. Gerði virkilega vel í öðru marki Keflavíkur þegar hann á góða stoðsendingu.

Atvikið

Annað mark Keflavíkur slökkti allan neista í KA-mönnum sem sáu ekki til sólar eftir það.

Hvað þýða úrslitin?

Keflvíkingar skilja sig aðeins frá fallpakkanum og koma sér fyrir í 5. sæti deildarinnar.
KA-menn sitja í 10. sæti deildarinnar einungis markatölunni frá því að vera í fallsæti.

Vondur dagur

Hér væri hægt að setja KA-liðið eins og það leggur sig en ég læt það duga að henda varnarlínunni eins og hún leggur sig undir rútuna. Annað mark Keflavíkur var allt of auðvelt og þriðja markið hefði verið hægt að koma í veg fyrir með því að bæta talandann á milli markvarðar og varnar.

Dómarinn - 2

Twana og hans aðstoðarmenn áttu ekki sinn besta dag í dag. Það var ósamræmi í því hvenær brot verðskulduðu gul spjöld eða ekki, Keflvíkingar telja sig hafa átt að fá vítaspyrnu og KA menn hefðu sömuleiðis getað fengið víti á lokaandartökum leiksins. Rauða spjaldið þótti vafasamt en þaðan sem ég stóð sá ég snertingu á milli Eiðs og Rømer, hvort það hafi verið brot skal ég ekki segja til um en Eiður lét sig ekki falla og virtist ætla að halda leik áfram án þess að biðja um eitt né neitt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.