Fotbolti.net
Besta deildin
Snæbjört Pálsdóttir
Besta kvenna
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
1 - 1
Þróttur R.
Þróttur R.
Fanney Lísa Jóhannesdóttir 49'1 - 01 - 171' Björg Gunnlaugsdóttir
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Leik lokið!
1-1
Jafntefli niðurstaðan hér á Samungvellinum annan leikinn í röð!

Bæði lið væntanlega svekkt að hafa ekki náð að stela sigrinum!

Þróttur byrjaði leikinn mun betur en Stjarnan mætti grimmari til seinni hálfleiks

Takk annars fyrir samfylgdina!
Viðtöl og skýrsla kemur inn síðar í kvöld
95. mín
Þóra María stöðvar Mist í hörkuhlaupi, Unnur Dóra fær síðan dæmt á sig vitlaust innkast
94. mín
Hææættta!
Stjörnukonur komast í hættulega sókn en Mist nær skallanum áður en Mollee handsamar svo boltann
93. mín
Sæunn tekur hornið sjálf, það er hætta á teignum, boltinn berst svo alla leið aftur til Mistar sem skýtur þessu bara af löngu færi og Skiba þarf að hafa sig alla við að ná þessum
92. mín
Úffff
Sæunn með höööörkuskot af löngu færi sem Skiba ver útaf!
90. mín
Ekki öll von úti!
A.m.k. 5 mínútur í uppbótartíma
89. mín
Úlfa Dís með frábæran bolta inn fyrir en þær ná þessu ekki! þær eru að ógnaaaa! Horn sem ekkert kemur úr
88. mín
Lítið eftir!
Nú fer að verða síðast séns fyrir annað hvort liðið að stela þessu!
87. mín
Fanney Lísa fær draumabolta í gegn en flaggið fer á loft!
86. mín
Sierra fær boltann út á kant, keyrir með hann sjálf, reynir svo fyrirgjöfina en beint á Skiba
85. mín
Andrea Mist með horn fyrir Stjörnuna, setur hann á miðjann teiginn en þær ná að koma þessu frá
83. mín
Andrea Mist með aukaspyrnu utan af hægri kanti en ekkert kemur úr henni
81. mín
Erika brýtur á Katie, búið að vera mikið um brot sem ekki er verið að flauta á, ekkert kemur þó úr þessari aukaspyrnu
80. mín
Sæunn með enn eitt hornið en Skiba blakar þessu frá
Stjarnan
79. mín
InnErika Ýr Björnsdóttir
ÚtBirna Jóhannsdóttir
Þróttur R.
78. mín
InnSierra Marie Lelii
ÚtBjörg Gunnlaugsdóttir
Skórnir teknir fram í morgun og er mætt á völlinn!
Stjarnan
78. mín
Gult spjald

Rósa María Sigurðardóttir

Stöðvar Björgu í hlaupinu
75. mín
Snædís kemur sér í góða stöðu en enginn mættur í fyrirgjöfina
Stjarnan
75. mín
InnRósa María Sigurðardóttir
ÚtMurielle Tiernan
Stjarnan
75. mín
InnHulda Hrund Arnarsdóttir
ÚtSandra Hauksdóttir
Þróttur R.
71. mín
MAAAARK!

Björg Gunnlaugsdóttir (stoðsending: Mist Funadóttir )

Þær jafna!

Mist með eðal fyrirgjöf lengst utan af kanti, boltinn svífur yfir hafsentaparið hjá Stjörnunni og Kaylu Rollinns hins vegar er Björg hárrétt kona á hárréttum stað og leggur boltann framhjá Skiba í markinu
69. mín
Andrea Mist með hörku tæklingu kemur í veg fyrir að Kayla Marie nái eað setja boltann fyrir markið, Horn sem ekkert kemur úr fyrir Þróttara nema sprettur upp hjá Fanneyju Lísu!
Stjarnan
67. mín
InnSnædís María Jörundsdóttir
ÚtMargrét Lea Gísladóttir
66. mín
Sæunn með hornið en það skellur ofan á marknetinu
66. mín
Bríet kemur sér strax í boltann, setur Kaylu í góða stöðu og nælir svo í hornspyrnu fyrir Þróttara,
Þróttur R.
64. mín
InnBríet Fjóla Bjarnadóttir
ÚtÞórdís Nanna Ágústsdóttir
64. mín
Úfffff
Murielle kemst í gegn, skilur Mollee eftir við endalínuna, setur svo boltann út í teiginn en enginn kemst þar í boltann nema María Eva sem er nálægt því að setja boltann í eigið mark, Þetta var séns fyrir Stjörnuna að tvöfalda
60. mín
Sæunn með hornið á miðjann teiginn en Stjörnukonur skalla þetta frá
59. mín
Sæunn tekur aukaspyrnu hratt upp á Kaylu se nælir í hornspyrnu fyrir Þróttara
59. mín
María Eva með fyrirfyrirgjöf en Skiba grípur þetta, liggur síðan eftir, eitthvað að hrjá hana
58. mín
aukaspyrna
Sæunn tekur aukaspyrnu á fínum stað, setur hann á fjær en ekkert kemur úr þessu
54. mín
Fæææriii
Kayla Marie kemst ein gegn Skiba en setur boltann beint á hana! Illa farið með gott færi!!
53. mín
Andrea með hornspyrnu, setur hann á teiginn, sýnist það vera Murielle sem nær skallanum, boltinn berst svo til Úlfu sem reynir að koma sér í gegn en skotið hennar síðan í hliðarnetið
Stjarnan
49. mín
MAAAARK!

