Leik lokið!
Dagur Örn Fjeldsted með afleita fyrirgjöf sem endar á því að fara aftur fyrir markið og í sömu andrá flautar Jóhann leikinn af. Ótrúlegur leikur á enda sem Framarar enda á að sigla heim. Viðtöl og skýrsla koma inn í kvöld.
90. mín
+4
Blikar reyna að finna opnanir og spila í kring um teiginn en allar fyrirgjafir eru skallaðar frá.
90. mín
+2
Blikar eru búnir að koma öllum Frömurum inn á eigin teig en slök sending frá Degi Erni fer beint á Harald Einar sem nær að losa aðeins um pressuna.
90. mín
Fjórar mínútur í uppbót
90. mín
Kennie dæmdur brotlegur úti á velli og Framarar tryllast, spennustigið er gríðarlega hátt í Kópavoginum þessa stundina.
87. mín
InnBjarni Páll Linnet Runólfsson
ÚtRóbert Hauksson
86. mín
Framarar komast í skyndisókn og Robbi Hauks er á harðaspretti upp völlinn með boltann en sendingin frá honum þegar hann ætlar að finna samherja er slök og Blikar vinna boltann.
86. mín
Stórsókn Blika
Blikar sækja og sækja og aftur er VIktor að gera vel í markinu og bjargar Fram.
85. mín
Hornið er tekið stutt og skilar sér aldrei inn í teig.
85. mín
Enn sækja Blikar og vinna annað horn.
83. mín
Sláin!!
Höskuldur tekur spyrnuna sem fyrr og eftir einhvern darraðardans inn á teignum endar boltinn í þverslánni. Blikar ná aftur til boltans en enda á að fá hann í höndina og Framarar líklega dauðslifandi fegnir að geta náð andanum.
82. mín
Óli Valur
Kennie Chopart með hrikalega hreinsun beint inn í miðjan völlin á Blikana. Óli Valur fær á endanum boltann fyrir utan teiginn og lætur vaða en Viktor Freyr ver frábærlega og Blikar eiga horn.
81. mín
Höskuldur tekur spyrnuna, finnur Dag Örn á fjær en skallinn hans er beint á Viktor sem grípur boltann.
80. mín
Kristófer Ingi í færi inn á teig Framara en skotið hans virðist vera fram hjá. Jóhann dæmir markspyrnu en skiptir svo um skotuð og Blikar eiga horn.
78. mín
Fínasta spyrna frá Haraldi Einari in á markteiginn en samherjar hans ná ekki til boltans.
78. mín
Blikar í einhverjum vandræðum með hvert á að setja boltann inn á eigin markteig og enda á því að rúlla honum aftur fyrir. Fram eiga horn.
76. mín
Blikar banka
Þorleifur Úlfarsson í dauðafæri eftir frábæra fyrirgjöf frá Davíð Ingvarssyni, beint á pönnuna á honum. Ætlar að sneiða hann í fjærhornið en hefði líklega átt að stanga þetta í nær.
74. mín
InnIsrael Garcia Moreno
ÚtFreyr Sigurðsson
74. mín
InnJakob Byström
ÚtVuk Oskar Dimitrijevic
73. mín
Freyr Sigurðsson þarf aðhlynningu og fer af velli, Framarar undirbúa skiptingu á sama tíma, Freyr líklega búinn í dag.
71. mín
Fínasta fyrirgjöf frá hægri sem finnur ennið á Þorleifi en skallinn hans beint upp í loft og Viktor er í engum vandræðum með það.
69. mín
InnDagur Örn Fjeldsted
ÚtJónatan Guðni Arnarsson
69. mín
InnAnton Logi Lúðvíksson
ÚtKristinn Jónsson
Blikar að endurheimta Anton Loga eftir meiðsli. Sá gæti reynst þeim mikilvægur á lokakafla tímabilsins.
68. mín
Haraldur Einar tekur hornið en það er of langt og fer yfir allan pakkann.
67. mín
