Fotbolti.net
Besta deildin
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Besta kvenna
Miðgarður
Stjarnan
Stjarnan
0 - 0
Víkingur R.
Víkingur R.
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Fyrir leik
Helena Ólafs kíkti í kúluna
Helena Ólafsdóttir, þáttastjórnandi Bestu markanna á Sýn Sport, spáir í spilin fyrir umferðina og spáir gestunum sigri.
Stjarnan - Víkingur R.
Víkingar hafa komist á bragðið og unnið undanfarið en þá vinna bara keppinautar þeirra um leið. Víkingar klára þetta sama hvernig aðrir leikir fara.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Tríóið
Brynjar Þór Elvarsson er maðurinn með flautuna í þessum leik og honum til halds og trausts eru Nour Natan Ninir og Heimir Árni Erlendsson á sitthvorri línunni. Guðmundur Halldórsson er þá maðurinn á milli boðvanganna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Víkingur
Víkingar, sem hafa verið í basli í sumar, hafa verið að spila betur upp á síðkastið og eru með tvö sigra í röð þar sem þær héldu hreinu í báðum leikjum. Í síðustu umferð fengu þær Grindavík/Njarðvík í heimsókn í Fossvoginn og unnu á þeim sterkan 3-0 sigur þar sem Bergdís Sveinsdóttir skoraði tvö og Áslaug Dóra Sogirbjörnsdóttir eitt.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Stjarnan
Stjörnukonur hefur skort stöðugleika í sumar og síðustu fimm leikir bera þess merki. Tvö jafntefli, einn sigur og tvö töp en eitt af þessum töpum komu í síðustu umferð í leik gegn Fram. Stjarnan komst í 0-2 eftir 20 mínútur en töpuðu á endanum 3-2 en Fram skoruðu sitt þriðja mark á 90. mínútu og fullkomnuðu þar með endurkomuna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Góða kvöldið kæru lesendur
Verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Stjörnunnar og Víkings í Bestu deildinni. Leikurinn er partur af lokaumferð deildarinnar fyrir skiptingu og leikið er í Miðgarði vegna viðgerða á Samsung vellinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.