Fotbolti.net
Alexander Tonini
Alexander Tonini
Lengjudeild karla
JBÓ völlurinn
12 gráður og léttskýjað
Njarðvík
Njarðvík
3 - 1
Vestri
Vestri
0 - 11' Johannes SelvénValdimar Jóhannsson 45'1 - 1Oumar Diouck 64'2 - 1Oumar Diouck 74'3 - 1
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Leik lokið!
Þægilegur sigur hjá Njarðvík
Sanngjarn sigur fyrir rest. Vestri hefði geta skorað fleiri í fyrri hálfleik en mættu alls ekki vel í þann seinni

Skýrsla og viðtöl á leiðinni.
88. mín
Vestri er búið að gefast upp
Það er ekki mikill vilji núna hjá gestunum

Njarðvík vill hins vegar bæta við marki
Vestri
84. mín
InnDevyn Payne
ÚtEdson Eduardo Dias Gomes
Vestri
84. mín
InnGuðmundur Páll Einarsson
ÚtGuðmundur Arnar Svavarsson
82. mín
Oumar aftur á ferðinni
Er kominn í góða stöðu og ákveður að gefa á Rafael en honum tókst ekki að skora.

Njarðvík eru mun líklegri til að bæta í frekar en að gestirnir minnki muninn.
Njarðvík
77. mín
InnRafael Alexandre Victor
ÚtValdimar Jóhannsson
Vestri
75. mín
InnEmmanuel Agyeman Duah
ÚtChriss-Albin Mörfelt
Vestri
75. mín
InnBirkir Eydal
ÚtJacob Stensson
Njarðvík
74. mín
Sjóðandi heitur Oumar að klára leikinn

Oumar Diouck

Vestri að spila hátt enda þurfa þeir að skora.

Kemur hár bolti fram á við og Oumar bara með Chriss í bakinu, nær að snúa á hann og er þá alveg einn á móti Marvin.

Tekur sinn tíma og sólar hann og rennur honum í autt netið
69. mín
Heimamenn með völdin núna
Njarðvíkingar hafa heldur betur snúið þessum leik sér í vil og er miklu sterkari þessa stundina.
Njarðvík
65. mín
InnBjörn Aron Björnsson
ÚtBragi Karl Bjarkason
Vestri
65. mín
InnÞórður Gunnar Hafþórsson
ÚtSergine Modou Fall
Njarðvík
64. mín
Upp úr engu

Oumar Diouck (stoðsending: Bragi Karl Bjarkason)

Síðast verk Braga áður en hann fór út af var fyrirgjöf frá hægri með vinstri fæti.

Vörn Vestra alveg sofandi að horfa á boltann en ekki manninn og Oumar einn í teignum og nær snertingu og kemur boltanum í netið af stuttu færi.
63. mín
Góð sókn hjá Vestra
Sergine á flotta þversendingu á Selvén sem nær að keyra á vörnina.

Eins og í fyrri hálfleik þá keyrir hann inn á miðju og á skot en skotið hins vegar þægilegt fyrir Guy í markinu.
Njarðvík
62. mín
InnViktor Nói Vidarsson
ÚtLeandro Fernandes
60. mín
Vel gert hjá Alexander Helga
Fer þarna á milli tveggja varnarmanna Vestra og er næstum því sloppinn í gegn.

Marvin snöggur út úr markinu og handsamar voltann.
57. mín
Flott skyndisókn hjá Vestra
Sergine Fall skýst upp hægri og á fína fyrirgjöf fyrir en virkilega vel gert hjá Sigurjóni í vörninni sem kemur í veg fyrir dauðafæri hjá gestunum.

Góður hraði í leiknum þessa stundina.
54. mín
Smá átök þarna
Smá glíma hjá Leandro og Jacob sem rúlla saman á jörðinni

Aukaspyrna dæmd á Jacob en ekkert spjald, set smá spurningarmerki við þá ákvörðun.

