SKÝRSLAN: Vondur sóknarleikur - Vítadómar geta breytt sögum
Hvað réði úrslitum?
Lok lok og læs og allt í stáli einsog segir í laginu góða. Það var sagan sem réð úrslitum. Þór/KA skellti snemma í lás og Víkingsliðið var í alvöru brasi að komast í einhver almennileg færi.
Bestu leikmenn
1. Hildur Anna Birgisdóttir
Skorar fyrsta mark leiksins og á svo geggjaða stoðsendingu í öðru markinu. Síðan tekur hún hornið sem Þór/KA skorar þriðja markið. Kalla þetta gott framlag og góða frammistöðu.
2. Hulda Ósk Jónsdóttir
Átti stoðsendinguna í fyrsta markinu og skoraði síðan með hælnum 3-0 markið. Vörninn fær samt líka smá shout, þær stóðu sig mjög vel.
Atvikið
Klárlega hvort Víkingsliðið hefði átt að fá víti þarna á 6mín. Það er alveg glórulaust og lélegt úthlaup hjá Alessöndru Augur í markinu en Bríet sem var á flautunni í dag vildi ekki meina víti og því fór sem fór. Í öðrum heimi er þetta víti og Víkingur kemst yfir, þá er sagan orðinn allt önnur.
Hvað þýða úrslitin?
Þór/KA heldur áfram að sækja þrjú stig og komast í efra hluta sæti á markatölu þegar þrír leikir eru eftir til skiptinga á deildinni.
Víkingur er ennþá í bullandi brekku á botninum með 11stig en Fram er í síðasta örugga sætinu með 16stig þannig það er alvöru verkefni framundan hjá Víkingskonum.
Víkingur er ennþá í bullandi brekku á botninum með 11stig en Fram er í síðasta örugga sætinu með 16stig þannig það er alvöru verkefni framundan hjá Víkingskonum.
Vondur dagur
Öll sókn Víkings átti vondan dag. Allan seinni hálfleik með boltann frammi í sókn en án árangurs. Þær eru eflaust allt annað en sáttar með hvernig þær spiluðu þennan leik sóknarleik. Næsti leikur býður upp á ný tækifæri og þær þurfa heldur betur að grípa það ef þær ætla halda sér í deild þeirra bestu.
Dómarinn - 4
Ég er á því að Víkingur hefði átt að fá víti strax í upphafi leiks og svo voru kjánaleg móment einsog eitt þegar hún flækktist fyrir Víkingsleikmanni á mikilvægum tímapunkti það var hrikalegt.