Höskuldur hrasar um boltann á vallarhelmingi Fram og gestirnir geta sótt hratt. Robbi Hauks er kominn inn á teiginn, með Kennie með sér, en ákveður að láta vaða, skotið af varnarmanni og aftur fyrir.
66. mín
Það er að færast smá hiti í leikinn, bæði lið ósátt með dómaraákvarðanir hér og þar og láta það í ljós.
65. mín
Framarar sækja hratt og Freyr Sigurðsson leikur listir sínar inn á teignum áður en hann finnur Vuk á vítateigshorninu sem ætlar að skrúfa hann í fjær en skotið af varnarmanni og aftur fyrir. Hornið er svo ekki gott og þeir ná ekki að skapa neina hættu.
63. mín
Gult spjald
Þorri Stefán Þorbjörnsson
Togar í Kidda Jóns sem er að komast á ferðina.61. mín
Allt moment með Blikum
Jónatan Guðni svo nálægt því að jafna fyrir Blika með skoti af smá færi en Viktor Freyr gerir vel í markinu og fær fingurgómunum í boltann og Blikar eiga horn. Hornið er tekið stutt og þeir ná ekki að skapa hættu upp úr því.
59. mín
Game on!
Þorleifur Úlfarsson (stoðsending: Óli Valur Ómarsson)
Aftur er það Óli Valur á ferðinni. Í þetta skiptið á hann fullkomna sendingu yfir varnarlínu Fram, boltinn skoppar einu sinni áður en Þorleifur kassar hann fyrir sig og þrumar boltanum í þaknetið. Alvöru slútt.58. mín
InnMár Ægisson
ÚtKristófer Konráðsson
56. mín
Game on?
Davíð Ingvarsson (stoðsending: Höskuldur Gunnlaugsson)
Frábær bolti frá Óla Val á milli Þorra Stefáns og Haralds Einars, sem finnur Höskuld í hlaupinu inn fyrir. Höskuldur fær smá tíma til að athafna sig, rúllar boltanum fyrir markið, á milli varnarmanna og markmanns, og finnur Davíð á fjær og eftirleikurinn auðveldur.55. mín
Höskuldur með skot rétt fyrir utan teiginn vinstra megin við d-bogann en það er langt fram hjá. Svo langt að Framarar í stúkunni fagna þessari tilraun.
53. mín
Jónatan Guðni með kærulausa sendingu á miðjum vellinum sem hleypir Fram í skyndisókn. Vuk virðist vera kominn í skotfæri inn á teignum, nær ekki alveg að fóta sig og þarf á endanum að senda boltann út í teiginn á Kristófer sem á skot í varnarmann.
51. mín
Þorri Stefán gerir vel og vinnur boltann á eigin vallarhelmingi, tekur á rás og ber boltann upp alla leið inn á teig Blika áður en hann rúllar honum til vinstri þar sem hann finnur Vuk. Vuk setur hann á markið en skotið er nokkuð beint á Anton Ara sem grípur það örugglega.
49. mín
Framarar fá aukaspyrnu langt út á velli sem Haraldur einar tekur inn á teiginn, finnur samherja en skallinn ekki nægilega góður.
48. mín
Höskuldur skrúfar boltann í átt að fjærstönginni en Vuk hreinsar frá. Blikar ná boltanum aftur og halda sókninni áfram en skapa sér þó ekkert áður en að Haraldur Einar þrumar boltanum upp völlinn og losar um pressuna.
47. mín
Framarar koma boltanum ekki frá og á endanum er Kenni dæmdur brotlegur. Blikar fá aukaspyrnu á milli enda línunnar og vítateigsins.
46. mín
Þorleifur sparkar seinni hálfleiknum í gang.
46. mín
InnViktor Karl Einarsson
ÚtGabríel Snær Hallsson
Blikar gera eina breytingu í hálfleik.
45. mín
Gleymdum að telja upp Valtý Björn Valtýsson yfir fræga á vellinum áðan og biðjum lesendur afsökunar á því.