Jacob heldur í hann aftan frá rétt áður og stöðvar sóknina.
53. mín
Góður varnarleikur hjá Elmari
Leandro kominn í góða stöðu vinstra megin einn á móti Elmari sem gerir virkilega vel í að hægja á sókninni og kemur í veg fyrir fyrirgjöfina.

Boltinn fer síðan af Leandro aftur og markspyrna
47. mín
Chriss með skot
Líka í seinni fær hann boltann rétt fyrir utan teig og skýtur með vinstri en boltinn framhjá

Ágætis færi engu að síður.
46. mín
Mikill hliðarvindur
Talsverður vindur sem hefur jöfn áhrif á bæði liðin
46. mín
Seinni byrjaður
Vestri byrjar í seinni
45. mín
Hálfleikur
Heimamenn jafna í lokin en Vestri samt fengið betri færi heilt yfir.

En þetta breytir leiknum.

Tökum okkur 15
Njarðvík
45. mín
Virkilega vel gert þarna hjá Valdimari

Valdimar Jóhannsson (stoðsending: Alexander Helgi Sigurðarson)

Fær boltann og er með mann í bakinu.

En virkilega vel gert hjá Valdimar sem er með mann í bakinu og snýr hann af sér og síðan klobbar hann Edson og sleppur einn í gegn.

Afgreiðir síðan boltann snyrtilega framhjá Marvin í markinu
41. mín
Alexander Helgi með fyrirgjöf/skot
Njarðvík fékk aukaspyrnu á góðum stað vinstra megin við teig.

Alexander skrúfar hann inn á völlinn og fyrirgjöf hann endar sem skot sem Marvin þarf að verja í horn.

Í kjölfarið fer hornspyrnan á pönnuna á Arnar Helgi sem skallar hann yfir, náði ekki að stýra honum niður enda hár bolti.
41. mín
Rólegar mínútur núna
Ekki mikið um að vera
Vestri
40. mín
Gult spjald

Thibang Sindile Theophilius

33. mín
Leandro missti boltann klaufarlega á miðjunni
Í kjölfarið fær Breki Þór boltann og keyrir upp. Hann ákveður að taka skot utan teigs, fast var það en engu að síður þægilegt fyrir Guy í markinu.

Vestri hefur átt mun hættulegri og betri færi í leiknum þrátt fyrir að vera minna með boltann.
27. mín
Dauðfæri hjá Valdimari
Flott sending hjá Alexander Helga inná teig meðfram jörðinni sem finnur Valdimar en Marvin kemur vel út úr markinu og ver.
Fyrsta alvöru færið hjá heimamönnum.

Marvin meiddist síðan í kjölfarið en allt í góðu með hann núna.
25. mín
Chriss Albin með skot
Fær boltann fyrir utan teig og skýtur með vinstri en þægilegt fyrir Guy Smit í markinu.

Njarðvík á ennþá eftir að skjóta á rammann í þessum leik.
25. mín
Sami gangur
Njarðvík meira með boltann og komast í góðar stöður hér og þar en ná ekki að skapa sér nein færi
20. mín
Oumar Diouck með hálffæri
Fær boltann rétt fyrir utan teig en skotin laust og framhjá.

Oumar ósáttur með sig og slær í jörðina
17. mín
Meira jafnvægi núna
Vestri er að komast meira inn í leikinn á meðan Njarðvík er að missa boltann og misheppnaðar sendingar.

Breki Þór og Selvén skapa usla fremst fyrir gestina.
13. mín
Njarðvík meira með boltann enn....
Langbestu færin hafa verið gestanna og eitt mark kom upp úr einu slíku.

Vestri hefði átt að vera 2-0 yfir nú þegar.

Sóknir og stöður Njarðvíkur hafa runnið í sandinn til þessa.
10. mín
Dauðafæri hjá Vestri!!
Breki Þór sloppinn í gegn eftir sendingu hjá Selvén en Guy Smit gerir vel og ver í horn.