Fanney Lísa Jóhannesdóttir (stoðsending: Birna Jóhannsdóttir )

Birna setur boltann í gegn og hver önnur en Fanney Lísa er þar mætt í hlaupið. Það nær henni enginn á hlaupinu og hún fer bara alein gegn Mollee og þrumar honum í fjærhornið! Fáránlega vel gert

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
46. mín
Andrea Mist tekur fyrsta hornið fyrir Stjörnuna í leiknum, tekur þetta stutt á nærstöngina og þær reyna að spila úr þessu en ná ekki að nýta þetta nægilega vel
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Murielle sparkar okkur aftur af stað!
45. mín
0-0 í hálfleik!
Þróttarar hljóta að naga sig í handabökin að hafa ekki náð að pota inn marki fyrstu í 20. mín þegar Stjarnan hreinlega var ekki mætt til leiks.

Það er hins vegar 0-0 hér í hálfleik og verður gaman að sjá hvort liðið fær spark í rassinn í hálfleik!

Ég nenni allavega ekki að fá annað 0-0 jafntefli í röð hér hjá Stjörnunni!
44. mín
Björg fer illa með Söndru, finnur svo Þórdísi Nönnu inn í teignum en hún skóflar boltanum hátt yfir
40. mín
Sæunn tekur þetta, fer á nærhornið og dómararnir virðast sjá Skiba snerta hann, annað horn sem endar með að hann fer út fyrir endalínu
39. mín
Mist nælir í horn fyrir Þrótt
36. mín
Kayla Marie rænir boltanum af Evu Marie þrumar boltanum svo yfir fjærhornið
34. mín
Þórdís Nanna og Skiba lenda harkalega saman en þær eru báðar algjörir naglar og fljótar að standa upp
32. mín
Sandra Hauks fær stórt og mikið tiltal fyrir að brjóta á Björgu sem var að komast í skyndisókn en ekkert spjald fer hins vegar á loft!
30. mín
Sæunn tekur hornið, fær hann svo aftur og reynir skotið en framhjá
29. mín
Kayla reynir skotið en það fer af Þór Maríu og stefnir bara inn í nærhornið en Skiba kýlir hann afturfyrir
28. mín
Fanney Lísa með hörkuskot en það er yfir
26. mín
Andrea tekur aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Þróttar, þar er síðan alls konar vesen áður en Mollee nær að kýla boltan fram
24. mín
Dauuuuuuuuðafæri!!!!
Úlfa Dís kemst á hlaupið setur hann til hliðar á Murielle sem er alein gegn Mollee en setur boltann beint í hana!

Líklega bara fyrsta skotið hjá Stjörnunni á markið! Ekki oft sem þú sérð Murielle klúðra svona færi!
22. mín
Annað horn frá Sæunni inn á miðjann teiginn en brotið á Skiba í markinu
21. mín
Sæunn með hornspyrnu, barningur í teignum sem endar með að boltinn berst niður til Mistar sem kemur houm áfram
17. mín
JEEEEESÚS
Björg með hörkuskalla ég sá þetta á leiðinni inn en Skiba kemst í þetta
14. mín
Andrea reynir að finna Úlfu Dís en of fastur bolti
12. mín
Horn!
Sæunn tekur horn fyrir Þróttara en ekkert kemur úr því
11. mín
Katieeee!
Svakalegur kraftur í Katie hérna! Hún er allt í öllu í sóknarleik Þróttar
9. mín
Þróttur að ógna
Þórdís Nanna með hættulegan bolta á teignum sem rennur fyrir opnu marki áður en þær ná að koma þessu frá! Nú þarf Stjarnan að fara vakna ef ekki á að fara illa!
6. mín
Úffff
Katie og Kayla Rollins með fínasta spil sem endar með hörkuskoti frá Katie í stöngina!
4. mín
Þróttur er grimmari aðilinn hér í byrjun leiks og pressa Stjörnukonur hátt
1. mín
Leikur hafinn
Kayla Marie sparkar leiknum af stað fyrir okkur
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár!
Stjarnan
Óskar Smári gerir 3x breytingu á liði sínu frá 0-0 jafnteflinu gegn Grindavík/Njarðvík. Inn í liðið koma Sandra Hauksdóttir, Fanney Lísa og Margrét Lea. Snædís María sest á bekkinn, Telma er farin í skóla og Ingibjörg Lúcía er í banni.