Gleymdum að telja upp Valtý Björn Valtýsson yfir fræga á vellinum áðan og biðjum lesendur afsökunar á því.
45. mín
Hálfleikstölfræði

45. mín
Hálfleikur
Gestirnir leiða og það sannfærandi
Eftir að hafa komist yfir misstu Blikar alla stjórn á leiknum og staðan í þessum hálfleik 1-4 fyrir Framara. Verðskulduð forysta og hún verður líklega meiri ef Blikar breyta ekki einhverju í hálfleiknum.
44. mín
Kennie er óstöðvandi í markaskorun!
Kennie Knak Chopart
Aftur eru Blikar bara í miklum vandræðum með að hreinsa boltann út úr eigin teig. Fram búnir að eiga nokkur skot sem eru að fara af varnarmönnum en alltaf ná þeir boltanum aftur. Ægir Jarl á að lokum nokkuð lausa fyrirgjöf sem Viktor Örn hreinsar beint á Kennie sem stendur á d-boga horninu hægra megin og hann lætur bara vaða á markið. Skotið er ekkert sérstakt, en Anton Ari ver það inn í markið, sá á að gera betur þarna.43. mín
Davíð Ingvars með skot vinstra megin í teignum en það er langt yfir markið.
42. mín
Kristófer Konráðs straujar Kidda jóns inn í miðjuhringnum og er heppinn að fá ekki gult.
38. mín
Enn sækja Framarar og nú er Róbert Hauksson við það að ná skoti á markið en Anton Ari gerir vel og hirðir boltann við lappir hans rétt áður en hann nær til hans.
37. mín
Óli Valur með fyrirgjöf inn á markteiginn en Viktor Freyr öruggur í sínu og grípur hana auðveldlega.
34. mín
Gestirnir bæta við!
Vuk Oskar Dimitrijevic
Blikarnir í allskonar vandræðum með að koma boltanum út úr teignum sínum og boltinn endar á því að falla fyrir Harald Einar. Skotið hans er varið af Antoni Ara, beint út í teiginn, þar sem Vuk er fyrstur að átta sig og setur hann fram hjá Antoni sem liggur enn eftir fyrstu vörsluna.33. mín
Gult spjald
Þorleifur Úlfarsson
Virðist fá hér gult fyrir kjaft, ósáttur með aukaspyrnu sem Fram fá.32. mín
Blikar fá tvö horn í beit. Framarare í nauðvörn eftir fyrsta hornið og í vandræðum með að koma boltanum frá, Blikar ná skoti sem fer af vararmanni og aftur fyrir. Seinna hornið er skallað frá strax.
31. mín
Blikar vilja víti
Fyrirgjöf frá hægri fer af Haraldi Einari og í horn. Blikar vilja meina að Haraldur hafi fengið hann í höndina, virtist fara í olbogann á honum en spurning hversu mikið upp við líkama höndin var.
31. mín
Fínasti bolti frá Kidda Jóns inn á teig, í átt að vítapunktinum, en Þorri Stefán gerir vel og skallar frá.
30. mín
Jónatan Guðni með ansi lipran snúning úti hægra megin en Haraldur ætlar ekki að láta bolta og mann fara fram hjá sér í einu og vippar löppunum undan Jónatan.
27. mín
Kristófer Konráðsson með háan bolta á fjær þar sem Róbert Hauksson fer upp á efstu hæð en skallinn er erfiður og hann nær ekki nægilegum krafti í hann.
26. mín
Anton Ari með mjög vonda sendinu út úr markinu beint í lappirnar á Róberti Hauks en hann nær ekki stjórn á boltanum. Stálheppinn Anton Ari þarna!
25. mín
Gult spjald
Davíð Ingvarsson
Keyrir inn í Sigurjón Rúnarsson eftir að hann losar sig við boltann, pirringsbrot og klárt gult og mögulega heppinn að fá ekki rautt.23. mín
Spyrnan frá Kristófer kemur á nærstöngina þar sem Haraldur Einar nær að fleyta honum aðeins lengra áður en Blikar koma honum frá.
22. mín
Aftur er Kennie að komast í skot, nú fer það af varnarmanni og skrúfast til Kristófers Inga sem er í vandræðum með að ná stjórn á boltanum og Fram fá horn.
21. mín
Boltinn berst til Kennir rétt fyrir utan d-bogann, hann nær einni snertingu og tekur boltann á lofti og þrumar honum í átt að markinu en skotið er fram hjá.
18. mín
Frægir á vellinum
Margir frægir á vellinum í kvöld. Fyrstan ber að nefna Valla í Fræbblunum með flottan hatt. Hér eru líka Stefán Pálsson, Gústi á Bombay, Tómas Þór, Valur Gunnars, Gulli Gull, Hildur Einarsdóttir bæjarfulltrúi, Daði Guðmunds, Kristján Freyr trymbill, Sveinn Andri Sveinsson stórstjarna, g&T Gummi Torfa og Andri Yrkill hádegisfréttamaður. Kveðja, útsendarinn í stúkunni.
17. mín
Þeir skora strax annað!!