Þarna hefði Breki átt að skora, hann var alveg all einn og Eiður langt á eftir honum.

Klaufarlegur varnarleikur þarna hjá Eiði sem misreiknar boltann og hleypir Breka í gegn.
9. mín
Vörnin hjá Vestra þétt
Aldrei eins vant þá er vörnin þétt og vel skipulögð eitthvað sem hefur ekki verið undanfarna leiki.
7. mín
Heimamenn meira með boltann
Heimamenn eru sterkari aðilinn og pressa hátt.

Enda eru þeir undir og þurfa að sækja.

Gestirnir eflaust sáttir með stöðuna eins og hún er núna.
Vestri
1. mín
Upp úr engu

Johannes Selvén (stoðsending: Chriss-Albin Mörfelt)

Þrumuskot utan teigs í vinstra hornið óverjandi fyrir Guy smit

Nánast fyrsta snertingin hjá gestunum sem unnu boltann á miðjunni og sending á vinstri kantinn.

Nóg eftir hjá Johannes Selvén sem gerir virkilega vel og leikur inn á miðjuna og klárar þetta með góðu skoti af 20 metra færi.
1. mín
Leikur hafinn
Það eru heimamenn sem sparka þessu af stað
Fyrir leik
Liðin eru að labba inn á völlinn
Það er stutt í fjörið
Fyrir leik
Veðrið flott í Njarðvík
Það eru flottar aðstæður hér í dag, 12 gráður, léttskýjað en smá vindur að vísu.

Völlurinn sem var ófær í gær er orðinn þurr og ekkert mál að spila á honum í dag. Vallarstarfsmenn búnir að standa sig vel og búnir að sanda fyrir fram bæði mörkin en annars er völlurinn flottur.

Fyrir leik
Byrjunarlið Njarðvíkur
Davíð Smári gerir þrjár breytingar frá siguleiknum gegn Ægi í síðustu umferð.

Inn í byrjunarliðin koma þeir Bragi Karl Bjarkarson, Oumar Diouck og Aron Einarsson.

Bragi Karl gat ekki spilað í síðustu umferð vegna meiðsla en er kominn aftur og munar um minna enda markahæsti leikmaður liðsins.

Stefán Gísli Stefánsson og Viktor Nói Viðarsson eru á bekknum á meðan Símon Logi Thasaphong er utan hóps.
Fyrir leik
Byrjunarlið Vestra
Vestri gerir fjórar breytingar frá tapleiknum gegn Gróttu

Þórður Gunnar Hafþórsson, Birki Eydal og Guðmundur Páll Einarsosn fara á bekkinn á meðan Gunnar Jónas Hauksson er utan hóps.

Inn í byrjunarliðið koma þeir Marcos Campos, Elmar Atli Garðarsson, Chriss-Albin og Sergine Fall.
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar
Fótbolti.net fékk hvorki meira né minna en Ágúst Hlynsson til að spá fyrir 17. umferð deildarinnar. En Ágúst lék einmitt með Vestra í fyrra.

Hann spári 2-2 jafntefli og miklum markaleik, það er aldrei að vita nema það rætist.

Njarðvík 2 - 2 Vestri
Þetta verður leikur umferðarinnar. Alvöru báráttuleikur í njarðvík þar sem nóg mun gerast! Mínir gömlu menn í Vestra komast yfir með frábæru marki frá Gunnari Jónasi, Eiður Aron jafnar leikinn með alvöru skalla. Elmar Atli skorar svo alvöru dramatískt Jöfnunarmark undir lok leiksins sem fyrrum þjálfarinn minn Davíð smári verður ekki ánægður með.

Fyrir leik
Davíð Smári Lamude
Þessi leikur eins og síðasti leikur þessara liða hefur eflaust sérstaka þýðingu fyrir núverandi þjálfara Njarðvíkur Davíð Smára Lamude.

