Fotbolti.net
Snæbjört Pálsdóttir
Evrópubikar kvenna
Stelios Kyriakides Stadium
um 30 stiga hiti og sól!
Apollon Ladies
Apollon Ladies
0 - 2
FH
FH
0 - 137' Helena Maree Errington0 - 243' Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir
Dómari: Jelena Medjedovic (Serbía)

SKÝRSLAN: Draumabyrjun og sögulegur sigur FH í Evrópu

Hvað réði úrslitum?

FH nýtti sinn besta kafla í leiknum til hins ýtrasta og skoraði tvö mörk á sex mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks. Liðið var vel skipulagt, vann vel saman og stóð af sér kröftugt áhlaup Apollon strax eftir hlé. Heimakonur fengu tækifæri til að minnka muninn en Aldís Guðlaugsdóttir og sterk varnarlína FH sáu til þess að markið hélst hreint.

Bestu leikmenn

1. Jónína Linnet

Var stórkostleg í varnarlínu FH í dag. Barðist eins og ljón, lLas leikinn vel, vann fjölmargar mikilvægar tæklingar og kom ítrekað í veg fyrir að hættulegasta ógn heimkvenna, Natasha Hudson og sóknarlína Apollon kæmust í dauðafæri.

2. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir

Var líka frábær í dag af öðrum ólöstuðum! Stjórnaði miðjunni hjá FH vel, var ótrúlega mikilvæg varnarlega og setti svo sjálf annað mark FH úr aukaspyrnu rétt fyrir hálfleikinn. Aðrar sem gera tilkall eru Helena Maree Errington, Ingibjörg og Mackenzie sem stóð sína plikt vel.

Atvikið

Ég set þetta á fyrsta Evrópumarkið í sögu kvennaliðs FH! Ingibjörg sýndi frábær einstaklingsgæði og lagði upp fyrir Helenu Maree, sem skráði nafn sitt í sögubækur FH á 37. mínútu.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það einfaldlega að FH vinnur þennan leik 0-2 og er því með tveggja marka forystu fyrir seinna einvígi liðanna sem fram fer á Kaplakrika miðvikudaginn 2. september, eftir akkúrat viku,

Vondur dagur

Engin FH kona sem átti vondan dag í frammistöðu, set þetta á fyrirliða Apollon Krystyna Freda sem bara varla sá til sólar í leiknum. Hún átti svona fyrirfram að vera þeirra besti leikmaður en gerði lítið.

Dómarinn - 6

Serbneska dómarateymið komst bara vel frá þessum leik, svo sem engar stórar ákvarðanir en þetta var hörkuleikur og mikið brotið.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.