Haraldur Einar Ásgrímsson (stoðsending: Róbert Hauksson)
Innkast frá Kennie aftarlega á vallarhelmingi Fram endar á hausnum á Vuk sem nær að flikka honum aftur fyrir sig og allt í einu er Róbert Hauksson kominn á ferðina með flugbraut fyrir framan sig. Hann ber boltann upp alveg að teig Blika áður en hann rúllar honum fyrir markið og á einhvern ótrúlegan hátt rúllar boltinn, meðfram jörðinni, alla leið á fjær þar sem Haraldur Einar kemur á siglingu og klárar í opið markið15. mín
Hann skorar ekki bara á móti Stjörnunni
Róbert Hauksson
Kristófer Konráðsson kemur með bolta inn á teiginn í áttina að Vuk og Kennie sem standa á sama stað. Þeir þvælast fyrir hvorum öðrum, VIktor Örn reynir hreinsun en það er beint fyrir Róbert Hauksson sem skorar örugglega.14. mín
Góð sókn Fram endar með því að Kennie kassar boltann fyrir lappir Robba Hauks sem skýtur í varnarmann og aftur fyrir. Fram ná svo ekki að skapa sér neitt upp úr horninu.
10. mín
Kristófer tekur spyrnuna sem er alls ekki góð, endar á vítateigshorninu hinum megin þar sem enginn samherji er. Framarar halda þó boltanum og á endanum er Kennie í góðu færi inn á teignum, ætlar að skrúfa hann í fjær en skotið í varnarmann.
9. mín
Vuk Óskar í góðu færi inn á teignum en VIktor Örn gerir vel og nær að henada sér fyrir skotið í tæka tíð. Sókn Fram heldur áfram og á endanum uppskera þeir horn.
6. mín
Heimamenn ekki lengi að komast yfir
Davíð Ingvarsson (stoðsending: Kristófer Ingi Kristinsson)
Aftur tekur Höskuldur spyrnuna, nú út í teiginn á Óla Val sem gefur hann aftur á Höskuld. Hann setur boltann alla leið á fjær þar sem Kristófer Ingi lúrir, skallar hann niður fyrir lappirnar á Davíð sem gerir engin mistök og setur boltann fram hjá Viktori í markinu!6. mín
Jónatan Guðni sækir á Harald Frey og vinnur annað horn fyrir Blika.
4. mín
Höskuldur tekur spyrnuna á fjær en Ægir Jarl skallar frá.
3. mín
Breiðablik fær fyrstu hornspyrnu leiksins.
2. mín
Höskuldur gerir vel og vinnur boltann af Ægi á miðsvæðinu en Jóhann Ingi dæmir brot.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir byrja með boltann og sækja í átt að Sporthúsinu.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Ólafur Ingi Skúlason neyðist til að gera tvær breytingar. Ívar Örn Árnason er í leikbanni eftir að hafa fengið sitt sjöunda gula spjald í sumar og Ágúst Orri Þorkelsson hefur verið seldur til Excelsior í Hollandi. Inn fyrir þá koma þeir Kristinn Jónsson og Jónatan Guðni Arnarsson.
Þá gerir Rúnar Kristinsson einnig eina breytingu sem hann neyðist til að gera. Fred Saraiva er ekki í leikmannahópnum eftir að hafa farið meiddur út af í síðasta leik liðsins gegn Stjörnunni. Það er mikið högg fyrir Framara en það vita allir sem fylgjast með þessari deild hvað Fred gerir fyrir Fram liðið. Kristófer Konráðsson er þá maðurinn sem kemur inn í liðið fyrir Fred.
Þá gerir Rúnar Kristinsson einnig eina breytingu sem hann neyðist til að gera. Fred Saraiva er ekki í leikmannahópnum eftir að hafa farið meiddur út af í síðasta leik liðsins gegn Stjörnunni. Það er mikið högg fyrir Framara en það vita allir sem fylgjast með þessari deild hvað Fred gerir fyrir Fram liðið. Kristófer Konráðsson er þá maðurinn sem kemur inn í liðið fyrir Fred.
Fyrir leik
Fram eru ekkert spes varnarlega, þegar þeir hafa mætt alvöru sóknarmönnum í sumar hafa þeir ítrekað fengið á sig slatta af mörkum. Breiðablik yfir 2 mörk er á stuðlinum 2.26 og einnig er “bæði lið skora 2+ mörk” á 2,7. Mæli með þeim báðum.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) August 24, 2026
Fyrir leik
Sjáðu það helsta úr leikjunum í gær
Fyrir leik
Stórt skarð höggvið í lið Blikanna
Ágúst Orri Þorsteinsson, einn besti leikmaður Blika á þessu tímabili, er á leið til Excelsior í Hollandi og hefur þegar yfirgefið herbúðir Blika. Hann verður því ekki með liðinu í kvöld og það sem meira er spilar ekki bikarúrslitin með Breiðablik.
Nánar er fjallað um félagaskipti Ágústs hér