Eins og flestir vita var hann þjálfari Vestra í fyrra og hafði náð ævintýralegum árangri með liðið. Ekki nóg með það að hann kom liðinu upp í Bestu deild, hélt þeim uppi og svo vann Vestri Mjólkurbikarinn í fyrsta sinn í sögu félagsins sem verður að teljast án efa merkilegasti atburður í sögu félagsins

Í kjölfarið fór hins vegar að halla undan fæti og gengið Vestra hrakaði hratt og endaði með því að Davíð Smári var látinn taka poka sinn áður en tímabilinu lauk. Mörgum og undirrituðum meðtöldum þótti það furðuleg ákvörðun og liðið féll engu að síður þrátt fyrir þjálfaraskiptin.





Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna
Þessi tvö lið mættust í 6. umferð í lok maí á Kerecis vellinum og þá sigraði Njarðvík örugglega 3-0 með tveimur mörkum frá Braga Karli Bjarkasyni og Freysteinn Ingi Guðnason bætti við þriðja markinu. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik.

Fyrir leik
Vestri á tímabilinu
Vestri sem eru ríkjandi meistarar Mjólkurbikarsins eftir frækinn 1-0 sigur á Valsmönnum í fyrra þurfa hins vegar að fara að rífa sig í gang. Eins og Njarðvík er gengið undir pari miðað við spár fyrir tímabilið en ólíkt andstæðingum sínum hér í dag þá er gengið undanfarna leiki alls ekki gott og hafa steinlegið í síðustu þremur umferðunum og fengið á sig 14 mörk samtals. Í síðustu umferð steinlá liðið 0-3 á móti nýliðum Gróttu á heimavelli.

Liðinu til varnar þá hafa ferðalög eflaust sett strik í reikninginn en liðið hefur tekið þátt í bæði forkeppni Evrópudeildarinnar sem og forkeppni sambandsdeildarinnar en þeim verkefnum er nú lokið og þarf liðið að einblína á deildina.

Liðið er sem stendur í 8. sæti en þó ekki nema 5 stigum á eftir Njarðvíkingum um síðasta lausa umspilssætið.

Fyrir leik
Njarðvíkingar á tímabilinu
Nú er það mikið liðið af tímabilinu að gaman er að skoða spár fyrir tímabilið og kanna stöðuna.

Fyrir tímabilið var Njarðvík spáð 3. sæti og umspili um að komast í Bestu deildina á næsta ári. Liðið er eins og stendur í 5. sæti sem er einnig umspilssæti.

Keflavík komst einmitt upp í Bestu deild í fyrra eftir að hafa endað í 5. sæti og unnið umspilið. Keflvíkingar í fyrra þóttu ekki ólíkt Njarðvík hafa spilað talsvert undir pari á tímabilinu en eru í dag í efri hluta Bestu deildar þannig að allt er nú hægt í þessum fótbolta.

Það má nú alveg færa rök fyrir því að Njarðvíkingar eru á réttri leið og hafa unnið fjóra af síðustu fimm leikjum sínum í deildinni. Í síðustu umferð sigraði Njarðvík Ægi 1-0 í Þorlákshöfn með marki strax á 4. mínútu leiks frá Valdimari Jóhannsyni.



Fyrir leik
Dómarar í dag
Gunnar Freyr Róbertsson mun sjá um dómgæsluna hér í dag.
Kristofer Bergmann og Tryggvi Elías Hermannsson verða aðstoðardómarar og eftirlitsmaður í dag er Halldór Breiðfjörð Jóhannsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lengjudeildin á laugardegi
Góðan dag kæru áhorfendur.

Velkomin til Njarðvíkur þar sem heimamenn fá Vestra í heimsókn í 17. umferð Lengjudeildar karla.

Leikurinn hefst klukkan 14 í dag og hægt er að fylgjast með beinni textalýsingu frá JBÓ vellinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.