Fotbolti.net
Hafþór Örn Laursen
Hafþór Örn Laursen
2. deild karla
BIRTU völlurinn
Haukar
Haukar
0 - 0
Selfoss
Selfoss
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Fyrir leik
Spá leiksins!
Grétar Óskars, einn af þáttastjórnendum Harksins henti í spá fyrir 2. deild og spáði þessum 3-2!

Fyrir leik
Gauji Lýðs í Útvarpsþættinum
Gauji Lýðs, þjálfari Hauka, var gestur í Útvarpsþættinum hjá Elvari Geir og Tómasi Þór í gær og talaði um tímabilið í ár
Fyrir leik
Sigurður Hrannar vs VÖK
Þessi leikur gæti einnig sagt mikið um markakóngstitilinn, en eins og stendur er Viðar Örn efstur með 21 mark og er aðeins fjórum mörkum frá því að jafna markametið í 2. deild samkvæmt Víði Sig!

Sigurður Hrannar fylgir fast á eftir með 19 mörk, en báðir leikmenn hafa verið á eldi í sumar!

Sigurður Hrannar er búinn að spila 1181 mínútur í sumar sem þýðir að hann er að skora á 62. mínútna fresti, en VÖK hefur spilað 1457 mínutur sem þýðir að hann skorar á 69. mínútna fresti.

Eitt er víst að þetta verða spennandi tveir seinustu leikir varðandi þetta að gera!
Mynd: Haukar
Sigurður Hrannar Þorsteinsson

Mynd: Selfoss
Viðar Örn Kjartansson
Fyrir leik
Selfoss
Þetta er mjög mikilvægur leikur fyrir Selfoss, en þeir eru í harðri baráttu við Kára að færa sig upp um deild, en ef Selfoss gerir jafntefli í dag og Kári tapar sínum leik gegn mögnuðum Magnamönnum á Grenivík, þá er Suðurlandið komið aftur upp í Lengjudeildina eftir eins árs fjarveru!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Haukar
Haukar eru sigurvegarar 2. deildar, en það varð stærðfræðilega ljóst í seinustu umferð þegar þeir sigruðu Víking Ó. 1-4. Ljóst er að bikarinn fer á loft á Ásvöllum í dag og því ber að fagna!

Þeir hafa verið á toppnum síðan eftir 4. umferð og enginn náð að steypa þeim af stóli! Þeir hafa ekki tapað leik síðan í lok júlí þegar þeir töpuðu 2-1 gegn Fjölni.

Mynd: Sigurður Elefsen

Fyrir leik
Heil umferð
Það verður heil umferð spiluð í dag í 2. deild, fjórir leikir spilaðir núna kl 14:00, og tveir kl 16:00
2. deild karla
14:00 Fjölnir-Þróttur V. (Extra völlurinn)
14:00 Hvíti riddarinn-Kormákur/Hvöt (Malbikstöðin að Varmá)
14:00 KFG-Víkingur Ó. (Miðgarður)
14:00 Haukar-Selfoss (BIRTU völlurinn)
16:00 Magni-Kári (Grenivíkurvöllur)
16:00 KFA-Dalvík/Reynir (SÚN-völlurinn)
Fyrir leik
Ásvellir kalla
Heil og sæl og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá BIRTU-vellinum hér á Ásvöllum, en hér munu Haukar fá Selfyssinga í heimsókn í 21. umferð 2. deildar!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.