SKÝRSLAN: Dýrmæt þrjú stig sem enginn fær
Hvað réði úrslitum?
Erfitt að segja, upphaf og nánast allur fyrri var Selfoss en þetta mark hjá Kára sem minnkar muninn heldur betur kveikti í gestunum. Þeir komu miklu miklu betri í seinni hálfleikinn og jöfnuðu verðskuldað. Kannski var jafntefli bara sanngjarnast ef frammistöður er litið á.
Bestu leikmenn
1. Árni Salvar Heimisson
Fyrirliðinn fær maður leiksins, erfiður útivöllur og hann gerir vel í markinu sínu. Þetta mikilvæga þriðja mark sem er svo oft talað um.
2. Frosti Brynjólfsson
Hann átti fyrri hálfleikinn, skoraði fyrsta markið og hefði getað lagt upp tvö í fyrri en munaði litlu. Eflaust eitthvað hrjáð hann í hálfleik því hann er tekinn útaf í hálfleik. Vonandi fyrir Selfoss liðið ekkert alvarlegt.
Atvikið
Alltaf úthlaupið hjá Loga Mar í marki Kára á 90.mín. Stúkan lét vel í sér heyra og ég held það sé alveg eitthvað til í þeim köllum fyrir víti. Selfoss hefði vel þegið eina vítaspyrnu frá VÖK til að sækja þrjú stigin.
Hvað þýða úrslitin?
Dýrmætu þrjú stigin sem allir voru spenntir fyrir að sjá hvert myndu fara fá ekki heimili í nótt. Selfoss er þó eflaust sáttara þar sem þeir halda þriggja stiga forskoti á Kára sem er ennþá í 3.sæti. Það verður þó áfram haldandi spenna fyrir þessa síðustu leiki í 2.deild.
Vondur dagur
Selfyssingar vilja eflaust meina að dómarinn verðskuldi þetta en það má svara því með bara hvað þeir voru slakir í seinni. Alveg ólíkt við fyrri hálfleikinn, vondur dagur fær Selfoss með boltann fyrir framan miðju fyrsta hálftímann í seinni. Held ég náðu ekki boltanum einu sinni yfir miðju en síðan þegar rúmar 80 sló á klukkuna vara Selfoss allt í einu mun líklegri að stela sigrinum. Mjög sérstök orkustilling.
Dómarinn - 4
Fyrri hálfleikur fínn, síðan bara lélegur í seinni. Fannst hann vera rosa Kára sinnaður í seinni, menn hangandi í VÖK allan leikinn og svo var hann fyrstur til að fá gult, sem var alveg stór furðulegt. Vítið á 90mín er líka sérstakt. Við fyrstu sýn held ég að hann eigi að benda á punktinn.


