Fotbolti.net
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Lengjudeild karla - Umspil
tekk VÖLLURINN
Fylkir
Fylkir
0 - 0
HK
HK
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Fyrir leik
Under the lights gegn Þrótti eða Njarðvík á Laugardalsvelli fyrir sigurvegarann
Klukkan 16:15 tekur Þróttur á móti Njarðvík á Pepsi vellinum í seinni leik liðanna í undanúrslitum umspils Lengjudeildarinnar. Þróttur vann fyrri leikinn 0–1 á heimavelli Njarðvíkur og hefur því nauma forystu fyrir leik dagsins.

Siggi Lár skoraði eina mark fyrri leiksins strax á 7. mínútu og tryggði Þrótti mikilvægan sigur.

Eitt umdeilt atvik átti sér stað snemma í leiknum þegar Oumar Diouck, leikmaður Njarðvíkur, slapp einn í gegn. Markvörður Þróttar hann Þórhallur braut á honum rétt fyrir utan vítateiginn, en dómarinn dæmdi ekkert. Dómarinn fékk mikla gagnrýni fyrir ákvörðun sína eftir leikinn en hann dæmir þennan leik í dag.

Liðið sem vinnur þennan leik hittir annaðhvort Fylki eða HK á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson





Fyrir leik
Fylkismenn fyrstir til þess að vinna í kórnum
Fylkir vann fyrri leik liðanna í Kórnum, 2–3. HK komst yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar Dominik Radic skoraði, en Fylkir svaraði með þremur mörkum í seinni hálfleik. Kári Sigfús og Theodór Ingi skoruðu fyrir Fylki og Gummi Tyrfings tryggði liðinu sigurinn þegar hann skoraði úr vítaspyrnu á 89. mínútu.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson sagði eftir leikinn: Það hefur mikið verið talað um að við töpum ekki í Kórnum en við gerum það núna. Er þá ekki komið að því að vinna útileikinn í staðinn?".

Fyrir tapið hafði HK unnið tíu leiki í Kórnum og gert eitt jafntefli. HK hafði hins vegar aðeins unnið tvo útileiki, gert eitt jafntefli og tapað átta.

HK er því með besta heimavallarárangurinn í Lengjudeildinni og væri á toppi deildarinnar ef eingöngu væri horft á heimaleiki. Þegar kemur hins vegar að útileikjum væri HK í 10. sæti og ekki langt frá fallbaráttunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Fyrir leik
Dómaratríóið
Gunnar Freyr Róbertsson verður með flautuna. Bryngeir Valdimarsson og Mikael Ívan Axelsson verða báðir með flöggin. Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson heldur á skiltinu og passar upp á að bekkirnir tveir missa sig ekki.

Gunnar Freyr Róbertsson hefur verið umdeildur síðustu daga, en hann dæmdi umræddan leik í Njarðvík á miðvikudaginn og hlaut harða gagnrýni.

Fyrir leik
Lengju umspilið heilsar
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Tekk Vellinum. Það eru heimamenn Fylkir sem taka á móti HK frá Kópavoginum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.