SKÝRSLAN: Köttur úti í mýri, setti upp á sér stýri, úti er ævintýri
Hvað réði úrslitum?
Víkingar byrjuðu leikinn betur og komust verðskuldað yfir. Víkingar voru óheppnir að skora ekki annað mark en boltinn fór í þverslánna. Lofandi staða í hálfleik og maður var bjartsýnn fyrir framhaldið. Seinni hálfleikurinn var hinsvegar algjörlega í eigu Borac og þeir kláruðu þetta bara fagmannlega í seinni. Svekkjandi niðurstaða eftir lofandi byrjun en 6-2 niðurstaða í einvíginu staðreynd.
Bestu leikmenn
1. Amer Hiros
Var stöðugt til vandræða og lét Víkinga hafa vel fyrir sér. Skapaði hættur og vann vel fyrir liðið.
2. Luka Juricic
Skoraði annað markið og er líklega ekki velkominn í Fossvogin í bráð. Gef honum þennan dálk bara fyrir einvígið í heild.
Atvikið
Jöfnunarmark FK Borac úr aukaspyrnu. Fast skot frá Sebastian Herera og þarna fann maður svolítið vonina byrja að bresta hjá Víkingum.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingar eru úr leik í Evrópukeppni í ár og FK Borac fer í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.
Vondur dagur
Erfitt að taka einhvern einn fyrir í þessum dálki. Aron Elís óheppinn að koma Víkingum ekki í tveggja marka forystu þegar tilraun hans fór í þverslánna. Valdimar Þór hefði mátt koma sér í einhver færi. Stígur Diljan var öflugur í fyrri en sást lítið í seinni og hægt að segja það sama um Hrannar Snær og í raun bara allt Víkingsliðið. Var vont að sjá þá í seinni hálfleiknum eftir lofandi fyrri hálfleik.
Dómarinn - 4
Full glaður á flautunni oft í garð Víkinga. Hataði ekkert að taka stöðufundi en hans frammistaða var þó ekki neinn áhrifavaldur.



