Fyrir leik
Fylkir
Fylkismenn, líkt og HK, eru með tvö töp, tvo sigra og eitt jafntefli í síðustu fimm leikjum. Í síðustu umferð fengu þeir Gróttu í heimsókn í leik sem endaði 3-1 fyrir þá appelsínugulu. 

Fyrir leik
HK
HK koma inn í þennan leik með tvö töp, tvo sigra og eitt jafntefli í síðustu fimm leikjum sem rímar ágætlega við tímabilið sem þeir eru búnir að eiga. Sigrarnir tveir voru auðvitað á heimavelli og töpin og jafnteflið á útvöllum. Í síðasta leik heimsóttur þeir Grindavík í ótrúlegum leik þar sem Grindavík komust í 3-0, HK jafnaði en á 92. mínútu skoruðu Grindavík og tryggðu sér stigin þrjú.

Fyrir leik
Góðan daginn kæru lesendur
Verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik HK og Fylkis í lokaumferð Lengjudeildarinnar. Flautað er til leiks klukkan 14:00 í þessum leik, eins og öðrum í umferðinni, og verður spilað í Kórnum. 