Nánar er fjallað um félagaskipti Ágústs hér

Fyrir leik
Rútubílstjórinn og kristalkúlan
Gummi Tyrfings, leikmaður Fylkis, er spámaður umferðarinnar og spáir alvöru tilþrifum.
Breiðablik 2 - 2 Fram
Þessi verður stál í stál. Blikar eru að ná sínum bestu mönnum til baka úr meiðslum og Fram búnir að vera sterkir. Fred verður að skemmta fólkinu í þessum leik eins og Brassarnir gera. Hann mun skora eftir að hafa tekið rainbow flick yfir Óla Val og sett boltann framhjá Antoni. Kristófer Ingi svarar úr víti. Anton Logi skorar svo huggulegt mark. En Kennie bjargar Fram með sínu tíunda marki í deildinni í sumar eftir klafs í teignum.

Breiðablik 2 - 2 Fram
Þessi verður stál í stál. Blikar eru að ná sínum bestu mönnum til baka úr meiðslum og Fram búnir að vera sterkir. Fred verður að skemmta fólkinu í þessum leik eins og Brassarnir gera. Hann mun skora eftir að hafa tekið rainbow flick yfir Óla Val og sett boltann framhjá Antoni. Kristófer Ingi svarar úr víti. Anton Logi skorar svo huggulegt mark. En Kennie bjargar Fram með sínu tíunda marki í deildinni í sumar eftir klafs í teignum.

Fyrir leik
Tríóið
Jóhann Ingi Jónsson er maðurinn sem stjórnar umferðinni í leiknum í dag og honum til halds og trausts verða þeir Ragnar Þór Bender og Birkir Sigurðarson með sitthvort flaggið. Gunnar Oddur Hafliðason verður á skiltinu, mögulega í glænýjum Predators.


Fyrir leik
Fram
Framarar hafa spilað frábærlega í sumar sem sýnir sig líklega best í þeirri staðreynd að þeir eru að halda í við KR og Víking. Fyrir umferðina voru þeir, líkt og KR með 40 stig, átta stigum frá Víkingum og helst sú staða óbreytt ef að Fram leikur eftir Víkingum og KR sem bæði unnu sína leiki í umferðinni. Í síðustu fimm leikjum hefur Fram tapað einum, gert eitt jafntefli og unnið þrjá en þeir unnu Stjörnuna örugglega í síðasta leik sem fór 3-1.


Fyrir leik
Breiðablik
Blikarnir eru líklega að eiga skýtnasta sumar af öllum í deildinni og hafa ekki beint verið að keppa um neitt alveg frá því í byrjun. Þeir sitja í fjórða sæti, 10 stigum frá einmitt Fram sem eru í því 3., og hafa hingað til verið með gott bil á liðin fyrir neðan en nú eru Keflavík heldur betur farnir að anda ofan í hálsmál þeirra með sín 28 stig. Breiðablik hafa í síðustu fimm leikjum aðeins sótt einn sigur, tapa tveimur og gert tvö jafntefli. Í síðasta leik fóru þeir á Meistaravelli og sóttu þar eitt stig í 3-3 jafntefli í leik sem hefði auðveldlega getað farið 7-7.


Fyrir leik
Góða kvöldið kæru lesendur
Verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Breiðablik og Fram sem spilaður verður á Eikarvellinum í Kópavogi. Leikurinn er sá síðasti í 20. umferð Bestu deildarinnar og flautað verður til leiks klukkan 19:15.