Þróttur
Jóhann Kristinn hins vegar heldur sama byrjunarliði og í 1-1 jafnteflinu gegn Víking.
Fyrir leik
Félagsskiptaglugginn
Þróttur
Þróttur hefur fengið góða styrkingu í glugganum en hin gamalkunna Katie Cousins er komin aftur, Bríet Fjóla kom yfir frá Þór/KA og svo voru að berast fréttir af því að Sierra Marie Lelii væri að fara taka fram skóna á ný . Þær hafa þó einnig misst leikmenn bæði í skóla í Bandaríkjunum og svo fór Þórdís Elva yfir til Breiðabliks.






Stjarnan
Stjarnan hins vegar hafa ekki styrkt sig neitt í glugganum og spurning hvort það haldist svo. Óskar Smári þjálfari Stjörnunnar hefur allvega ekki fengið fjármagn tl þess frá stjórninni ef marka má viðtöl. Stjarnan hefur þó orðið fyrir þó nokkrum missi en fyrirliðinn Anna María er meidd út tímabilið og þá eru þær að missa Telmu í skóla ásamt 4 öðrum leikmönnum.
Fyrir leik
Spámaður 15. umferðarinnar
Landsliðskonan María Catharina Gros Ólafsdóttir spáir í leikina sem framundan eru.

Stjarnan 3 - 2 Þróttur R.
Stjarnan vill sigur eftir síðustu umferð og þær vinna 3-2.

Mynd: KSÍ

Fyrir leik
Fyrri viðureign
Liðin mættust á Avis vellinum þann 25. maí sl. þar sem Stjarnan fór með 0-1 sigur af hólmi með marki frá Evu Marie Wirtz.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ef skoðaðar eru allar innbyrðisviðureignir sem KSÍ er með inn á nýju síðunni sinni þá sést að Stjarnan er með örlítið meira hald á Þrótti. Stjarnan hefur 16x farið með sigur af hólmi gegn 11x sigrum hjá Þrótti. Þá hafa leikar staðið jafnir 4x.

Ef þetta segir okkur eitthvað þá er allavega ólíklegast að við endum í jafntefli í kvöld!
Fyrir leik
Þróttur
Þróttarakonur sitja fyrir þennan leik í 7. sætinu með 14 stig! 2 stigum á eftir Grindavík/Njarðvík og Fram í 5. og 6. sætinu og 2 stigum á undan Þór/KA.

Þróttur tryggði sér á dögunum sæti í úrslitum Mjólkubikarsins þar sem frammistaðan hefur verið virkilega góð. Hins vegar hefur gengið í deildinni verið arfaslakt en þær hafa ekki unnið leik síðan 29. maí! Þegar þær unnu Val 0-1.

Í síðustu 6 leikjum hefur liðið náð í 2 stig með 2 jafnteflum en annars tapað rest.

Það verður því áhugavert að sjá hvort Þróttarar hafi náð að peppa sig í gang um versló og reyni að sækja sinn fyrsta sigur í deild í LANGAN tíma! Því ef ekki þá er ofboðslega stutt í fallbaráttudrauginn...

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Stjarnan
Stjörnukonur sitja í 3. sæti deildarinnar með 22 stig eða 8 stigum á eftir toppliðunum FH og Breiðablik og 1 stigi á undan ÍBV í 4. sætinu.

Stjarnan hefur verið að gera góða hluti í sumar og er það lið sem hefur fengið næst fæst mörk á sig og voru fyrir 7-3 skellinn gegn FH með langfæst skoruð mörk á sig.

Í síðustu umferð snéru þær skellinum við í 0-0 jafntefli svo þær fundu aftur taktinn í varnarleiknum en þeim skorti þó aðeins í sóknarleiknum í þeim leik þar sem engin mörk voru skoruð!

Þær vilja því eflaust bæði halda hreinu hér í kvöld og fara að setja fleiri mörk!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
15. umferðin
Umferðin hefst í dag með þessum leik, þrír leikir eru svo á dagskrá annað kvöld en umferðin klárast svo ekki fyrr en laugardaginn 15. ágúst með toppbaráttuslag FH og Breiðabliks. Er það vegna evrópuleikja Breiðabliks í Kasakstan.

Umferðin lítur þá svona út:

Í dag:
19:15 Stjarnan - Þróttur

Á morgun:
18:00 Þór/KA - Fram
18:00 Grindavík/Njarðvík - ÍBV
19:15 Valur - Víkingur R.

15. ágúst:
14:00 FH - Breiðablik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Ásmundur Þór Sveinsson og honum til halds og trausts verða Tryggvi Elías Hermannsson og Ingibjörg Garðarsdóttir Briem aðstoðardómarar.

Fjórði dómari er Hallgrímur Viðar Arnarson og eftirlitsmaður í kvöld er Sigurður Hannesson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta deildin kallar á ný!
Verið hjartanlega velkomin í þessa textalýsingu þráðbeint frá Samsungvellinum í Garðabæ þar sem Stjarnan tekur á móti Þrótti í 15. umferð Bestu deildarinnar.

Leikurinn hefst á slaginu 19:15!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.