Fyrir leik
Víkingur
Um þessar mundir eru leikir Víkingsliðsins heldur betur mikilvægir. Liðið er á botni Bestu Deildarinnar með 11stig en það styttist í skiptingu deildarinnar. Síðast þegar Víkingsliðið vann leik í Bestu Deildinni var 30.maí en það var einmitt gegn Þór/KA á Akureyri. Það hefur þó lítið sem ekkert gegnið hjá liðinu eftir það, fjögur töp i síðustu fimm leikjum liðsins með eitt jafntefli þar á milli. Horfandi á jákvæðuhliðarnar sem er yfirleitt skemmtilegra þá er góður upphafspunktur í dag til að hefja stigasöfnun og koma liðinu úr fallsæti en með sigri kemst liðið yfir Val og verður einu stigi frá fallsæti þegar þrír leikir verða eftir en auðvitað bætast við leikir eftir skiptingu.
Víkingur sótti stóran bita í glugganum en Telma Ívarsdóttir kom til liðsins og hefur leikið síðustu tvo leiki fyrir Víkingsliðið. Sigurborg Katla sem hafði varið markið þangað til Telma kom fékk lánssamning hjá FH út tímabilið. Innkoma Telmu hefur klárlega haft jákvæð áhrif því liðið hefur bara fengið eitt mark á sig í báðum leikjum sem hún hefur spilað en það hefur vantað uppá markaskorun hjá Víkingsliðinu til að stigin sem eru sótt verða þrjú stór.


Fyrir leik
Dómarateymið
Bríet Bragadóttir er á flautunni.
Aðstoðardómari 1: Tijana Krstic
Aðstoðardómari 2: Ingibjörg Garðarsdóttir Briem
Fjórði dómari er Hallgrímur Viðar Arnarson
Dómaraeftirlitsmaðurinn er Kristján Halldórsson.
Aðstoðardómari 1: Tijana Krstic
Aðstoðardómari 2: Ingibjörg Garðarsdóttir Briem
Fjórði dómari er Hallgrímur Viðar Arnarson
Dómaraeftirlitsmaðurinn er Kristján Halldórsson.

Fyrir leik
Heilsum frá Hamingjunni!
Verið velkomin lesendur góðir á Víkingsvöllinn. Hér verður textalýsing í þráðbeinni frá leik Víkings og Þór/KA sem hefst á slaginu 18:00!
Þetta er næstsíðasti leikurinn í 15.umferð Bestu Deildar kvenna.
Þetta er næstsíðasti leikurinn í 15.umferð Bestu Deildar kvenna.




